Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 26
FJARMAL
AÐSKILNAÐARSTEFNA ER NAUÐSYNLEG
Aldrei er brýnt nógu oft fyrir stjórnendum að aðskilja starf bókara og
gjaldkera. Sá aðskilnaður er í raun besta eftirlitskerfi stjórnandans.
Þannig kemur hann í veg fyrir að sami maðurinn „steli“ af bankareikningi
fyrirtækisins og skrái „glæpinn síðan rétt“ í bókhaldið.
□ riðjudagurinn 17. september
sl. byrjaði með stóru spum-
ingarmerki hjá mörgum for-
stjórum og stjómendum fyrirtækja.
Tvær stuttar fréttir í Morgunblaðinu
um fjárdrátt voru ástæðan. Önnur
fréttin var um gjaldkera í innflutnings-
fyrirtæki sem grunaður var um að
hafa dregið sér 30 milljónir króna frá
árinu 1992. Hin var um fjárdrátt
starfsmanns í öðru fyrirtæki upp á um
8,6 milljónir á sex ára tímabili, eða
ámnum 1990 til 1995.
Fréttirnar urðu auðvitað til vegna
þess að á endanum komust
svikin upp. En stóra
spurningin er hvemig í
ósköpunum sé hægt
að stela 30 milljónum á
fjórum árum í meðal-
stóru fyrirtæki án þess
að bókhaldsbjöllur séu
löngu famar að klingja -
eða að stjómendur upp-
götvi að minna fé sé í
kassanum? Það hlýtur
að vera góð afkoma í
fyrirtæki finnist enginn
munur á því hvort þar sé
milljónum meira eða
minna inni á heftinu.
Svona fréttir með
morgunkaffinu ættu að fá
FRETTA
SKÝRING
Jón G. Hauksson
Myndir: Geir Ólafsson
stjórnendur til að svelgjast á. Þær
ættu að vera þeim ærið tilefni til að
halda vöku sinni gagnvart hugsanleg-
um fjárdrætti í þeirra eigin fyrirtækj-
um. En hvað er til ráða fyrir þá? Best
Grunur um
30 milljónu
fjárdrátt
G.IALDKERI m ‘n^fvnerifkS-l
ItekUReykiavlkhefurven umað|
Ihafa dregfð sér 30 milljönir kröna
frá tónu 1992- Kki8ins upi.-l
að sök að hafa dregio
gert tilraun til þess að .
imeð því að rangfæra^
krónafjárdrátt.FretttMbl.
hinn 17. september •
Sakaður um
8,6 milljóna
fjárdrátt
SSíKfíA,HJa?^GLA
Syórnemfúr fýrirtæWs' ^fna'
uðu til lögiglunnar f
yna gruns uT V BV°r
starfsmanna hefði dretð sór
Starí rannsókn lokif
•jkStS’SSS,*??-
17• september.
er auðvitað að hafa sýnilegt, öflugt
eftirlitskerfi f fyrirtækjunum - kerfi
sem heldur freistingum frá mönnum
en ekki að þeim - þannig að jafnvel
grandvarir og heiðvirðir starfsmenn
falli ekki í freistni.
ÞRENNT ERTILVARNAR
Endurskoðendur eru á einu máli
um að þrennt sé nauðsynlegt í fyrir-
tækjum til að minnka líkur á fjár-
drætti: 1) Að bókhald fyrirtækja sé
færtmjögreglulega; daglega. Þaðmá
alls ekki láta reikninga hrannast upp
og taka síðan mikla bókhalds-
rassfu mörgum mánuð-
um síðar. 2) Að hafa alls
ekki sama manninn í
starfí bókara og gjald-
kera. Þetta er grund-
vallarregla sem aldrei
má bregða út af, jafnvel
þótt fyrirtækin séu smá í
sniðum og fámenn. 3) Að
stjómandi fari ævinlega
yfir útprentanir bókhalds.
Þetta hljómar kannski
hlægilega. Staðreyndin er
engu að síður sú að til eru
stjómendur sem nenna
ekki að lesa það talnaflóð
sem þeir prenta út. Um leið
slaka þeir á öllu eftirliti.
Þriðjudagurinn 17. seþtember byrjaði með
30 MILUÓNA
Hvernig getur gjaldkeri í meðalstóru fyrirtæki dregið sér 30 milljónir dnþess að
26