Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 89
ÓLI HALLDÓRSSON
ÞRÍR DAGAR Á FJÖLLUM
Það er almennt viðurkennt, að miklar breytingar ha£a orð-
ið á flestum sviðum í þjóðlífi voru undanfarin ár og ára-
tugi. Það þarf ekki lengra, en tuttugu ár aftur í tímann, til
að sjá hve stórkostlegar breytingar hafa á orðið.
Nú langar mig til að biðja þig lesandi góður, að fylgja
mér rúm tuttugu ár aftur í tímann, eða til fyrstu daganna
í nóvember 1954. Það sem ég ætla að segja þér, er þó ekkert
sérstaklega merkilegt. Þetta er nokkurskonar ferðasaga, saga
af ferð, sem hvorki var árangursrík né afdrifamiki!. Og þó.
Ekki hefði mátt mikið út af bera, til þess að í þessari ferð
gerðust e.t.v. þeir atburðir, að ég hefði ekki getað sagt þér
þessa sögu.
Sumarið og sérstaklega haustið 1954 var ákaflega vont.
Gekk því fremur illa að leita heiðalönd, einkum þau er
fjærst byggð liggja. Þegar lokið var þrennum göngum í
Hvammsheiði, sem er austust af heiðalöndum Þistilfirð-
inga, hafði aðeins einu sinni tekist að komast í Heljardal,
og þá í stórhríðarveðri. Lá því grunur á, að þar gætu leynst
kindur og höfðu menn fullan hug til að komast þangað ef
færi gæfist.
Heljardalur mun vera eitthvert stærsta samfellt graslendi
á norðaustur hálendi íslands, allt frá Jökulsá á Fjöllum og
93