Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 22
Niðurstöður á meltanleika þessara sýna eru eftirfarandi:
Meðferð Meðalgildi meltanleika llfrænna efna 10 sýna Staðalskekkja meðalgildis
i 59,5 ±1,67
ii 59,9 ±3,16
iii 60,0 ±1,61
Okkur þótti því réttlætanlegt að sleppa því að stilla pH
eftir 24 stunda gerjun.
2. Stillingu á pH við lok 48 stunda gerjunar sleppt.
Við gerðum aðra tilraun til að prófa, hvort stilla þyrfti
pH nákvæmlega á 1,2 eftir 48 stunda gerjun, áður en peps-
íni er bætt við, eða hvort nógu nákvæmt væri að bæta við
ákveðnu rúmmáli af sýru. Við fundum engan markverðan
mun á meltanleika 11 heysýna, þegar 6, 7 eða 8 ml af salt-
sýru var bætt við eftir 48 stunda gerjun án mælinga eða still-
ingar á pH. Alexander fann líka, að 6 ml af saltsýru án
pH mælinga minnkaði ekki nákvæmni aðferðarinnar.
Við bættum því ákveðnu rúmmáli eða 6 ml af saltsýru í
hvert meltiglas. Þetta er gert í þrem áföngum, (2 ml -(- 1>5
ml -|- 2,5 ml), til að hindra að freyði um of í glösunum. Á
eftir mælum við þá pH í rafskauts/þeytara tækinu til ör-
yggis, en líka vegna þess, að þeytarinn blandar sýrunni,
pepsínlausninni og meltiblöndunni vel saman.
F. Nákvœmni i ácetlun á in vivo meltanleika.
Alexander og við á R.N. höfum skipst töluvert á sýnum,
þ.á.m. eru 4 sýni með þekktan in vivo meltanleika, sem ég
kom með frá Skotlandi. Við meltum þessi sýni nokkrum
sinnum, og niðurstöður in vitro mælinga okkar voru mjög
sambærilegar við in vivo meltanleikann.
24