Frjáls verslun - 01.12.1959, Page 44
IBM-G32, rafeindareiknivél, með „perluminni" og tíu-stafa teljurum, og sjálfvirkri útskrift á öllum
reiknuðum upphæðum
þar til gerða reiti, sem prentaðir eru á spjaldið.
Síðan er spjaldinu rennt gegnum vél, sem jneð
rafeindaútbúnaði „les“ úr strikunum og gatar
sjjjald samkvæmt J)ví (grafítstrikin leiða rafmagn
en það gerir pappírinn ekki).
Þriðja aðferðin er sú, að algerlega sjálfvirkum
götunarútbúnaði er komið fyrir í sambandi við
vigtir eða önnur mælitæki, eða t. d. búðarkassa,
og liggja Jiá frumheimildirnar fyrir gataðar þegar
frá upphafi. Eins og vikið mun að hér á eftir, eru
einnig möguleikar á að gata samtímis því, sem
reikningar t. d. eru skrifaðir út.
Heimildir, sem einu sinni hafa verið gataðar á
IBM-spjöld, má á sjálfvirkan hátt flytja af einu
spjaldi á annað eftir frjálsu vali, hvort sem er all-
ar heimildirnar eða hluta þeirra, á sama eða nýjan
stað miðað við eldra spjaldið.
Ef upplýsingar, sem hentugt Jjykir að hafa á
sama spjaldi, liggja fyrir gataðar í tveimur eða
fleiri spjaldabunkum, þá er hægt, og fljótlegt, að
gata Jrær yfir á ný spjöld, þar sem frjálst val er
um röð þeirra, einnig á sjálfvirkan hátt. Undir
slíkum kringumstæðum eru eldri spjöldin, ásamt
auðum spjöldum, sett í vél (lleproducer), sem sér
um götunina.
Þegar spjöldin hafa verið götuð og „próflesin“,
liggja þau sjaldnast í þeirri röð, sem hentug er til
úrvinnslu þeirra talnaheimilda, er þau geyma, og
er ])á komið að öðrum lið Jjeirrar skýrgreiningar
bókhalds, sem gefin er hér að framan: röðun heirn-
ildanna. Spjöldunum cr raðað eftir t. d. dagsctn-
ingu, vörutegund, reikningsnúmeri eða öðrum heim-
ildum, sem á Jjau kunna að vera gataðar.
Röðun spjaldannct
Röðunin fer fram í sjálvirkri vél, raðara, og er
44
FRJÁLS VERZLUN