Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1959, Page 20

Frjáls verslun - 01.12.1959, Page 20
Áratug síöar, eða 19.57, frestaði stjórnin greiðslu á stórum bluta ríkisskuldabréfa um- tvo áratugi, og átti eng? vexti að greiða á því tímabili. Þetta er gott dæmi um þá fórn, sem rússneska þjóðin hefur orðið að færa vegna stefnu stjórnarinnar í efnahags- og fjármálum. Jafnvel í einræðisþjóðfélagi er ómögulegt að sópa öllum fjármálavandræðum undir ríkisábreiðuna og láta svo sem þau séu ekki þar. Ekki bætir það heldur úr veilunum í gengis- málunum, þó að svartamarkaðsbraskararnir séu liandsamaðir. Kaupmóttur launa Til þess að fá nokkra hugmynd um framfærslu- kostnað í Sovétríkjunum er rétt að athuga verð á nokkrum vörutegundum. i búðargluggum er karl- mannsföt, sem kosta frá 1.200 til 2.000 rúblur. Sæmilega góð karlmannsföt, á 2.000 rúblur, kosta því venjulcgan verkamann allt að þriggja mánaða kaup, og er þá lítið eftir til annarra kaupa. Verka- maðurinn er eitthvað betur til fara nú en hann var fyrir fáum árum, en hann er ennþá fátæklega klæddur á okkar mælikvarða. Skvrta kostar hann frá 70 upp í 300 rúblur, þ. e. tveggja til tiu daga kaup, og góðir skór sjö til átta daga kaup. Nælon- sokkar á konuna hans kosta hann eins dags kaup og kvenskór úr leðri vikulaun. Til kaupa á reið- lijóli eða borðútvarpi þarf hann meiri hlutann af mánaðarlaunum sínum. Húsaleigu og fleira, eins og t. d. læknishjálp, grciðir ríkisstjórnin hins vegar niður, svo að bein útgjöld verkamannsins á því sviði eru ekki ýkja mikil. Ilúsnæðisvandræði eru mjög mikil, þótt stjórnin hafi bætt þar töluvert úr. í borgunum búa flestir í samfélagsbyggingum, þar sem fjórir eða fleiri eru um hvert herbergi. Baðherbergi og eldhús hafa menn sameiginlega. Oll íbúðarhús eru eign ríkis- ins að undanteknum smáhúsum í úthverfunum. Jafnvel nýjustu íbúðirnar eru langt fyrir neðan almennar kröfur manna í Bandaríkjunum, og frá- gangu’r á smíði þeirra er oft lélegur, veggir sprungn- ir, þök lek og fleiri smíðagallar. Ýmis heimilistæki eins og ísskápar eru munaður. Árið 1956 voru framleiddir aðcins 214.000 ísskápar í landinu, en sama ár voru framleiddir hér um bil 3.700.000 ís- skápar í Bandaríkjunum, en þá áttu 96 af hundraði af öllum fjolskyldum í landinu ísskápa fyrir, eða alls 45.000.000. Útgjöld rússneskra verkamanna eru yfirlcitt mikil og lífskjör þeirra eru langtum lélegri en lífskjör starfsbræðra þeirra í Bandaríkjunum. Samanburður við fótækustu löndin Enda þótt lífskjör manna í Sovétríkjunum séu mjög léleg niiðað við kjör manna í Bandaríkjunum, er ekki ólíklegt, að íbúar hinna vanþróuðu landa leggi annan mælikvarða á þau en við. Margir full- trúar þessara landa sækja nú Rússland heim, og ekkcrt er sennilegra en að þeim þyki mikið til um það sem þeir sjá þar. Árið 1958 komu um það bil 4.000 manns frá ýmsum þessara landa til Sovét- ríkjanna og leppríkja þeirra til iðnþjálfunar, og svipaður fjöldi sovézkra tæknifræðinga var sendur til þeirra. Yafalaust telja þessir menn lífskjör í Sovétríkjunum góð, miðað við ástandið í löndum þeirra. Og það er ckki ósennilegt, að þeim finnist vandamál, sem þeir eiga við að stríða heima fyrir í sambandi við menntunarskort manna, vannær- ingu og illan aðbúnað, skyldari vandamálum Rússa en okkar Bandaríkjamanna. Það er jafnvel hugs- anlegt, að þeir komist. að þeirri niðurstöðu, að Sovétríkin séu betra dæmi um það, sem þeir geti áorkað í efnahagsmálum hjá sér, og því getur far- ið svo, að þeir taki sér þjóðskipulag kommúnista til fyrirmyndar, þótt svo það svipti menn efnalegu, pólitísku og trúarlegu frelsi. í löndum, þar sem allur fjöldi rnanna er ólæs og óskrifandi og fátækt mikil, cr sjálfsagt ekki ástæða til að ætla að menn skilji eða kunni að rneta þingræðisstjórn og al- mennt frelsi; þar er þetta ef til vill ekki talið eins áríðandi og vandamál í sambandi við ófullnægjandi fæðu, hiisnæði og heilbrigði og almenna fátækt. Þcssir menn komast ef til vill líka að þeirri niður- stöðu, að það séu eingöngu ríkisstjórnirnar í þcss- um löndum, sem hafi aðstöðu til að ráðstafa þeinr takmarkaða höfuðstól, sem fyrir hendi er, og verja honum til þeirra atvinnugreina, þar sem hans er mest þörfin. Það væri hörmulegt, ef þessar þjóðir kæmu ekki auga á að minnsta kosti hinar stærri veilur í þess- um niðurstöðum. Þegar sósíalistabyltingin varð í Rússlandi árið 1917, var ekki við sams konar fólks- fjöldavandamál að stríða og t. d. á Indlandi, þar sem mannfjöldinn er svo mikill, að ört gengur á takmarkaðar náttúruauðlindir landsins. 1 Indlandi fjölgar fólkinu svo hratt, að hætt er við að fram- leiðsluaukning, sein kann að verða, komi tæpast fram, nema rétt til þess að halda lífi í hinum nýju einstaklingum, og því verður það miklum erfiðleik- um háð að bæta lífskjör manna þar. Rússland var aftur á móti orðið þó nokkuð iðnaðarland fyrir árið 1917. Allir vinna að framleiðslunni Oft eru bæði karl og kona fyrirvinna sömu fjöl- skyldu. Talið er, að 45 af hundraði vinnandi fólks sé konur, og þær inna al’ hcndi hér um bil þriðjung starfa í byggingariðnaðinum og samgöngumálum og allt að helming starfa á ríkisbúunum. Þær vinna í stálverksmiðjum, leggja múrsteina og vinna erf- iðustu vegavinnu. — Nú skyldi maður ætla, að úr 20 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.