Þjóðviljinn - 24.12.1968, Page 25

Þjóðviljinn - 24.12.1968, Page 25
í Hótel Armeníu hafði mér verið ætluð tveggja herbergja vistarvera af lúxustagi, búin þægi- legum húsgögnum og prýdd mál- verkum. í þannig íbúð búa miðl- ungsfjölskyldur á Norðurlönd- um; innriforstofan var á stærð við þau eldhús sem húsfreyjum á íslandi finnst vera of stór. Þeg- ar ég hafði komið töskunni minni fyrir í þessari flottustu íbúð sem ég hef haft um ævina, nennti ég ómögulega að fara að sofa. Ég hitti túlkinn minn niðri í lobbí- inu og við tókum okkur kvöld- göngu. Ósköp var nú þægilegt að anda að sér þessari suðrænu, gróður- mettuðu hlýju. Það er engin furða þótt við Norðurlandabúar verðum barnalega hrifnir af því að fá tækifæri til þess að njóta um- hverfis og veðráttu eins og þeirr- ar sem hér ríkir syðra um þetta leyti árs. Einkum eru það kvöldin sem reynast mátulega lilý, mátulega svöl, fyrir lungu og limi okkar norrænu barbaranna. Og Ioftið í Armeníu er mjög tært og ferskt, það gerir hæð landsins. Þar getur reyndar verið breyskju- liiti á daginn, en sjaldan moUa, að því er mér var sagt. Þó ekki væri nema af þeim sökum gæti ég vel hugsað mér að dveljast langdvöl- um á þessum eða svipuðum slóð- um. BIBLÍUFJALLIÐ Elztu heimildir um byggð á þessu landssvæði eru meira en 2700 ára gamlar, þótt varla sé hægt að tala um þéttbýli fyrr en á 15. öld okkar tímatals. Þá er Érevan talin höfuðborg þess sem í gömlum skrifum er nefnt Ara- ratsland. Vel á minnzt. Þegar ég fór árla morguns á stjá til að skoða þetta sólvermda umhverfi, hafði ég ekki lengi gengið þegar túlkurinn minn benti mér á fjall eitt mik- ið sem birtist í sólarmistrinu og ekki auðvelt að átta sig á í fljótu bragði hvort heldur var í órafjar- lægð eða mjög nálægt; það virtist ekki hafa neitt samband við jörð- ina. Varla þurfti að taka fram hvaða frægðartindur þetta var, en túlkinum þótti það samt vissara: Þarna var komið biblíuf jallið sjálft, Ararat. Fjall þetta er fyrir þarlandsmenn eitthvað mildu Matenadaran: „... Glcesileiki þess verður meiri eftir því sem nxr er komið. Ekkert hefur verið til spar- að að veita traustan og virðulegan umhúnað þeim dýrgripum sem þessi forna menningarþjóð á einna mesta ..." annað og meira en gamalt nauð- bjargarsker mannkindarinnar eft- ir syndaflóð í dentíð. Það er margfaldlega sögufrægt, og Ar- menar telja sig „eiga" það, enda- þótt það sé Tyrklandsmegin við landamærin. Það hefur heldur alls ekki alltaf verið svo, heldur gengið á ýmsu; landamæri hafa iðulega breytzt á þessum slóðum, en Arinenar látið sig öngu skipta í afstöðu sinni til fjallsins. Þeir hafa þetta fjall sitt í skjaldarmerki og á hverskonar öðrum merkjum, og þeir flagga með það og nafn þess í jafnvel ríkara mæli en við flöggum með Heklu, Geysi, Þingvelli og Árbæ samanlagt. — Fræg er sagan af orða- skiptum Tyrkja nokkurs og þá- verandi utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna Maxims Litvinovs (sem reyndar var ekki Armeni). Hinn fyrrnefndi sagði það vera næsta hlálegt að Armenar skyldu hampa þessu fjalli í skjaldarmerki, þar sem það væri alls ekki í Armeníu. Litvinov svaraði um hæl: „Elsku vinur, ég veit ekki betur en þið Tyrkir hafið hálfmánann í ykkar fána!" RÁFAÐ UM GÖTUR í heild er Érevan mjög fögur borg, bæði vegna umhverfis síns, bygginga og skipulags. Ég hefi í fórum mínum þónokkrar heim- ildir um sögu hennar, en það er ekki ætlun mín að reyna að moða úr þeim að sinni. Geta má samt örfárra staðreynda til fróðleiks. íbúar eru nú um 697.300, og hefur tala þeirra hvorki meira né minna en tuttuguogþrefaldazt á röskri hálfri öld; á sama tíma hef- ur flatarmál borgarinnar fimm- tugfaldazt. Borgin er talin grund- völluð árið 872 f. Kr. og frá 1920 hefur hún verið höfuðborg sov- ézku Armeníu. Hvarvetna í grennd úir og grúir af fornminj- um, og merkar fornminjar eru JÓLABLAÐ — 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.