Frjáls verslun - 01.02.1968, Qupperneq 62
62
FRJÁLS VERZLUN
Kennarar gera sér far um að fylgjast sem bezt með sérhverjum nem-
anda.
gjarna heyra frá verzlunarmönn-
um, hvað þeir segðu um þessa
hugmynd. En þetta er nú bara dá-
lítið sem ég hef verið að hugsa
um, það þarf töluverðan undir-
búning undir svona starfsemi, og
svo auðvitað mikla peninga. En
mér finnst það dálítið einkennilegt
að við höfum aldrei fengið nógu
marga nemendur í enskar bréfa-
skriftir til þess að setja upp
deild. Enginn vafi er þó á að slík
kennsla er nauðsynleg.“
„Hvað er dagurinn langur hjá
ykkur?“
„Hann er oft nokkuð langur. Þú
verður að hafa í huga að þetta er
skóli sem fólk stundar svo til ein-
göngu í frístundum sínum. Og iri-
stundirnar eru oftast nær ekki
margar nema á kvöldin. Það eru
þó hjá okkur margar húsmæður,
sem losna fyrr á daginn svo að
við höfum kennslu frá kl. 2 til kl.
23. Vinsælustu tímarnir eru frá
kl. 19 til kl. 23. Margir nemenda
okkar hyggja á frekara nám er-
lendis og þar sem við erum í góð-
um samböndum við skólayfirvöiri
víða, tökum við að okkur bréfa-
skriftir fyrir þetta fólk og hjálp-
um því við að skipuieggja og und-
irbúa námið.“
„Áttu þér einhvern framtíðar-
draum í sambandi við þennan
skóla?“
„Já, ekki get ég neitað því. Eg
vildi geta byggt nýjan skóla frá
grunni í nýja miðbænum. Það
ætti ekki bara að vera málaskóli,
við hann ættu að vera fleiri deild-
ir, og hann ætti að vera búinn full-
komnustu kennslutækjum sem völ
er á í dag, m. a. segulbandsdeild.
Ég lét á sínum tíma útbúa eiria
kennslustofuna hérna með það í
huga að nota hana sem segul-
bandsdeild, en af ýmsum ástæðum
höfum við ekki talið rétt að stofna
slíka deild enn.
„Og þú ert ánægður?"
„Ég vildi að vísu hafa getað gert
miklu meira, en ég er samt ánægð-
ur með að hafa fengið tækifæri
til að vinna upp skólann styrkja-
laust. Þetta er vinna, hörkuvinna,
en það gerir ekki svo mikið t.il
þegar maður hefur ánægju af
henni.“
J. P. ELDHIJSIIVNRÉTTINGAR
eru landsþekkt gæðavara og hafa
alla þá kosti sem þarf í nýtízkuleg
og fullkomin eldhús. —
AÐEIIVS IJRVALS EFIXII NOTLÐ
FAST AÐEIINIS I:
HUSGAGNAVINNUSTOFU
JÓNS PÉTURSSONAR,
SKEIFUNNI 7 - SÍMI 31113