Frjáls verslun - 01.12.1959, Síða 8
yrðum fyrir innflutningi er fullnægt. Hverja vöru-
sendingu, það er allar þær vörur, sem koma til
landsins skráðar á sama farmskírteini, skal toll-
afgreiða í einu lagi og getur eigandi því ekki tekið
til sín hluta sendingar, þótt liann hafi aðeins þörf
fyrir lítinn hluta hennar að sinni. Þetta hefir það
í för með sér, að vörur liggja oft óþarflega lengi
í geymslum skipafélaganna eða flugfélaganna. Oft
á tíðum er það ákveðið lágmark, sem hægt er að
fá keypt, en það geta jafnvel verið birgðir til langs
tíma. Ef um tollvörugeymslu væri að ræða væri
hægt að flytja vörur inn í hana og taka síðan eftir
hendinni. Eg skal nefna dæmi, sem ég þekki sjálfur
frá mínum eigin viðskiptum.
Filmur eru pantaðar, afgreiðsla er óviss, þær
koma jafnvel í september í stað þess að koma í
maí eða júní, þegar mest voru not fyrir þær. Birgðir
hafa minnkað svo, að það vantar e. t. v. eina
tegund, 35 mm filmur, yfir vetrarmánuðina og ])á
sérstaklega fyrir jólin, en notkun á filmum á vet-
urna er mjög lítil. Nú er um að ræða vörusend-
ingu, sem greiða þarf af aðflutningsgjöld að upp-
hæð kr. 200.000, og er því mjög bagalegt að þurfa
að leggja út svo mikið fé til þess að taka út lítinn
hluta, eða sem svaraði 10% af sendingunni. Ef til
væri tollvörugeymsla, myndi ég leysa filmurnar út
í banka og flytja þær þangað, flytja síðan eftir
hendinni jafnvel til mánaðarnotkunar og þar með
ekki festa ineira fé en það, sem ég þarf hverju
sinni.
Oft getur verið hentugt að kaupa í stærri stíl en
nú er venja, þá fæst oft meiri afsláttur. En til
þess að svo geti orðið er tollvörugeymsla nauð-
synleg. Það liafa komið fram skoðanir um, að ríkið
mundi ekki fá tolla sína grcidda eins fljótt, cf um
tollvörugeymslu væri að ræða, en það munu allir sjá,
sem hugsa málið, að hér væri aðeins um stundar-
fyrirbrigði að ræða. Þannig myndu tolltekjur e. t. v.
verða lægri fyrstu mánuði eftir að tollvörugeymsla
væri stofnuð, en síðan myndi að sjálfsögðu allt fær-
ast í eðlilegt liorf aftur.
Það má segja, að eins og ástandið er í dag, hvet-
ur það innflytjendur til að leysa vörur úr tolli
eins fljótt og auðið er eða jafnharðan og þær koma
til landsins, en eins og getið er um áður, er fjár-
festingin orðin svo mikil í þessum vörum og slík
rekstrarfjárvandræði ríkjandi, að mörg fyrirtæki
geta ekki gert þetta eins fljótt og skyldi.
í sumum löndum er það krafa tollyfirvaldanna
eða skipafélaganna, að allar vörur verður að leysa
út innan hálfs mánaðar frá því að þær koma til
landsins. Sem betur fer hefir slíks ekki verið kraf-
izt hér, enda mundi mörgum reynast það erfitt,
hins vegar er það augljóst, að það kostar mikið
að láta vöruna liggja í vikur, mánuði eða jafnvel
allt að því ár hjá skipafélaginu. Það er fyrst og
fremst vaxtatap að hafa greitt vöruna, ef aftur á
móti hefði verið hægt að taka út hluta af henni í
einu, væri hún ef til vill öll seld á tímabilinu.
1 öðru lagi eru geymslur skipafélaganna ekki það
góðar, að innflytjendur geti verið öruggir um að
vörur þeirra skemmist ekki og er þá sérstaklega
að geta þess, að vegna hinna öru flutninga þarf
meira og minna að færa til vörur í pakkhúsunum,
en t. d. brothættar vörur eru oft ekki nægjanlega
merktar.
í þriðja lagi eru ýmsar vörur geymdar úti, sem
ekki þarf ao saka í góðri tíð, en um leið og veður
fara að spillast verða þessar vörur oft fyrir skemmd-
um.
Eitt mikilvægt .atriði enn getur orðið liður í notkun
tollvörugeymslu hér. Það er „consignations-Iager“,
en eins og ástatt er í dag eru þeir almennt ekki
leyfðir. Þær reglur eru í gildi, að allar vörur sem
fluttar eru til landsins, skuli greiddar fyrirfram, en
að sjálfsögðu þarf að breyta þessu að einhverju
leyti um leið og tollvörugeymsla yrði sett upp.
Mörg fyrirtæki erlendis, hafa boðið umboðsmönn-
um sínum hér að senda vörur hingað, ef þeir fengju
heimild til að hafa þær hér í „consignation“. Þetta
tíðkaðist nokkuð áður, sérstaklega þó með varahluti
til véla, og væri ekki óheppilegt að eiga hér liggj-
andi ýmsar rekstrarvörur, varahluti í vélar báta-
flotans eða í bifreiðir og geta tekið þær út eftir
þörfum og greitt þær þá fyrst ásamt aðflutnings-
gjöldum.
Starfræksla tollvörugeymslu
Ég vil nú lítillega Iýsa því, hvernig ég álít heppi-
legast að tollvörugeymslu yrði komið hér upp og
hún starfrækt. Ég álít heppilegast, að um hana
yrði stofnað hlutafélag, af innflytjendum og iðn-
rekendum, skipafélögum, flugfélögum og öðrum,
sem áhuga hefðu á málinu. í þessari tollvöru-
geymslu yrði komið fyrir geymslum, eða básum,
er hlutaðeigandi aðilar fengju leigða jafnframt al-
menningi, cf á þyrfti að halda. Þessi tollvöru-
geymsla tæki einnig á móti vörum til geymslu frá
öðrum en hluthöfum, ef óskað yrði eftir.
1 tollvörugeymslu þurfa að vera forðageymslur,
8
FR.TÁLS VHRZLUN