Þjóðviljinn - 24.12.1968, Page 47
Steinn þessi er skammt frá Stykkisbólmi, rétt við þjóðveginn, og dregur nafn af Hannesi Hannessyni, sem hafði viðurneftiið stutti. — Hann var
alþekktur mn Breiðafjarðarbyggðir og.víðar á ofanverðri 19. öld, gekk milli bœjá og skemmti fólki með dýrt-kveðnum vísum sínum, sem
margar lifa enn á vörmn manna, Hann var og sagðm snarmenni og glíminn vel. Hannes mun hafa látizt skömmn fyrir s.l. aldamót.
Jón Rafnsson:
HANNESARSTEINN
Hér þraukar þú sem forðum
og þegir eins og steinn,
í órafyrnsku alinn.
Þú ævagamli mosaskeggur
íbygginn og einn.
Hann kom hér göngulúinn
á leið um þetta nes
og hallaði sér að þér.
En heimsins kuldagjóstur
á báðar hendur blés.
Hér opnaðist þér einum
hans eðalborna sál,
og síðan ertu ei samur;
í svip þínum ég skynja enn
ið mikla leyndarmál,
Hér gerði hann slétt sín klæði
og kembdi skegg og hár;
svo greip hann gönguprikið
— ei garpslegur að vallarsýn,
en kotroskinn og krtár.
Og Hólmararnir hýstu
inn horska skemmtimann,
þar orti enginn dýrar
né uppskar þvílík reginbýsn
af hlátrum eins og hann.
En þú stóðst hér við götuna
íbygginn og einn
sem óræð gestaþraui
í þúsund ára þjóðargeymd
og þagðir eins og steinn.
(1962)
JÓLABLAÐ — 47