Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 16
Ef malað er fínna, gengur of hægt, og sýnið verður of
duftkennt.
c) Þurrkun. Heysýnin eru þurrkuð aftur við 100° C
yfir nótt. Síendurtekin þurrkun lækkar in vitro melt-
anleika, og við þurrkun því aðeins tvisvar.
d) Vigtun. Af hverju ofnþurru sýni (100% þurrefni) eru
nú 0,5 g tvísýni (duplicate) vegin nákvæmlega í melti-
glös. Þessi sýni verða melt. A sama tíma eru 1,0 g tví-
sýni vegin nákvæmlega í skálar til ákvörðunar á líf-
rænu efnainnihaldi hvers sýnis. Meltiglösunum er
haldið við 40°C, þar til melting hefst.
4. Blöndun sýnis og vambarvökva, melting hefst.
Meðan vambarvökvablandan er höfð sér, fer gerlavirkni
hennar minnkandi, því að þeir hafa úr litlu að moða. Því
fyrr sem heysýnið er blandað vambarvökvanum, þeim mun
betur tekst að halda sömu virkni allan meltitímann.
Til að flýta fyrir blöndun, var búin til handdæla, sem er
lóðrétt glersprauta með sérstökum lokum, svo að hægt er
að dæla vambarvökvanum í hvert meltiglas. í hvert glas fara
50 ml af vambarvökva — munnvatnsblöndunni, og um leið
er C02 leitt í glösin til að útiloka loft. Þá er hverju melti-
glasi lokað með grimmítappa. Á þeim er einföld loka, sem
hleypir úr lofttegundum, er myndast við gerjunina, án þess
að sleppa inn lofti. Meltiglösunum er komið í vatnsbaðið
að bragði. Með dælunni má blanda í hvert glas á 10 sek.
5. 48 stunda gerjun.
Vatnsbaðið er handhægt, því að hægt er að meðhöndla
hvert meltiglas fyrir sig, meðan á gerjun stendur, og án þess
að kæla þau um of. Hvert meltiglas er tekið upp og hrist
varlega þrisvar á dag til að sökkva og blanda heysýninu.
Við höfum séð, að sýninu hættir til að fljóta ofan á við
gerjunina vegna lofttegunda, sem myndast, og því er nauð-
synlegt að hrista í glösunum til að halda jafnri gerjun.
18