Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 57
FRJÁLB VERZLUN
57
VIÐSKIPTALÖND
BAIMDARIKIIM ERL MIKILVÆGLR
MARKAÐLR FVRIR
Í8LEIMZKAR ÍJTFLLTIMINGSVÖRLR
A undanförnum árum hafa við-
skipti Islands og Bandaríkjanna
verið stöðug og báðum aðilum
hagstæð. Hlutur Bandaríkjanna í
utanríkisverzlun íslands hefurver-
ið nokkuð fastur, eins og eftirfar-
andi tafla sýnir:
HundraOshlutdeild Hundraöshlutdeild
Bandaríkjanna i Bandaríkjanna í
heildarinnflutn- heildarútflutn-
ingi til Islands ingi frá lslandi
Ár 1962 14.0 14.6
— 1963 12.0 15.6
— 1964 11.9 16.0
— 1965 12.9 16.1
— 1966 13.6 16.1
— 1967 15.4 15.1
Ferðamannastraumurinn styrkir
verzlunarbönd Bandaríkjanna og
íslands í vaxandi mæli. Árið 1967
voru tekjur íslands af bandarísk-
um ferðamönnum 51.5% af heild-
arferðamannatekjum þjóðarinnar,
og á fyrstu 10 mánuðum ársins
ferðuðust rúmlega 2600 íslending-
ar til Bandaríkjanna. Má búast
við, að ferðamannastraumurinn til
Bandaríkjanna aukist á næstu ár-
um vegna ráðstafana, sem gerðar
hafa verið til að auðvelda ferðir
þangað.
Bandaríkin eru mikilvægur
markaður fyrir íslenzkar útflutn-
ingsvörur. Árið 1966 voru þau
stærsti innflytjandi íslenzkra af-
urða, en árið 1967 voru þau í öðru
sæti. Fiskafurðir námu 99.3%
heildarútflutnings íslands til
Bandaríkjanna árið 1966, en
96.4% árið 1967. Útflutningsverð-
mæti íslenzkra fiskafurða til
Bandaríkjanna féll árið 1967,
sumpart vegna lægra verðs og
sumpart vegna aukinnar sam-
keppni annarra fiskveiðiþjóða og
minnkandi eftirspurnar.
Heildarútflutningsverðmæti ís-
lenzkra afurða, sem fluttar voru
út til Bandaríkjanna árið 1967,