Frjáls verslun - 01.02.1968, Blaðsíða 21
FRJÁLS VERZLUN
21
um. í Finnlandi eru lög um lokun-
artíma sölubúð'a nú í endurskoð-
un. Er gert ráð fyrir því í frum-
varpi að hinum nýju lögum, að
verzlanir megi að jafnaði vera
opnar til kl. 8 á kvöldin. En einn
dag í viku megi vera opið til kl.
9 e. h. og á laugardögum til kl. 5
e. h. Norsku lögin um lokunar-
tíma sölubúða heimila bæjarfélög-
um að ákvarða lokunartímann, á
sama hátt og íslenzku lögin gera.
í 70% af bæjarfélögunum í Nor-
egi er lokað kl. 6 á daginn, en í
10% þeirra er leyfilegt að hafa
opið til kl. 9 á kvöldin.
Síðustu árin hafa öll mikilvæg-
ustu lög á hinum Norðurlöndun-
um, sem varða hagsmuni neyt-
enda, verið endurskoðuð. Það hafa
verið sett í lögin ákvæði til að
tryggja betur en áður hagsmuni
neytenda. Þetta á t. d. við um lög
til varnar gegn óréttmætum verzl-
unarháttum, kaupalög, lög um af-
borgunarverzlun, lög um lokunar-
tíma sölubúða, lög um ferðaskrif-
stofur o. fl. Norðurlandaráð hefur
beitt sér fyrir því, að löggjöf um
neytendamál á Norðurlöndum öil-
um um þessi efni væru samræmd.
Hefur 1 því skyni starfað sérstök
nefnd, Nordisk Komité for Kon-
sumentspörgsmál, það er norræn
nefnd um neytendamálefni, sem
ísland hefur átt aðild að. Fulltrú-
ar íslands í nefnd þessari eru: Þór-
ir Einarsson, viðskiptafræðingur,
Björgvin Guðmundsson, viðskipta-
fræðingur og Sveinn Ásgeirsson,
hagfræðingur. Á vegum þessarar
nefndar hefur m. a. verið unnið
að því undanfarin ár að athuga
neytendafræðslu í skólum á Norð-
urlöndunum. En talið er mjög
mikilvægt, að skólarnir veiti sem
mesta fræðslu, er komið geti neyt-
andanum að haldi við vöruval. Er
þessari athugun nú að ljúka, en
ísland hefur tekið þátt í henni.
Mun innan skamms koma út ítar-
leg skýrsla um neytendafræðslu í
skólum á Norðurlöndunum öllum,
þar á meðal hér á landi, en á
grundvelli þeirrar skýrslu verður
unnt að gera tillögu um framtíðar-
Islenzk lög um neytenda-
vernd.
Þau íslenzk lög, sem veita neyt-
skipan neytendafræðslu í skólum.
Norræna samstarfið á sviði neyt-
endamála hefur náð til vörumerk-
inga. Á öllum hinum Norðurlönd-
unum hefur nú verið komið á fót
sérstökum stofnunum eða nefnd-
um til þess að sinna vörumerk-
ingarmálum. Ákveðið hefur verið
að koma á fót norrænum sam-
vinnunefndum fyrir vörumerk-
ingar í ákveðnum vörugreinum.
Undirbýr fsland nú þátttöku í því
samstarfi.
endum mesta vernd, eru lög um
varnir gegn óréttmætum verzlun-
arháttum, kaupalögin og lög um
verðlagseftirlit. Lögin um varnir
gegn óréttmætum verzlunarhátt-
um eru frá árinu 1933. Eru þau
mjög svipuð lögum á hinum Norð-
urlöndunum um sama efni. í þess-
um lögum segir, að óheimilt sé
hverjum þeim, sem selur vöru eða
hefur hana á boðstólum, að gela
út villandi upplýsingar um vöruna
til að hafa áhrif á eftirspurn henn-
ar eða sölu. Um allar auglýsingar,
hvort sem þær eru birtar í blöð-
um, tímaritum, útvarpi eða annars
staðar, skuli þess gætt, að þær
séu látlaust orðaðar, lausar við
skrum og hæpnar fullyrðingar, en
segi það eitt, sem satt er og rétt i
öllum greinum. Sérstaklega er
bannað í lögum þessum að setja
villandi upplýsingar um vöruna
sjálfa, umbúðir hennar eða auð-
kennismiða á auglýsingaspjöld,
reikninga, vöruskrár eða önnur
verzlunarskjöl. Villandi teljast auð-
kenni, sem gefa rangar hugmynd-
ir um framleiðslustað vörunnar,
um tegund hennar, tilbúning, efni,
samsetningu, gerð, eiginleika,
áhrif eða verðlag. Einnig teljast
villandi auðkenni, sem komið geta
kaupanda til að halda það, að all-
ur sá mismunandi varningur, sem
í verzlun er á boðstólum, stafi frá
sama framleiðslustað eða sé bú-
inn til á sama stað, þótt þessu sé
ekki svo varið nema að sumu leyti.
Þá teljast einnig samkvæmt lög-
um þessum villandi þau auðkenni,
sem segja ósatt um það, að varon
hafi hlotið viðurkenningu á sýn-
ingu eða hafi verið reynd af opin-
berum yfirvöldum eða notið með-
mæla þeirra eða njóti eða hafi
notið einkaleyfisverndar.
Kaupalögin, það er lögumlausa-
fjárkaup, eru frá árinu 1922. Þar
eru m. a. ákvæði um galla á seld-
um hlutum. í þeim lögum segir
GMúfílf
Nú er bara að vita, hvort þetta lieyrir undir neytendasamtökin
eða fuglaverndunarfélagið.