Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 29

Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 29
STJORNUN TEXTI: JÓN G. HAUKSSON 28 1. VIÐSKIPTAHUGMYNDIN Fara þarf rækilega ofan í sjálfa viðskiptahugmyndina og skil- greina hana. Setja þarf fyrirtækinu markmið og marka verður ná- kvæma steöiu. 2. MARKAÐSFORSENDUR Hveijar eru forsendur þess að hægt sé að koma með vöru eða þjónustu fyrirtækis þíns á markað? Hver eru viðhorfin til vörunnar eða þjónustunnar? 3. HELSTU KEPPINAUTAR Skilgreindu nákvæmlega hverj- ir séu helstu keppinautar fyrirtæk- isins sem þú hyggst stofna. Hvar eru keppinautamir sterkastir og veikastir? Mundu að sérstaða fyrirtækis þíns er mikilvæg. 4. MARKAÐSRANNSÓKNIR Fáðu tilboð frá markaðsrann- sóknafyrirtækjum. Láta kanna þörf fyrir vöruna hjá væntanlegum viðskiptavinum. Flokkaðu svörin eftir aldri, kyni, starfí, tekjum og lífsstíl svarenda. Skilgreindu markhópinn vel. 5. MARKAÐURINN Hversu stór er markaðurinn? Hversu miklu velta þau fyrirtæki sem fyrir eru á honum? Er hann mettaður? Hvað má búast við að markaðurinn vaxi hratt á næstu ár- um? 6. MARKHÓPURINN Reyndu að afla upplýsinga um markhópa svipaðra fyrirtækja er- lendis. Hvemig haga þau mark- aðsstarfi sínu? Hvernig auglýsa þau? Hvemig beita þau beinni markaðssetningu og svo framveg- is? 7. VINNSLA VÖRUNNAR Hvemig fer vinnsla vörunnar fram? Skilgreindu ferlið í smáatriðum, allt frá hráefifisöflun til fullvinnslu vör- unnar. Ef um þjónustu er að ræða, þá þarf að skilgreina hvernig hún er innt af hendi á sem hagkvæmastan hátt. 8. VÖRUMERKIÐ Hvemig vilt þú láta vörumerkið líta út? Láttu auglýsingastofur eða teikn- ara gera tilboð í að hanna merkið? Vörumerki skipta máli. 9. STAÐARVAL Skilgreindu nákvæmlega hvar sé best að hafa fyrirtækið. Það er líka hægt að láta markaðsrannsóknafyrir- tæki kanna það. Staðsetning fyrir- tækja getur skipt sköpum í sumum atvinnugreinum. í hvaða hverfum er húsaleigan ódýrust? Hvemig húsa- leigusamning gera önnur fyrirtæki? Hægt er að fá húsaleigusamning um atvinnuhúsnæði hjá Húsnæðisstofn- un ríkisins. 10. FJÁRMAGNSÁÆTLANIR Fátt er mikilvægara en að gera ná- kvæma fjármagnsáætlun í byrjun. Hverjir vilja koma með fjármagn í fyrirtækið og hvemig skiptist hluta- féð? Hversu hátt lán þarf að taka í byrjun og hver er greiðslubyrðin af því? Kynntu þér sérstaklega alla fjár- festingarsjóði sem þjónusta atvinnu- greinina. 11. STOFNEFNAHAGSREIKNINGUR Utbúðu stofnefnahagsreikning. Kjörið er að leita til endurskoðanda vegna þess. Stofnefnahagsreikningur og fjármagnsáætlanir eru greinar á sama meiði. 12. SVARTSÝNISÁÆTLUN Mjög mikilvægt er að gera svart- sýnisáætlun í byrjun sem gerir ráð ÞETTA ÞARFTU AÐ GERA EF ÞU STOFNAR FYRIRTÆKI fyrir að allt fari á versta veg. Menn verða að hafa varadekk þegar lagt er af stað í langferð. Gerðu líka ráð fyrir að þú missir áhugann á fyrirtækinu og viljir selja það eftir smá tíma. Hverjir eru þá líklegir kaupendur og hvað vilja þeir borga fyrir fyrirtækið? 13. BJARTSÝNISÁÆTLUN Gerðu líka bjartsýnisáætlun. Ef vöxtur fyrirtækisins verður meiri en þú reiknaðir með þarf að mæta því af krafti. Ofvexti geta fylgt ýmis vanda- mál. 14. DU PONT MÓDELIÐ Du Pont módelið gefur upp af- kastastig fyrirtækisins. í því eru út- reikningar um framlegð, hagnað, nýt- ingu eigna og sölu í krónum talið á fastafjármuni. Mundu að pælingar um framlegð og nýtingu eigna skipta sér- lega miklu máli. 15. STOFNUN HLUTAFÉLAGSINS Stofnun hlutafélags er tæknilegt atriði en samt þarf það að vera á hreinu. Útbúa þarf stofnfundagerð, stofnsamning, samþykktir og skrá yfir hluthafa. Hanna þarf og útfylla hlutabréf. Senda þarf hlutafjármiða til skattstjóra. Tilkynna þarf stofnun hlutafélagsins. Senda þarf tilkynningu til Ríkisskattsstjóra um virðisauka- skattsstarfsemi sem og tilkynningu um launagreiðendaskrá vegna stað- greiðslu. Senda þarf tilkynningu í Lögbirtingablaðið. Loks þarf að útbúa prókúruumboð. 16. SKIPURITIÐ Mjög gott er að gera nákvæmt skipurit áður en fyrirtækið er stofn- að. í því eru upplýsingar um stjóm félagsins, endurskoðanda, ráðgjafa, framkvæmdastjóra og helstu deildar- stjóra. 17. STARFSSAMNINGAR Mikilvægt er að gera skriflega starfssamninga við helstu starfs- menn. í þeim verða að vera atriði eins og um starfssvið, fastan vinnutíma, yfirvinnu og auðvitað laun. Útbúa þarf launaseðla í tíma. Hlutirnir verða að vera í föstum skorðum. 18. TÖLVUVÆÐING Tölvur skipa stóran sess í rekstri flestra fyrirtækja. Einsettu þér að hafa tölvumálin á hreinu strax í upphafi varðandi bókhald, birgðir, launagreiðslur og annað talnaefni. Helstu upplýsingar um reksturinn og stöðu hans verða að vera á hraðbergi - helst á degi hverjum. Reyndu að hafa ná- kvæmt uppgjör um reksturinn í lok hvers mánaðar. Þú þarft að geta gripið í taumana ef farið er að halla undan fæti. Leitaðu tilboða í hin ýmsu tölvukerfi. 19. TRYGGINGAR Leitaðu tilboða í allar trygging- ar, eins og ábyrgðatryggingu at- vinnureksturs, (fastaijármunir), rekstrarstöðvunartryggingu, inn- brotsþjófnaðartryggingu, slysa- tryggingu launþega, sjúkratrygg- ingu, almenna eignatryggingu (lausafjármunir) og vatnstjón- stryggingu. 20. LOKAORÐ Það er spennandi að stofna fyrirtæki - en það kostar vinnu. Það er margt fjallið sem þarf að yfirstíga. En ekki gleyma heldur að eftir að fyrirtækið er komið á koppinn þarf oft að fóma frítíman- um í vinnuna; vaka og sofa yfir rekstrinum. Hafðu kjarkinn og bjartsýnina í farteskinu strax í upp- hafi. Það hafa þúsundir einstakl- inga gert víða um heim - og komist langt á því. 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.