Frjáls verslun - 01.02.1968, Blaðsíða 52
52
FRJALS VERZLUN
reksfjarðar. Árið 1960 flutti Flugfé-
lag Islands 2718 farþega til Isafjarð-
ar, en frá ísafiröi 2960. Árið 1967 nam
tala farþega til Isafjarðar 7439, en
frá Isafirði 7653. Hvað snertir Pat-
reksfjörð eru hliðstæðar tölur 266 til
og 299 frá árið 1960, en árið 1967
2151 til Patreksfjarðar og 2294 frá
staðnum. Vöruflutningar í lofti hafa
einnig aukizt til muna, þótt slíkir
flutningar séu dýrir. Árið 1960 flutti
Flugfélag Islands um 100 tonn til Isa-
fjarðar, en árið 1967 um 300 tonn til
Isafjarðar og tæp 100 tonn til Patreks-
fjarðar. Flugþjónustan heldur einnig
uppi áætlunarflugi til Þingeyrar og
önundarfjarðar. Samkvæmt Vest-
fjaröaáætluninni er ráðgert að veita
7,9 milljónum króna til Patreksfjarð-
arflugvallar og 27,2 milljónum til Isa-
fjarðarflugvallar.
Fyrir rúmum 3 árum kom lítil
sjúkraflugvéi til Isafjarðar. Flugvél
þessi var í eigu Guðbjörns Charlis-
sonar. Reksturinn gekk erfiðlega, en
Vestfirðingar sáu, hvílíka nauðsyn bar
til þess, að slík vél hefði aðsetur á
Vestfjörðum, og sameinuðust 30
hreppsfélög um rekstur hennar, og
stofnuðu Vestanflug h.f. Vélin hnjask-
aðist nokkuð í sumar leið, og er enn
eigi ljóst, hver framtíð hennar verð-
ur, en talið er fyrirsjáanlegt, að
rekstri sjúkraflugvélar á Vestfjörð-
um verði ekki haldið áfram, nema til
komi aðstoð hins opinbera á móti
framlögum sveitarfélaganna.
Nú eru 14 merktir sjúkraflugvellir
á Vestfjörðum, og unnt er að lenda
mun víðar, þannig að staðsetning lít-
illar flugvélar á Vestfjörðum eykur
mjög á samgönguöryggi.
Samgöngur á sjó eru alls ófullnægj-
andi. Skipaútgerð ríkisins er eini að-
ilinn, sem annast sjóflutninga að ein-
hverju marki, en skortir bæði skipa-
kost og fjármagn. Hringferðir skipa
Skipaútgerðar ríkisins eru á 10 daga
fresti eða svo, þegar bezt lætur. Nú
er sem kunnugt er verið að bæta nýj-
um skipum við kost Skipaútgerðar-
innar, og vænta Vestfirðingar full-
komnari samgangna á sjó, þegar það
er orðið. Djúpbáturinn Fagranes ann-
ast alla flutninga um Isafjarðardjúp,
og fer hann reglulegar ferðir tvisvar
í viku. Vill það oft verða fremur
seinlegur flutningsmáti, kaupstaða-
ferð tekur þannig hálfa viku. Einnig
heldur báturinn uppi ferðum til kaup-
túnanna í V.-lsafjarðarsýslu yfir
vetrarmánuðina, eftir að fjallvegir
lokast.
Vestfjarðaáætlunin svonefnda er
byggðaráætlun, sem gerð var af
norskum og íslenzkum sérfræðingum
og ætlað það hlutverk að bæta hag
íbúanna og stöðva brottflutning úr
þeim landshluta. Sérfræðingarnir
komust að þeirri niðurstöðu, að meg-
instefnan í byggðamálum Vestfirð-
inga hlyti að vera að efla þar byggða-
kjarna, sem gætu boðið upp á tiltölu-
lega fjölbreytta þjónustu og myndað
grundvöll að fjölbreyttara atvinnu-
lifi. Þeir byggðakjarnar, sem um get-
ur verið að ræða, eru Isafjörður
annars vegar og Patreksfjörður hins
vegar. Fyrsti hluti hinnar almennu
áætlunar um Vestfirði var samgöngu-
málaáætlun, sem kom til fram-
kvæmda í ársbyrjun 1965 og mun
standa til ársins 1969. Fjár til að
framkvæma hana var aflað með láni
frá Viðreisnarsjóði Evrópu í Strass-
borg. Áætlun þessi er í raun réttri
hvergi til á einum stað og illmögulegt
að meta framkvæmdir einstakra ára.
En tölur þær, sem við birtum hér,
voru áætlaðar upphæðir til einstakra
kostnaðarliða, og verður ekki um
það sagt á þessu stigi málsins, hvort
þeir standast eða ekki.
Gert er ráð fyrir framkvæmdum
fyrir alls 202,5 milljónir króna, þar
af áttu 91,1 milljón að fara til vega-
gerðar, 38,6 til flugvallagerðar og
72,8 milljónir til hafnargerðar.
Nánari sundurliðun er þessi:
Vegir:
Vestfjarðavegur sunnan Þing-
mannaheiðar 17,6.
Vegur frá Patreksfirði til Flugvall-
ar 1,0.
Bíidudalsvegur 6,6.
Vestfjarðavegur um Gemlufjalls-
heiði 4,5.
Djúpvegur að Ísafjarðarflugvelli4,9.
Bolungarvíkurvegur 10,6.
Súgandafjarðarvegur 6,6.
Jarðgöng í Breiðdalsheiði 16,4.
Vestfjarðavegur um Breiðdalsheiði
13,1.
Flateyrarvegurinn 6,6.
Öfyrirséður kostnaður 8,1.
Flugmál:
Patreksfjarðarflugvöllur 7,9.
Isafjarðarflugvöllur 27,2.
Annað 0,3.
Ófyrirséður kostnaður 3,2.
Hafnir:
Patreksfjörður 12,6.
Tálknafjörður 0,7.
Bíldudalur 11,0.
Þingeyri 11,5.
Flateyri 7,0.
Suðureyri 5,0.
Bolungarvík 9,1.
Isafjörður 10,6.
Súðavík 0.6.
Ófyrirsjáanlegur kostnaður 4,7.
Sem fyrr segir sýna töflur þessar
fyrirfram áætlaðan kostnað við ein-
stakar framkvæmdir. Víða miðar
framkvæmdum vel, og er ráðgert að
Ijúka þessum hluta Vestfjarðaáætiun-
arinnar árið 1969. Þá taka væntan-
lega við aðrir þættir hennar, þólt
ennþá bóli ekki á áþreifanlegum hug-
myndum urn það, hvert næsta skref
muni verða. En það var einróma álit
allra viðmælenda blaðsins, að sam-
gönguáætlun hefði hleypt nýju lífi i
Vestfirðinga og sannað þeim, að
áframhaldandi búseta á Vestfjörðum
væri þó álitin einhvers virði.
1