Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 35
FRJÁLS VERZLUN
35
30 þúsund króna
verðiaun
í nýstárlegrí
hugmyndasamkeppni
Eins og íram kom í síðasta tölublaði Frjálsrar verzlunar,
hefur verið efnt til all nýstárlegrar hugmyndasam-
keppni fyrir ungt fólk á aldrinum 17—27 ára. Markmið
samkeppninnar er að vekja ungt fólk til umhugsunar
og virkrar athugunar á því, hvernig auka megi fjöl-
breytni í atvinnuvegum þjóðarinnar. Frjálsri verzlun
hefur verið falin umsjón og framkvœmd samkeppninn-
ar, en sérstök dómnefnd mun úrskurða, hver hljóta skuli
þau 30 þúsund króna verðlaun, sem heitið hefur verið
fyrir beztu hugmyndina.
Rétt er að vekja athygli á því, að hér er ekki um rit-
gerðarsamkeppni að rœða í venjulegum skilningi, held-
ur verður meira lagt upp úr, að hugmyndin sé góð, og
einnig að hún sé sett fram á ákveðnum grundvelli, sem
nánar er skilgreindur í keppnisreglunum, er birtust í
janúarblaði Frjálsrar verzlunar.
Hugmyndin er
aðalatriðið, en ekki
ritgerðin
Notið þetta
glæsilega
tækifæri
Rétt er að hvetja allt ungt og hugsandi fólk til þátttöku
í hugmyndasamkeppni þessari og setjast sem fyrst nið-
ur og íhuga hvaða framleiðslu- eða þjónustustofnanir
gœtu nú helzt orðið þjóðarbúinu að gagni, og hvernig
helzt mœtti auka fjölbreytni atvinnugreina þjóðarinnar.
Ritgerðum í hugmyndasamkeppnina átti að skila til
Frjálsrar verzlunar fyrir 31. marz, en dómnefnd hefur
nú ákveðið að veita frekari frest, til 30. apríl nœstkom-
andi. Ritstjórnarskrifstofur Frjálsrar verzlunar eru að
Óðinsgötu 4, 3. hœð, og er ritgerðunum veitt móttaka
þar, og einnig veittar nánari upplýsingar og leiðbein-
ingar um framkvœmd keppninnar.
Skilafrestur
er til
30. apríl 1968