Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 106
um hér nyðra og ráða þar bót á. Fer þessi leit sumpart fram
jafnhliða frjósemisrannsókninni, sem áður er nefnd.
Fundir og ferðalög.
Sóttir voru og erindi flutt á þrem fundum í búnaðarsam-
böndunum. Hinn fyrsti 8. apríl, en það var fræðslufundur,
sem Búnaðarsamband A-Húnvetninga efndi til. Rætt var
einkum um fóðrun og fóðurgæði í mínu spjalli. Svipað efni
var tekið fyrir á búnaðarfélagsfundi að Melum í Hörgár-
dal. Nú síðast, nánar þann 18. júní, síðastliðinn, sátum við
Jóhannes Sigvaldason aðalfund Búnaðarsambands A-Hún-
vetninga og fluttum stutt erindi þar sem heyefnagrein-
ingar bar helst á góma hjá mér. Sakar ekki að koma á fram-
færi hér sérstöku þakklæti til stjórnar BSAH fyrir fundar-
boð þetta og meðlimum þess fyrir fjör og skemmtilegheit á
fundinum, hvert svo sem raunverulegt álit þeirra á leið-
beiningarstarfinu kann að vera nákvæmlega.
Mætt var á tveim ráðstefnum. Sú fyrri fjallaði um fóður
og fóðrun að mestu og var haldin sameiginlega af Búnaðar-
félagi Íslands og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins í
Bændahöllinni dagana 10.—14. febrúar síðastliðinn vetur.
Flutti ég þar erindi um selenskort í búfé. Þá var sótt ráð-
stefna NJF (Nordisk jordbruksforskning), sem haldin var
í húsakynum Háskóla íslands dagana 1.—4. júlí í sumar.
í fyrra haust var farin tveggja daga ferð til töku heysýna
hjá bændum í Vestur-Húnavatnssýslu. Eins og sumarið 1974
voru heimsóttir allmargir bændur í þeim tilgangi að kynn-
ast súgþurrkunartækjum og framkvæmd súgþurrkunar og
heyverkun. Þessari könnun er nú lokið að sinni og liggur
fyrir fundinum skýrsla ferðarinnar og vísast til hennar um
frekari upplýsingar. — Síðast í ágúst 1974 var farið austur í
sýslur og sérathugunarbæirnir (SAB) heimsóttir, að líkind-
um í síðasta sinn með þá rannsókn í fyrirrúmi. Við Einar
Eylert Gíslason, ráðunautur í Skagafirði heimsóttum all-
marga bæi þar í sveit í vor. Tilgangurinn var fyrst og fremst
að kanna hversu alvarlegt stíuskjögur og e. t. v. fleiri kvill-
110