Þjóðviljinn - 24.12.1968, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 24.12.1968, Blaðsíða 30
NYPA Mér þykir rétt að fylgja sög- unni af Nýpu og þulunum tveim úr hlaði með nokkrum orðum. Þetta er skrifað upp eftir eldri konu, Kristínu á Blesastöðum (Skeiðum), sumarið 1966. Ekkert af þessu er að finna í safni Ólafs Davíðssonar. Ég hef ekki heyrt söguna af Nýpu né þuluna um tíkina áður, svo ég muni. Nýpa er kölluð dóttir Grýlu kerlingar í þulu neðanmáls í Þjóðsögum J.Á. (bls. 219, fyrra bindi). Annars er lítið vitað um Nýpu nema sem segir í alkunnri leikþulu: Hvar býr hún Nýpa? Þó gæti að sjálf- sögðu eitthvað Ieynzt í ritum eða uppskriftum. „Hver er kominn úti" lærði ég í barnæsku á Vestf jörðum. Því hef ég Ieyft mér eina breytingu: „að þylja tölur" í staðinn fyrir að syngja tölur, eins og Kristín fór með það. Annars eru hér engar vísvitandi breytingar. Ef til vill vantar eina hendingu á eftir: .Kapalinn og kaupskip". — Það sem hreif mig, var hljómandi hrynjandin og hið þjálfaða mál, eins og bezt getur verið og lifað hefur á vörum þjóðarinnar frá upphafi. Sveinn Bergsveinsson. Nýpa kom til móður sinnar og sagðist vera ósköp svöng. Móðir hennar sagði að hún mætti sleikja innan keraldið og tunnuna. En hvað gerði hún Nýpa? Hún gleypti bæði keraldið og tunnuna. Svo gekk hún út, og þá sá hún tvo hrafna. Sæli Nýpa, sögðu þeir. Sælir líka, sagði hún. Hvað fékkstu í morgun, Nýpa mín? Kerald móður minnar, tunnu móður minnar. Þó get ég gleypt ykkur. Og það gerði hún. Svo gekk hún lengra. Þá hitti hún tvo ketti. Sæli Nýpa, sögðu þeir. Sælir líka, sagði hún. Hvað fékkstu í morgun, Nýpa mín? Kerald móður minnar, tunnu móður minnar og tvo hrafna. Þó get ég gleypt ykkur. Og það gerði hún. Svo gekk hún lengra. Þá hitti hún 16 tryppi. Sæli Nýpa, sögðu þau. Sæl líka, sagði hún. Hvað fékkstu í morgun, Nýpa mín? Kerald móður minnar, tunnu móður minnar, tvo hrafna og tvo ketti. Þó get ég gleypt ykkur. Og það gerði hún. Svo gekk hún lengra. Þá hitti hún 17 kvígur. Sæli Nýpa, sögðu þær. Sælar líka, sagði hún. Hvað fékkstu í morgun, Nýpa mín? Kerald móður minnar, tunnu móður minnar, tvo hrafna, tvo ketti og sextán tryppi. Þó get ég gleyptykkur. Og það gerði hún. Svo gekk hún lengra. Þá hitti hún 100 fjár og mann og hund. Sæli Nýpa, sögðu þau. Sæli þið, sagði hún. Hvað fékkstu í morgun, Nýpa mín? Kerald móður minnar, tunnu móður minnar, tvo hrafna, tvo ketti, sextán tryppi og sautján kvígur. Samt get ég gleypt ykkur. Og það gerði hún. Svo hitti hún kaupskip með mönnum á. Sæli Nýpa, sögðu þeir. Sæli nú, sagði hún. Hvað fékkstu í morgun, Nýpa mín? Kerald móður minnar, tunnu móður minnar, tvo hrafna, tvo ketti, sextán tryppi, sautján kvígur, hundrað fjár, einn mann og hund. Og þó get ég gleypt ykkur. Svo gleypti hún mennina og skipið. Og enn gekk hún Nýpa. Þá hitti hún ofurlítinn snjótittling. Sæli Nýpa, sagði hann. Sæll líka, sagði hún. Hvað fékkstu í morgun, Nýpa mín? Kerald móður minnar, tunnu móður minnar, tvo hrafna, tvo ketti, sextán tryppi, sautján kvígur, hundrað fjár, einn 30 - JÓLABLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.