Frjáls verslun - 01.10.1993, Side 17
Nokkur munur var á svörum
stjórnenda eftir stærð og umfangi
fyrirtækjanna sem þeir stjórna. Þann-
ig var mest fylgi við að skipta um
forstjóra að finna hjá stjórnendum í
fyrirtækjum sem eru með á milli 10 og
49 starfsmenn og veltu yfir 100 millj-
ónum króna. Sjö af hverjum tíu í þess-
um flokki sögðust fylgjandi forstjóra-
skiptum eftir taprekstur þrjú ár í röð.
Næstir á eftir komu stjómendur í
fyrirtækjum með færri en tíu starfs-
menn og veltu undir 100 milljónum.
Um 68% þeirra vom fylgjandi for-
stjóraskiptum.
Það skal tekið fram að ekki
voru allir stjómendur, sem
svöruðu í könnuninni, flokk-
aðir eftir stærð og umfangi
þeirra fyrirtækja sem þeir
stjórna. Ástæðan er einfald-
lega sú að þeir vildu ekki gefa
upp fjölda starfsmanna eða
veltutölur. Þess vegna er nokkur
munur á heildarfjöldanum sem tekur
afstöðu, 322 stjórnendum, og fjölda
þeirra stjómenda, 238, sem flokkaðir
eru eftir stærð fyrirtækjanna.
HVERS VEGNA ÞRJÚTAPÁR EN
EKKITVÖ, FJÖGUR EÐA FIMM?
Eflaust spyrja margir hvers vegna
Fijáls verslun valdi þrjú tapár í röð
fremur en tvö, íjögur eða fimm.
Ástæðan er sú að blaðið telur að for-
stjóri, sem ráðinn er til fyrirtækis í
rekstrarerfiðleikum, þurfi meira en
tvö ár til að njóta uppskerunnar af
breytingum sínum á fyrirtæk-
inu. Þrjú ár eiga hins vegar að
duga að okkar mati. Sá, sem
ekki er byrjaður að breyta
fyrirtæki og grípa til róttækra
ráðstafana eftir þrjú ár í starfi,
gerir það vart úr því. Eftir því
sem fyrirtækið stendur verr þeim
mun fyrr á hann auðvitað að grípa til
harðra stjómunaraðgerða.
Enda þótt meiri hluti stjómenda í
könnun Frjálsrar verslunar telji að
skipta eigi um forstjóra í fyrirtæki,
sem tapar þrjú ár í röð, eru forstjóra-
skipti í íslenskum fyrirtækjum ekki
mjög algeng, hvort sem fyrirtækin
ganga vel eða illa. Og svo virðist sem
forstjóraskipti séu mun sjaldnar í ís-
lenskum fyrirtækjum en erlendum. í
Bretlandi er líftími forstjóra í sama
starfi að jafnaði ekki nema nokkur ár.
Ef hann sýnir h'tinn árangur þá er
skipt um. Ef hann er góður, og nær
árangri, eru önnur og oftast stærri
fyrirtæki farin að bera víurnar í hann.
Ástæða þess, að forstjóraskipti
eru ekki eins tíð á íslandi og víða
annars staðar, er líklega sú að fá fyrir-
tæki eru opin, þ.e. á hlutabréfamark-
aði. Eigendur sitja því oft sjálfir í for-
stjórastólnum og ráða í kringum sig
atvinnustjómendur. Eigendur eru því
meira inni í hinum daglega rekstri. Og
ef reksturinn gengur ekki upp hjá for-
IEnda þótt meiri hluti stjórnenda í könnun Frjálsrar verslunar telji að
skipta eigi um forstjóra í fyrirtæki sem tapar þrjú ár í röð eru
forstjóraskipti í íslenskum fyrirtækjum ekki mjög algeng.
Helstu fylgismenn forstjóraskipta eru
stjórnendur smáfyrirtækja og
meöalstórra fyrirtækja
Telja að skipta eigi um forstjóra reki
hann fyrirtæki með tapi 3 ár í röð.
Flokkað eftir stærð fyrirtækja
71,0%
Fi. A: Fl. B: Fl. C: Fl. D: Fl. E:
17