Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 33
» ta* um "a”"
vfirhamborgarann svo
„Hann kemur þegar er klippt yfir í
öll þessi mörk og fagnaðarlæti. Það er
fyrst og fremst verið að létta mönn-
um lundina. Það þarf ekki að segja
mönnum hvað getraunimar eru held-
ur fyrst og fremst að koma ákveðnum
hugblæ og skemmtun yfir á leikinn.
Aðalatriðið er að menn hafi gaman af
leiknum.
Þetta er einnig ágætur tími tO að
koma því á framfæri hve skemmtilegt
er að spila í getraunum því nú er að
hefjast ákveðin vertíð,“ sagði Viktor
að lokum.
SVEINBJÖRN í STIGANUM
Það er auglýsingastofan Komdu á
morgun sem hefur veg og vanda af
vinnslu og dreifingu auglýsinga fyrir
íslenskar getraunir. Sveinbjöm
Gunnarsson auglýsingateiknari:
„Aðalmálið með þessar auglýsing-
ar er að þær, eða svipaðar auglýsing-
ar, hafa verið notaðar hér á Norður-
löndum í nokkur ár og gefist prýðis-
vel. Þetta má kalla samvinnuverkefni
því þó þær auglýsingar sem við feng-
um séu danskar þá mun hugmyndin
vera frá Svíum komin og þar hafa
verið notaðar samskonar auglýsing-
ar.
Þær em líflegar, skemmtilegar og
koma mönnum í gott skap. Þær vekja
eftirtekt og umtal og þá er tilgangnum
náð frá sjónarhóli auglýsingamanns-
ins. Heima fómm við svok'tið aðra leið
en nágrannar okkar þar sem við
keyrðum þær nokkrum sinnum án
þess að sagt væri frá hverjum þær
væru. Þannig tókst að byggja upp dá-
litla eftirvæntingu meðal áhorfenda
sem voru orðnir forvitnir um það
hvað væri eiginlega verið að aug-
lýsa,“ sagði Sveinbjöm milli þess sem
hann skipaði sínum mönnum fyrir úr
stiganum.
EN HVAÐ MEÐ ÍÞRÓTTAANDANN?
„Ef menn vilja pæla í dýpri merk-
ingu þá er það velkomið. Kannski
vantar stundum glaðværðina og
skopið í íslenskar auglýsingar og þess
vegna vekja þessar athygli. Aðalskila-
boðin eru gleðin. Við, sem vinnum í
auglýsingum, vitum vel hvað virkar
og þessar auglýsingar svínvirka hvað
sem líður öllum íþróttanda.“
33