Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Side 23
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 23 Virðuleg húsmóðir og matreiðslukennari reyndist vera harðsvírað glæpakvendi: Sorgin fyllir húsið - sagði eiginmaðurinn þegar hann komst að hver konan hans var eftir 17 ára hjúskap „Þetta hús er ekki nógu stórt til að rúma sorg mína,“ sagði Ron Duncan, veitingamaður í smábænum Albany í Oregon í Bandaríkjunum, þegar hann komst að því að kona hans átti sér fortíð sem hann vissi ekkert um eftir 17 ára hjúskap. Og það sem meira var; hann vissi ekki að hún var eftirlýstur morðingi og bankaræningi. Hann vissi ekki betur en að matreiðsla hefði lengi verið helsta áhugamál hennar. En lögreglan hefur ekki áhugann á matseld Aiice Duncan, í það minnsta ekki eftir að upp komst að hún heitir í raun og veru Katherihe Ann og að ættarnafn fjölskyldu hennar er ekki Metzinger heldur Power. Hvorki eigin- maðurinn sé aðr- ir sem til hennar þekktu vissu að hún hafði fyrir tæpum aldar- fjórðungi verið dýrkuð af ungl- ingum í Boston sem Bonnie Par- ker endurborin - glæpakvendið sem fór um með honum Clyde sínum og rændi þá ríku. Lögreglan skipaði einu sinni þess- ari Katherine Ann Power í röð hættulegustu glæpamanna og í 14 ár samfleytt leitaði lögreglan hennar um öll Bandaríkin fyrir morð. Fyrr í þessum mánuði ákvað Kat- herine Ann að hætta feluleiknum eftir að hafa leikið á réttvísina í 23 ár. Hún sagði sínum nánustu frá for- tíð sinni, leitaði til sálfræðings til að undirbúa sig fyrir áfallið og gaf sig svo fram. „Samviskan er búin að naga mig öli þessi ár. Ég framdi hræðilegt illvirki. Ég get ekki lifað undir þessu oki leng- ur,“ sagði Kat- herine Ann í yfir- lýsingu þegar hún gaf sig lög- reglunni á vald. Þótt undarlegt megi virðast hefur saga Katherine Ann Power vakið upp slæma samvisku margra Banda- ríkjamanna vegna Víetnamstríösins. Menn hafa komist svo að orði að nú sé síðasti fangi stríðsins fijáls. Það var stríðsrekstur Bandaríkja- manna í Víetnam sem leiddi Kather- ine Ann út á glæpabrautina. Hún var fyrirmyndarunghngur úr efri mið- stétt - dóttir bankastjóra og afburða- nemandi í skóla - þegar stríðið fór að þjaka bandarísku þjóðina. Á fyrsta ári í háskóla Boston kynntist hún andstöðunni við Víet- namstríðið. Fjölskylda hennar og kennarar hneyksluðust þegar styrk- þeginn, sem ahir bundu svo miklar vonir við, fór að ganga um götur með uppreisnarunglingum og mótmæla. Hún kynntist öfgahópi friðarsinna og starfaði með honum uns lögreglan var búin að handtaka alia nema hina endurbornu Bonnie Parker. Leiðtogi hópsins var Stanley Bond, fyrrum hermaður í Víetnam, og óragur við að beita ofbeldi til að vekja atygli á málstaðnum. Katherine Ann hreifst af þessum uppreisnarmanni sem var andstæða alls sem hún þekkti áður. Stanley vildi láta vopnin tala og fyrsta stórvirki hópsins var að ræna vopnabúr þjóðvarðliðsins í Boston. Vopnin voru notuð við bankarán. Ránin þjónuðu bæði þeim tilgangi að ögra þjóöfélaginu og að afla fjár til starfseminnar. Dóttir bankastjór- ans rændi banka með glöðu geði. Straumhvörf urðu þó þann 23. sept- ember 1970. Þá var State Street Bank í Boston rændur. Katherine Ann stóð vörð. Lögregluþjónninn Walter Schroeder var skotinn til bana þegar hann reyndi að koma í veg fyrir ránið. Katherine Ann. Nú hófst eltingaleikur lögreglunn- ar við unglingana. Stanley Bond, sem unghngar í Boston líktu við Clyde Barrow, var handtekinn og hann lét síðar lífið við að reyna að sprengja sig út úr fangelsi. Katherine Ann fór í felur í Boston ásamt lagskonunni Susan Saxe. Þær bjuggu í kommúnu með fleiri konun og tókst að snúa á lögregluna í fimm ár. Þá var Susan handtekin og dæmd til fangavistar. Katherine Ann sá að leik hennar lyki líka fyrr eða síðar. Ömurleiki flóttalífsins þjakaði hana og flestir voru búnir að gleyma rómantísku myndinni af Bonnie Par- ker nútímans. Hún ákvað að skipta um nafn og númer; fann út að stúlka að nafni Alice Metzinger hafði fæðst sama dag en dáið í æsku. Katherine Ann tók upp nafn þessarar stúlku, breytti fæðingarvottorði sínu og flutti þvert yfir Bandaríkin tíl Oreg- on. -GK Eiginmaðurinn Ron Duncan, foreldrarnir Winfield og Majorie Power og systirin Claudia við fyrstu yfirheyrslur yfir Katherine Ann. Foreldra sína sá Katherine Ann ekki i 23 ár og þau vissu ekki betur en að hún væri látin. Áhyggj- ur vegna foreldranna urðu m.a. til að Katherine Ann gaf sig fram eftir 23 ár i felum. Báóar þessar bœkur eru nú komnar út á íslensku og gefa kvikmynd- unum ails ekkert eftir - sann- \ kallaöar 4 úrvals / jA spennu- / » bœkur. / Samnefndar kvikmyndir sýndar i Stjörnubíói þessa dagana. Á næsta sölustað eða í áskrift í síma (91) 63 27 00 wmzyz, / Aóeins / kr. 895,- og ennþá minna í áskrift í skotlínu er skrifuö eftir samnefndri kvikmynd sem kölluó hefur veriö besta spennumynd ársins. Allir bestu gagn- rýnendur landsins hafa gefió myndinni-þrjár stjörnur og þar yfir. Max Allan Collins hefur gert eftirminnilega bók eftir kvikmyndahandritinu þar sem ekkert tapast en margt veröurgleggra og áhugaveróara en í myndinni. Á ystu nöf er geró eftir samnefndri kvikmynd sem farió hefur sigurför víóa um heiminn, meóal annars verió sýnd svo vikum skiptir í Reykjavík. Höfundurinn, Jeff Ro- vin, spinnur hörkuspennandi söguþráó um hœttur og hetjudáóir vió ótrúlega erfióar aðstœóur. Aóeins kr. 895,- og ennþá minna í áskrift. ÖRVAL3 BÆKUR TVÆR NYJAR I V Wm V wfin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.