Þjóðviljinn - 24.12.1968, Síða 27

Þjóðviljinn - 24.12.1968, Síða 27
enn að líta dagsins ljós öðru hverju, enda mikil rækt Iögð við hverskyns sögurannsóknir og varðveizlu forns menningararfs hvarvetna um Sovétríkin og þó kannski óvíða eins og einmitt þarna suðurfrá. En Érevan er einnig með meiriháttar iðnaðar-, vísinda- og menningarstöðvum þessara landa. Ný íbúðar- og iðn- aðarhverfi þenjast í allar áttir, og verið er að grafa fyrir neðanjarð- arbrautum. Fyrstu og varanleg- ustu áhrifin af því sem fyrir augu ber eru tengd uppbyggingu, vexti, skipulagi fyrir framtíðina. Þeim mun meir verður maður hissa á því að sjá í sjálfri mið- borginni heil hverfi gamalla og I næsta hrörlegra húsa sem enn eru notuð sem mannabústaðir. Þau eru að vísu óðum að týna tölu, og mér liggur við að segja því miður. Þessi gömlu, litlu þéttbýl- ishús, óskipuleg og sennilega mið- ur þægileg á kröfuharðan nútíma- mælikvarða, þau búa yfir ein- stökum þokka mörg hver. Ég vil taka það fram, að ég fór víða um þessi hverfi, en varð hvergi var við sóðaskap eða aðra eymd af því tagi sem fylgir búsetu ut- angarðsmanna víðasthvar í borg- um; ég er að vona, að þarna hafi heldur ekki búið neitt utangarðs- fólk. Allt var sómasamlega þrifa- legt, og fólkið ágætlega á sig komið; börnin glaðleg og spræk, þessi fallegu, dökkhærðu arm- ensku börn sem ljóma jafnvel skærar en sól þessa heita lands. En það eru hús, sem ég ædaði að minnast nánar á. Þetta óskipu- lagsbundna byggingarlag, þessir timbur- eða steinkofar sem einatt standa við þröngar götur ætlaðar engri umferð annarri en manna og húsdýra, — allt hefur þetta vingjarnlegan, persónubundinn og intíman svip sem hættir til að glatast í báknum sambýlishúsa og við breiðgötur skipulegra stór- bæja. Grámi sements má vera hagkvæmari en tígulsteinn eða grænka á þaki, en ég efast um að fólki sé búin nokkur bráðnauð- synleg hollusta með því t.d. að láta hansagardínur taka frá því rómantík gluggahlera. Þetta fór ég að hugleiða innanum þessa érevönsku kofa. Þeir standa oft að baki stórra húsa sem búið er að reisa fyrir löngu meðfram stór- Dómkirkjan í Echmiadzin: „ .. Þetta er ekki ýkjastórt hús saman- borið við ýmsar stærðarkirkjur kristins dóms, en hinsvegar munu ekki mörg gttðshús í álfunni vera eldri að árum ..." um og breiðum strætum. Samt er ekki verið að fela þessi hverfi. En Róm var ekki byggð á einum degi, og Érevan heldur ekki. Fólksf jölgunin er ör, það er margt sem þarf að byggja. Túlkurinn minn sagði mér, að allir hlökkuðu til þess þegar hægt væri að rífa þessi hús. Sjálfsagt er það hárrétt. En ég hélt áfram að spekúlera: Er ekki hægt að reisa hlýleg og mátulega óskipulagsþvinguð hverfi lítilla húsa og búa þau þægindum rennandi vatns, góðra hitunartækja, sjónvarps og ís- skápa og hvers annars sem krefj- ast skal, án þess að hvert hús þurfi endilega að vera villa með prívat- skrúðgarði eins og gamaldags kóngshöll í Vasaútgáfu? Stelpuhnokki sat úti á tröppum í góða veðrinu og batt nýja slaufu um hálsinn á kisu. Þetta var sunnudagur. VERZLUN í SOVÉT Ég lagði leið mína inn í aðal- markaðsskála borgarinnar, og þótt sunnudagur væri var þar geysi- mikið um að vera. Þarna er í rauninni selt allt sem nöfnum tjáir að nefna, en mest bar á mat- vælum hverskonar, landbúnaðar- afurðum svo úr jurta- sem dýra- ríkinu, og voru sum dýrin seld lifandi, jafnvel vatnafiskar uppúr stórum kerum. Markaðurinn er í heljarmiklum hvolfsal sem einna helzt minnir á járnbrautarstöð, nema hvað mannmergðin og hávaðinn er miklu meiri en nokk- urntíma er í slíkum stöðvum. Þarna var svo krökkt af fólki að varla varð þverfótað, og varning- urinn á borðum og gólfi, hillum og kössum var svo yfirgengilegur að sárfrómur maður eins og ég gat ekki varizt því að uþp í kollinn skyti þessari miður fögru hugs- un: Mikið held ég hér sé freist- andi að vera vasaþjófur .... Yfirleitt eru verzlanir í Sovét- ríkjunum yfirfullar af viðskipta- Framhald á bls. 94. JÓLABLAÐ - 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.