Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 117
Skýrslunni var dreift meðal fundarmanna. Málinu
var vísað til heyverkunarnefndar.
8. Ólafur Vagnsson ræddi um fóðurblöndur og samvinnu
um að fá á markað blöndur sem henta með heyinu með
tilliti til próteins, bygginnihalds og grunnsamsetningar
o. fl. Máli þessu var vísað til heyverkunarnefndar.
9. Jóhannes Sigvaldason talaði um hagnýtingu jarðvegs-
efnagreininga og lagði fram tillögu um skipulegar efna-
greiningar og var þeirri tillögu vísað til jarðvegsefna-
greininganefndar.
Þá fóru fram umræður um mál nr. 7, 8 og 9 hér að
framan. Þessir tóku til máls: Aðalbjörn, Ólafur, Ari,
Hermóður, Hjörtur, Grímur, Jóhannes, Aðalbjöm,
Sveinn, Eggert, Þórarinn, Stefán og Helgi.
Þegar hér var komið var kaffihlé.
Nefndir tóku til starfa að lokinni kaffidrykkju.
Kl. 6,30 hófst fundur að nýju.
10. Álit nefnda:
Álit heyverkunarnefndar:
Haukur Halldórsson mælti fyrir tillögum nefndar-
innar, sem hljóðuðu á þessa leið:
a. „Aðalfundur Rf. Nl. haldinn að Reykjahlíð í Mý-
vatnssveit hinn 4. sept. 1975, samþykkir að beina því
til búnaðarsambandanna á félagssvæðinu, að þau
leggi á það mikla áherslu við leiðbeinendur á hverju
svæði að gert verði stórátak í súgþurrkunarmálum,
einkum með tilliti til eftirfarandi atriða:
1. Að fylgjast vel með öllum þeim rannsóknum,
sem unnið er að á þessu sviði, einkum hér á landi,
og koma þeirri þekkingu sem gagnlegust er sem
fyrst út á meðal bænda.
2. Að unnið verði að því, að bæta súgþurrkunarað-
stöðu og tækni hjá þeim bændum, sem enn hafa
ekki fullnýtt hana.
121