Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1985, Blaðsíða 33
BÆKUR í VÍÐIDALSTUNGU OG Á ÞINGEYRUM
33
handritum frá 19du öld, sjá Skrá III 471, 472. Hinsvegar er sagan
nefnd Möttuls saga í Add. 4859, bók úr Vigur sem PVíd. hefur átt,
sjá bls. 40.
Það ber ósjaldan við að í Skýr. er vitnað til rita (flest sagna) sem
ekki er að ílnna í skránum B og C; þar á meðal eru þessi: Brönu rímur
(Skýr. 284), Egils saga og Asmundar (72, 512), Flóamanna saga
(175), Friðþjófs saga frækna (215), Grænlands annálar (512),
Gunnars saga Keldugnúpsfifls (596), Hálfdanar saga Eysteinssonar
(462), Hemings þáttur (513), Hungurvaka (130), ísfirðinga saga
(93), Jómsvíkinga saga (557-8, 598, 620), Jóns saga biskups (72),
Krukksspá (41, 593), Lilja (285, 287), Ljósvetninga saga (stundum
nefnd Reykdæla, 54, 144, 181, 237, 282, 502, 507, 518), Sörla saga
sterka (512), Vígaglúms saga (5, 72, 172, 173, 175, 176,225,232, 240,
269, 335, 576, 596), Þorgeirs saga og Þormóðar (599). Astæðan til að
þessi rit koma ekki fram í skránum getur verið sú að Páll hafi ekki átt
bækurnar sjálfur, heldur haft þær að láni, en því má heldur ekki
gleyma að skrárnar eru ófullkomnar og þegar margar sögur stóðu
saman á einni bók er stundum aðeins nafngreind sú sem fremst var.
Þrjár þeirra sagna sem nefndar voru, eru í Vigurbókunum sem getið
verður hér á eftir: Sörla saga sterka í Add. 4857, Gunnars saga
Keldugnúpsfifls og Vígaglúms saga í Add. 4868.
í KatAM er Páls Vídalíns víða getið, sem sjá má af mannanafna-
skránni þar aftan við. Hann hefur í viðskiptum við Arna Magnússon
ekki einlægt verið þiggjandi, heldur einnig veitandi. Leifar af
sundurtættunr skinnbókum senr hann komst yfir, stundum aðeins
stök blöð, stundum dálítið rneira (svo sem AM 657 a-b 4to), hefur
hann fært eða sent Árna. Ein gjöf hans, handritið AM 186 4to, hefur
inni að halda Kristinn rétt og statútur, senr líklegt væri að Páli hefði
þótt vænna um að eiga sjálfur en án að vera. Hungurvaka „frá Páli
lögmanni“ er í AM 408 e 4to (sbr. Byskupa sögur, 1938, bls. 47); um
hana segir Árni (KatAM I 611) að hún hafi verið aftast í handriti þar
sem fremst var Knytlinga saga (líklega AM 1006 4to, sbr. Sögur
Danakonunga bls. xxiv). Óheila rímnabók á skinni, komna frá Vigur,
gaf Páll Árna á alþingi 1705; hún hefur síðan glatazt (BiblArn XXXI
241). Þá má og nefna að AM 148 8vo (Kvæðabók úr Vigur) hefur
Árni fengið að gjöf frá Páli.
3