Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1993, Side 33

Frjáls verslun - 01.10.1993, Side 33
BÆKUR BOK SEM A EFTIR AÐ VEKJA FJÖRUGAR UMRÆÐUR Hannes Hólmsteinn Gissurarson, lektor við félagsvísindadeild Háskóla íslands, skrifar hér um bókina Frá handafli til hugvits eftir Þorkel Sigurlaugsson. Hin nýja bók Þorkels Sigur- laugssonar, Frá handafli til hug- vits, er full af fróðleik og heil- brigðri skynsemi. Hún ber vitni skýrri hugsun og mikilli þekk- ingu og á vafalaust eftir að vekja fjörugar umræður, einkum með forstjórum og framkvæmda- stjórum fyrirtækja enda virðist hún einkum ætluð þeim. Þorkell skrifar ekkert stofnanamál og hann kann að krydda frásögnina góðum dæmum og sögum. Þá eru viðaukar eftir dr. Óttar Guðmundsson lækni um streitu og Vilhjálm Bjarnason við- skiptafræðing um viðbrögð stjórnenda við mistökum og at- vinnumissi athyglisverðir. MESTA AUÐLINDIN ER í MANNINUM SJÁLFUM Meginboðskapur Þorkels er að ís- lendingar hafi einbknt á þær náttúru- auðlindir sem komu helst að notum á meðan við rerum til fiskjar og rækt- uðum landið. Mesta auðlindin er hins vegar í manninum sjálfum, segir Þorkell, hugvitihans ogþekkingu. Nú er runninn upp tími þekkingarþjóðfé- lagsins þar sem aðgangur að upplýs- ingum og rétt hagnýting þeirra og markviss stjórnun fyrirtækja ráða úr- slitum um gengi þjóða. Hvort sem Islendingum líkar betur eða verr, segir Þorkell, er hagkerfi þeirra að tengjast hinu alþjóðlega hagkerfi; þeir geta ekki hlaðið háa múra í kringum sig til þess að vemda óhagkvæm fyrirtæki, heldur verða þeir að taka upp ný vinnubrögð, „nútímavæðast". Það felur ekki aðeins í sér einkavæð- ingu, heldur líka hagræðingu og end- urskipulagningu ríkisstofnana og verndaðra fyrirtækja, skýrari mark- mið þeirra og betri tengsl við þjón- ustuhlutverk sitt. ÍSLENDINGAR VANMETIÐ ÞÁ AUÐSKÖPUN SEM FELST í STJÓRNUN OG SKIPULAGNINGU Umbótasinnar á íslandi hljóta að vera sammála Þorkeli Sigurlaugssyni um meginstefnu. Hann hittir naglann á höfuðið þegar hann segir að íslend- ingar hafi vanmetið þá arðsköpun sem felst í vel reknum fyrirtækjum, í stjórnun, skipulagningu og tengslum fremur en striti hörðum höndum. Veður ræður akri, en vit syni, segir í Hávamálum. Við komumst ekki jafn- fætis öðrum þjóðum með handafli, heldur hugviti. En þar sem þetta á ekki að vera endursögn bókarinnar, heldur greining hennar og gagnrýni, skal ég nefna eitt eða tvö atriði þar sem ég hefði nálgast viðfangsefnið úr annarri átt en Þorkell gerir. EKKISAMMÁLA ÞORKELIUM „HLUTAFÉLAGIÐ ÍSLAND“ Þorkell virðist ekki alltaf gera strangan greinarmun á heilu þjóðfé- lagi annars vegar og einstökum fyrir- tækjum hins vegar. Stundum er engu líkara en hann sé að tala um „hlutafé- lagið ísland“ sem þurfi að vera betur rekið en það sé nú. Betri stjómun sé allra meina bót. En þjóðfélag er ekki eins ogfyrirtæki; reglurþess, skráð- ar og óskráðar, eru annars eðlis en þær reglur sem fyrirtæki starfar eft- ir. Leikreglur þjóðfélagsins eiga ekki að miða að einhverju sérstöku mark- miði, hvort sem það er aukinn hag- vöxtur, varðveisla þjóðernis eða eitt- hvað annað, heldur að eðlilegri og árekstralausri samræmingu hinna ólíku markmiða sem ótal fyrirtæki og heimili innan þjóðfélagsins keppa að. Öðru máli gegnir um fyrirtækið eða stofnunina. Slíkir aðilar hafa oftast (og eiga alltaf að hafa) skýr og afmörkuð markmið; úrlausnarefni stjórnenda 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.