Þjóðviljinn - 24.12.1968, Síða 85

Þjóðviljinn - 24.12.1968, Síða 85
fram í miðja þá sögu og margt er þó sagt í tíðindum, en nú þurfa engar vísur að fyígja til að stað- festa frásögnina. Nú virðist það auðsætt af sögunni að samtíða maður skrifar hana, sem ekki þarf að styðjast við vísur, heldur bein- ar heimildir, er hann má sjálfur þekkja og má hér ýmislegt tilfæra er þetta má styrkja. Þá koma sög- ur Magnúsar blinda sonar Sigurð- ar Jórsalafara og Haraldar gilla, er tjáðist bróðir Sigurðar og son- ur Magnúsar berfætts. Þá Inga saga Haraldssonar gilla, þá Há- konar saga herðibreiðs, Sigurðs- sonar, Haraldssonar gilla og síðust Magnús saga Erlingssonar. í þess- um 4 sögum eru einungis tilfærð- ar 30 vísur, og veit maður það að hér er farið eftir samtíðarriti, Hryggjarstykki, Eiríks Oddssonar og segir okkur það um leið, að þegar ekki þarf vísur í Sigurðar sögu Jórsalafara, að þá er rétt ályktað að hún er skrifuð af sam- tímamanni og síðan allar sög- urnar er tilnefndar voru. Ekki er það þó fyrir það að ekki sé skáld til staðar til að kveða um konungana. Það er efámál að í annan tíma hafi fleiri íslenzk skáld verið með Noregskonung- um, en á þessum umgetna tíma. Um 1160 er eitt af stórskáldum íslendinga í Noregi, Einar Skúla- son. Nú segir það sig sjálft, að hefði Snorri Sturluson skrifað bókina eftir 1200, 100 árum eftir dauða Sigurðar Jórsalafara, hefði hann ekki komizt hjá því að nota vísur til staðfestingar efninu í sama mæli og áður hafði verið gert. Hér er því rért ályktað, síð- ustu sögurnar í Heimskringlu eru ritaðar af samtíma mönnum kon- nnganna, en ekki Snorra Sturlu- syni 70—100 árum síðar. Á eitt atriði má benda, sem ekki styrkir það að Snorri hafi skrifað sög- una. Gamalt konungs sagna hand- rit kallast nú Fagurskinna, og fræðimenn, sem allt vilja færa fram á tíma, hafa ekki getað á- Iyktað að hún sé síðar rituð en 1220, og er slíkt Jítið að marka, því auðvitað er bókin eldri. Nú ber svo til að heilir kaflar í Heimskringlu eru samhljóða Fag- urskinnu, og þegar maður veit það, að Snorri hefur ekki samið Heimskringlu þá verður þessi samruni bókanna næsta merkileg- ur ©g um það leyti og Heims- kringla er gerð hefur maður ekki heimild um neina konungasögu- bók nema bók Sæmundar fróða. Og maður fær þá hugmynd að þessi ek í formálanum sé einmitt Sæmundur fróði, og þessvegna geti hann ekki í formálanum að þarna sé hann sjálfur að verki og þessir vér leggi verk hans til grundvallar, en vandi sig ekki á formálanum, sem hann sýnir. Á bók þessi lét ek o.s.frv., rita ekki aðrir en Ari eða Sæmundur. Sést á þessu hversu vísindamennirnir álykta rétt um Fagurskinnu, að hún er til þegar Heimskringla er rituð fyrir 1177 og hreint ekki að Fagurskinna sé rituð eftir Heims- kringlu. Á tvennt vil ég enn minnast. Stílrannsókn á Heims- kringlu upplýsir ýmislegt um gjörð hennar, svo sem ég sýndi um orðið „samna". Og eins og sagt var ber á ósamræmi í stíl bókarinnar, sem von er, þegar margir hafa um fjallað. Frekast til dæma um það og fróðlegast, er það, að í öllum hinum fyrri sög- um, allt til enda Magnús sögu góða d. 1045, en það er meira en tveir þriðju hlutar bókarinnar, er allsstaðar ritað „bæ, bænum", sem allir vita að er gömul og ný ís- Ienzka, en í hinum seinni sögum er ritað „bý, býnum" fyrir bæ, bænum og er það málfar sem gildir enn á sögusviði Heims- kringlu. En í næsm sögu, Harald- ar harðráða, er ritað sitt á hvað bý og bæ, og t.d. á einni og sömu bls. er tvisvar ritað býnum og tvisvar bænum, og síðustu sögun- um einungis ritað bý, býnum, býj- arins, svo sem heyra mátti af því er lesið var. Sjást hér glögg gerð- arskil á verkinu, þar sem er Har- aldar saga harðráða, enda mun Sæmundarbók ekki hafa náð lengra en til þeirrar sögu. Er þetta athyglisvert og sýnir fyrst og fremst að hér eru sjálfstæð höf- undarverk færð inn í konungasögu safnið, en slíkum verkum leyfir sér enginn að breyta. Við vitum að Hryggjarstj'kki Eiríks Odds- sonar er ritað í Noregi og virðist auðsætt, að þetta „bý" sé álitið eiginnafn, er ekki ber að breyta þar sem ritað er á vettvangi. En á þetta bendi ég til að sýna það, sem allir hljóta að skilja og viður- kenna, að sami maður ritar ekki bæ í öllum fyrri hluta og mikl- um meirihluta verksins, en bý í síðari hlutanum, og þó á rugl- ingi til að byrja með. En hér ber að sama brunni og í formálanum, að hér hefur ekki einn maður um fjallað, og strikar þetta með öllu yfir þá kenningu að Snorri Sturluson sé höfundur bókarinn- ar frá upphafi til enda. Og hér er dómurinn saminn og birtur og mun síðan standa um höfundarskap Snorra að Heims- kringlu, og leiðin sýnd til vinnu- bragða, sem ekki byggja á stað- lausum stöfum. Heimskringla vís- ar í fáu einu eftir sig á tíma og ég held aðeins í einu atriði til 13. aldar manna. Þar segir frá ferð Ólafs konungs kyrra frá Englandi, eftir að faðir hans, Haraldur harð- ráði, var fallinn 1066, þar í landi, að þá fylgdust með honum tveir bræður, enskir, ágætismenn og hét annar Skúli og varð hann landsráðgjafi konungs og kallað- JÓLABLAÐ - 85 KLÆÐASKÁPAR NÝ GERÐ Sundurteknir, auðveldir í flutningum. Standard stærðir: Br. 110 — 175 — 200 og 240 cm. Smíðaðir einnig í öðrum stærðum. — PÓSTSENDUM — Biðjið um upplýsingar. Húsgagnaverzlun Axels Eyiólfssonar Skipholti 7. — Síimar: 10117 - 18742.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.