Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 12
FRETTIR
„ÍSLENSKT" BAKARÍ í BOSTON
Ágúst Gunnarsson, 29
ára bakari sem starfaði
lengi hjá Bakarameistar-
anum í Suðurveri, opnar
um miðjan desember nýtt
og glæsilegt bakarí í
Boston í Bandaríkjunum.
Ágúst hefur starfað hjá
stórbakaríi í Washing-
ton, Bakers Place, frá
miðju síðasta ári. Hann
hefur bryddað upp á
brauði og kökum, sem
eiga ættir sínar að rekja
til Islands, og slegið hafa
í gegn vestanhafs.
Ágústi bauðst fyrst árið
1990 að fara út til Banda-
ríkjanna og líta á aðstæð-
ur hjá Bakers Place. Hon-
um leist ekki nægilega
vel á sig. Um miðjan maí í
fyrra, árið 1992, fór hann
hins vegar út aftur — og
þá til starfa. í millitíðinni
hafði starfsemin breyst
verulega. Áður var Bak-
ers Place fyrst og fremst
stórt heildsölubakarí en
árið 1992 opnaði bakaríið
einnig margar búðir.
Ástæða þess að Ágúst
fór út má rekja til þess að
einn af þáverandi eigend-
Ágúst Gunnarsson, 29 ára bakari, opnar „íslenskt bakarí“
Boston um miðjan desember.
um Bakers Place er giftur
íslenskri konu og það var
hún sem bryddaði upp á
því að hann kæmi vestur
um haf til starfa.
„Mitt hlutverk var að
koma með evrópska línu í
brauð- og kökugerð hjá
fyrirtækinu. Hún byggist
á grófari og hollari brauð-
um, en tíðkast almennt í
Bandaríkjunum, og sam-
lagast vel auknum vin-
sældum heilsufæðis vest-
anhafs á síðustu árum.
Evrópsk bakarí baka
brauðin samdægurs fyrir
neytendur og eru brauðin
því ferskari fyrir vikið.“
Auk þess að koma með
úrval af grófum brauðum
ákvað Ágúst að bjóða
einnig upp á íslensk vín-
arbrauð, en þau þekkja
Bandaríkjamenn ekki,
svo og ömmu-snúða; kan-
elsnúða. Hvort tveggja
hefur mælst vel fyrir. Sal-
an á kanelsnúðunum er
komin yfir 1 milljón doll-
ara eða um 70 milljónir
íslenskra króna.
Bakaríið, sem Ágúst
opnar í Boston, á hann
með tveimur Bandaríkja-
mönnum, þeim Matthew
Carberry, sem var mark-
aðsstjóri hjá Baker
Place, og TimTurner sem
er viðskiptafræðingur.
Ekki er komið nafn á
fyrirtækið en það opnar í
400 fermetra húsnæði.
Að sjálfsögðu verður
íslenska og evrópska lín-
an höfð í fyrirrúmi í
bakstrinum enda gefst
hún vel. Bakaríið og búð-
in verða í einum stórum
sal þannig að viðskipta-
vinurinn sér bakarana að
störfum um leið og hann
kaupir brauðið og kök-
urnar. Ilmurinn, fersk-
leikinn, brauð og kökur á
brettum blasir þannig við
kúnnanum. Svona vilja
Bandaríkjamenn hafa
bakaríin.
Þess má geta að Ágúst
er sonur Gunnars Fel-
ixsonar, forstjóra Trygg-
ingamiðstöðvarinnar.
Jólavöruna í Tollvörugeymslu!
INNFLYTJENDUR FRESTIÐ GREIÐSLU Á VSK. 0G AÐFLUTNINGSGJÖLDUM.
Vivd
Frísvæði - Vörudreifingarmiðstöð
Free Zone - Distribution Center
„Við lifum ekki á tollum
einum saman, heldur alhliða
þjónustu við innflytjendur.“
Leitið frekari upplýsinga í síma 813411
m
12