Frjáls verslun - 01.02.1968, Side 70
FRJÁLS VERZLUN
va
FRÁ
RITSTJÓRN
ALVARLEGT ÁSTAND ATVINNUVEGANNA.
Tilgangur gengislækkunarinnar var að rétta
hag útflutningsatvinnuveganna, og varð rikið
einnig að leggja fram fé til styrktar. Var því
fé haldið í lágmarki, og dugði það ekki til að
standa undir kostnaði í þessum atvinnugrein-
um.
Jafnframt því, sem gengislækkunin bætti hag
útflutningsatvinnuveganna, þá varð innflutn-
ingsverzlunin fyrir stórfelldu tjóni, m. a. vegna
hæklcunar á erlendum vörukaupaslculdum og
hækkunar reksturskostnaðar. Á sama tíma og
verzlunin þurfti að taka á sig þetta áfall voru
settar á hana óraunliæfar álagningarreglur, sem
nægðu hvergi nærri til þess að standa undir
eðlilegum verzlunarkostnaði.
Iðnaðurinn hefur orðið að keppa við frjálsan
innflutning við erfiðar aðstæður, og eru honum
ekki búin þau skilyrði, sem eðlileg mega teljast.
Þar sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir áfalli,
sem leiddi af sér 9% minnkun þjóðartekna á
mann, er hagur atvinnufyrirtækja bágborinn.
Vaknar þá sú spurning, hvort samningar um
kauphækkun hafi ekki lítil áhrif á afkomu laun-
þega. Svo mun rétt vera, því afkoma einstakl-
ingsins fer fyrst og fremst eftir ytri möguleik-
um fyrirtækja til þess að starfa á eðlilegan hátt
og veita þeim, sem við þau starfa, hagstæð kjör.
Hvor vísitöluuppbótin, sem samið var um
eftir verkföllin á dögunum, hrindir af stað
nýrri verðbólguskriðu er óvíst, en gengislækk-
unin nær ekki tilgangi sínum, ef framleiðslu-
kostnaður og þar með launakostnaður fylgir í
kjölfarið.
Það tjón, sem verkfallið hefur skapað þjóð-
inni, er mikið og á erfiðum tímum.
Atvinnulífið verður að byggjast á skipulagðri
uppbyggingu og þrótti þeirra, sem við það fást.
Það verður að skapa þeim möguleika til þess
að reka atvinnufyrirtækin og þá um leið að
tryggja launþegum aultna vinnu.
Augljóst er, að vísitöluuppbæturnar eru at-
vinnuvegunum um megn, því að þeir geta ekki
bætt á sig auknum byrðum. Var því samkomu-
lag gert í trausti þess, að stjórnvöldum takist
að skapa þeim viðunandi starfsgrundvöll og
launþegum næga og örugga atvinnu.
FORSETAKJÖR.
Mörgum þyldr yfirlýsing Kristjáns Eldjárns
imi að hann gefi kost á sér til forsetakjörs
hafa komið furðu snemma, en henni fylgdi
sams konar yfirlýsing af hálfu Gunnars Thor-
oddsen, þótt hún hafi ekki átt að birtast fyrr
en um páska.
Framboðsfresturinn er ekki útrunninn fyrr
en að kvöldi hins 25. maí, og kjördagur er
ákveðinn 30. júní. Því er ekki nema eðlilegt, að
kjósendur velti þvi fyrir sér, hvað nú taki við,
— hvort kosningabarátta þessara tveggja
frambjóðenda sé þar með hafin fyrir alvöru
og eigi að standa sleitulaust næstu þrjá mánuði.
Það er líka ástæða til að hugleiða, hvort gei-a
megi ráð fyrir því sem sjálfsögðum lilut, að
fleiri menn bjóði sig elcki fram. Það er senni-
legast, en liggur þó ekki endanlega ljóst fyrir
fyrr en 26. maí, þegar framboðsfresturinn er
útrunninn. Með þetta í huga væri það ósann-
gjarnt, að í útvarpi og sjónvarpi hæfist fyrir
þann tíma einvígi hinna tveggja frambjóðenda.
Um beinan stuðning opinberra málgagna
stjórnmálaflokkanna við frambjóðendur verð-
ur tæpast að ræða í þessum kosningum. Þeir
þurfa því líklega að treysta á eigin útgáfustarf-
semi og stuðningsmanna sinna og fundahöld,
sem hvort tveggja kostar stórfé. En almenning
í landinu fýsir ekki að fram fari löng og hörð
kosningabarátta fyrir forsetakjörið, sem hlýtur
að einkennast meir af persónulegum ýfingum og
mannjöfnuði en aðrar almennar kosningar á
Islandi. Þess skal lika minnzt, að í þann mund
er framboðsfresturinn rennur út til forseta-
kjörs hefst hægri umferð á Islandi, og vegna
þeirrar breytingar er nú rekin ein mesta áróð-
ursherferð, sem um getur hérlendis, og er það
þjóðarnauðsyn, að vel takist. Það væru því mik-
il mistök, ef nú ætti að heyja samtímis kosn-
ingabaráttu, sem vel má bíða, og upplýsinga-
og fræðslustarfsemi, sem á brýnt erindi til
allra næstu vikur. Frambjóðendumir Gunnar
Thoroddsen og Kristján Eldjárn munu vitan-
lega undirbúa jarðveginn fyrir kjör sitt, en
sjálfum sér og öðrum geta þeir það bezt gert
að hefja kosningabaráttuna ekki opinberlega
fyrr en eftir 26. maí, þegar framboðsfrestur er
liðinn.