Frjáls verslun - 01.02.1968, Qupperneq 14
1-4
FRJALS VERZLUN
UTAN AF
LANDSBYGGÐINNI
VALBJÖRK hf. opnaði nýja húsgagnaverzlun í
Geislagötu 28 á Akureyri í nóvember sl., í nýju og
glæsilegu húsnæði. Er skammt stórra högga á milli
hjá þessu fyrirtæki norðanmanna, því að fyrir um
ári opnaði það verzlun fyrir framleiðslu sína í
Reykjavík.
Auk þessarar nýju verzlunar tók fyrirtækið í
notkun nýtt húsnæði á tveimur hæðum og er neðri
hæðin um 600 fermetrar en hin efri um 400 fer-
metrar. Kostuðu þessar framkvæmdir um 9—10
milljónir kr. Valbjarkarhúsgögnin hafa hlotið við-
urkenningu og njóta vaxandi vinsælda, og er þau
m. a. að finna í Loftleiðahótelinu.
Eigendur Valbjarkar eru Jóhann Ingimarsson,
sem jafnframt er framkvæmdastjóri, Torfi Leósson,
framleiðslustjóri og Benjamín Jósefsson, sölumað-
ur, en verzluninni í Reykjavík veitir Erla Gunnars-
dóttir forstöðu.
NE)URSUÐUVERKSMIÐJA REIST í
GRUNDARFIRÐI
Frá Grundarfirði berast þær fregnir, að nú sé
verið að koma þar á laggirnar niðursuðuverksmiðju,
sem sjóða á niður lifur og fleiri sjávarafurðir, m. a.
krækling. Nokkrir útgerðarmenn og fleiri eru eig-
endur þessarar verksmiðju, en framkvæmdastjóri
er Jóhannes Arason. í samvinnu við norska aðila
hefur framleiðslu þessarar verksmiðju verið tryggð-
ur markaður víða um lönd.
Hraðfrystihús Grundarfjarðar hf. var mestan
tíma ársins lokað, og eru fjárhagsörðugleikar þess
sagðir miklir. Miklar skuldir hafa hlaðizt upp hjá
því, m. a. vegna vinnulauna og hráefnis, og er ekki
séð fyrir endann á því, hvernig úr kann að rætast.
Á hinn bóginn hefur Fiskverkunarstöð Soffanías-
ar Ceeílssonar tekið á móti fiski í allt sumar og allt
til þessa, en það hefur mjög háð starfsemi stöðvar-
innar, að þar er ekki aðstaða til vinnslu á beinuni
og lifur.
FJÁRHAGSÁÆTLUN AKUREYRAR
Fj árhagsáætlun Akureyrar hefur verið lögð
fram. Er í henni gert ráð fyrir að niðurstöðutölur á
rekstraráætlun verði rúmar 113.4 milljónir króna.
Er það 13.4% hærra en í fyrra. Mun hækkunin að
mestu renna til aukinna rekstursútgjalda, en gert
er ráð fyrir að því sem næst sömu upphæð verði
varið til eignabreytinga og í fyrra, eða 15 millj. kr.
í tekjuáætlun er ekki gert ráð fyrir auknum tekj-
um frá fyrra ári nema í útsvörum, sem áætluð eru
17% hærri.
SÍS-VERKSMIÐJUR Á AKUREYRI
SELJA TIL RÚSSLANDS
í desember voru undirritaðir samningar milli
tveggja SÍS-verksmiðjanna á Akureyri — Gefjun-
ar og Heklu annars vegar og Sovétmanna hins veg-
ar um sölu á peysum og teppum fyrir rúmar 35
milljónir króna. Er þessi samningur í framhaldi af
fyrri samningum sömu aðila.
Tryggir samningur þessi verksmiðjunni mikil
verkefni á næstunni, og hefur gengisfellingin bætt
samkeppnisaðstöðu verksmiðjunnar varðandi út-
flutning. En fjárhagsvandræði verksmiðjanna á
innanlandsmarkaði eru þó enn óbreytt hvað snert-
ir sölu á innanlandsmarkaði, sem er að sjálfsögðu
stór hluti framleiðslunnar.
3 TOGSKIP AFLA HRÁEFNIS FYRIR
SIGLUFJÖRÐ
Tunnuverksmiðjan á Siglufirði tók til starfa
skömmu upp úr áramótum, og starfa þar nú 40—45
manns. Að minnsta kosti þrjú togskip verða gerð
út frá Siglufirði til að afla frystihúsinu þar hráefn-
is, og eru það bv. Hafliði, skuttogarinn Siglfirðing-
ur og vb. Fanney. Eru skip þessi öll mönnuð Sigl-
firðingum. Þá benda og líkur til þess, að vb. Hring-
ur verði gerður út á línuveiðar. Ráðgert er, að
niðurlagningarverksmiðjan taki til starfa að nýju
einhvern tíma í þessum mánuði og veiti mörgum
atvinnu, og ætti þá atvinnuleysinu, sem sagt hefur
til sín á Siglufirði í vetur, að vera bægt frá að
mestu.
28 LÓÐUM ÚTHLUTAÐ Á AKUREYRI
Nýlega úthlutaði Akureyrarbær 28 lóðum sam-
kvæmt umsóknum, sem borizt höfðu fyrir tilskil-
inn tíma. Hefur þá alls verið úthlutað 50 bygging-
arlóðum fyrir einbýlishús á þessu ári, en af þeim
mun þó fimm lóðum verða skilað aftur. Lætur nú
nærri að hægt sé að fullnægja lóðaeftirspurn á
Akureyri.
FRYSTIHÚS í GRENIVÍK TILBÚIÐ
Undanfarið hefur frystihús verið 1 smíðum í
Grenivík og er smíði þess nú að mestu lokið. Má
heita að aðeins sé beðið eftir því að róðrar hefjist,
svo að það geti hafið starfrækslu sína.
Gerðir hafa verið út tveir 14 tonna bátar frá
Grenivík, en nýlega festu fjórir ungir menn þar
nyrðra kaup á 35 tonna bát, og bætist hann í flot-
ann innan skamms.
„GÓÐUR ER SOPINN"
Áfengisneyzla á mann jókst um 2.6% á s.l. ári
miðað við 1966, og nam sala Áfengis- og tóbaks-
verzlunarinnar samtals um 543 millj. króna. Var
neyzlan á mann 2.38 miðað við 100% áfengi, en
var fyrir fimm árum 1.93 lítrar.
Er hér aðeins átt við sölu Áfengis- og tóbaksverzl-
unar ríkisins, og myndi smásala á vínveitingahús-
um að sjálfsögðu, — væri hún talin með, — hækka
þá upphæð mikið, er menn borga fyrir áfengi.