Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 8
Anddyri hótelsins oft gestamóttaka eru stórglæsileg. Hægt er að fara í nudd. ljós, gufubað og hvað eina.
Jrtu að undirbúa ráðstefnu eða viðskiptafund? Ertu á
leið til útlanda, einn eða í stórum hópi, og vilt
kannski ekki keyra til Keflavíkur eldsnemma að morgni
brottfarardags? Langar þig til að eyða ánægjulegri helgi á
glæsilegu hóteli? Ef svo er þá er Hótel Keflavík einmitt
staðurinn sem þú ert að leita að.
Hótel Keflavík var opnað fyrir tíu árum en býður nú upp
á 50 nýuppgerð og stórglæsileg herbergi, glæsilega mót-
töku og þægilegan morgunverðarsal þar sem gestir geta
auk þess fengið sér kaffi hvenær sem er sólarhringsins.
Hótelið er í sjö kílómetra fjarlægð frá Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar og því tilvalið að gista þar aðfaranótt brottfarar-
dags ætli menn til útlanda, að sögn Steinþórs Jónssonar
hótelstjóra sem einnig er framkvæmdastjóri Ofnasmiðju
Suðurnesja. Margir nota sér þetta, koma kvöldið fyrir
brottför, hvíla sig eða leggja síðustu hönd á undirbúning
fyrir erfiðan fúnd á erlendri grund, fara í nudd, ljós eða
heitan pott í heilsuræktinni á hótelinu og láta svo hótelið
sjá um að aka sér í Flugstöðina morguninn eftir. Einkabíll-
inn er geymdur á hótelinu á meðan gesturinn er erlendis
og síðan er komið með hann þveginn, bónaðan og jafnvel
viðgerðan, sé þess óskað, þegar eigandinn snýr ajftur til
landsins.
Steinþór Jónsson hótelstjóri
var ekki nema 22 ára þegar
hótelið tók til starfa fyrir tíu
árum, en það var þá fyrsta
hótelið í Keflavík. Á veggn-
um bak við hann eru mynd-
ir sem hann hefur málað
sjálfur.
HERBERGIN BÚIN FULLKOMNUM TÆKIUM - TENGING VIÐ INTERNETIÐ
ahótelinu hafa gestir aðgang að tölvum, ljósritunar-
vélum og öðrum skrifstofubúnaði, auk þess sem
hótelið hefur fengið nýjan og fullkominn myndvarpa en
með honum má varpa á tjald jafnt glærum sem fullfrá-
gengnum skjölum. A hverju herbergi er mótaldstenging
svo þeir, sem koma með eigin tölvur, geta til dæmis kom-
ist í samband við Internetið og sent tölvupóst og hvað
eina sem mótaldstenging býður upp á eftir þörfum.
m eru 14 rása
>rii, myndbands-
0 spólur.
Gistiherbergin eru að sjálfsögðu búin öllum þeim tækj-
um sem gesturinn getur óskað sér. Á hverju herbergi er
stórt sjónvarpstæki, öryggisskápur, smábar og smágrill,
huxnapressa, hárþurrka, 14 rása sjónvarpskerfi, fullkom-
in hljómflutningstæki með hátölurum, meira að segja
inni á baðherberginu, og myndsegulband. Þá má velja
sér myndbandsspólu úr 200 spólna safni hótelsins svo
ailir ættu að geta fundið afþreyingu við sitt hæfi. ■
Herbergin eru rúmgóð og glæsileg. í þeim eru öryggisskápur,
smábar, smágrill, buxnapressa, hárþurrka og fullkomin
hljómflutningstæki.
mni.
8