Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 31
Jakob Jakobsson er
fyrsti karlmaðurinn í
ann heimi sem ber titilinn
segir Smörrebrödsjomfru.
Danskt smurbrauð í Reykjavík
húsið hefur jafnan verið rekið af Dav-
idsens fjölskyldunni, nú síðast af Idu
Davidsen, sem margir íslendingar
kannast við bæði frá heimsóknum í
veitingahús hennar í Kaupmannahöfn
og vegna þess að hún hefur seinustu
tvö árin komið hingað til lands fyrir
jólin og kynnt fyrir landsmönnum
ýmsa fræga rétti sína á jólahlaðborði á
Hótel Borg.
JAKOB JAKOBSSON
Ungur íslendingur brá undir sig
betri fætinum og fór í læri til Idu Dav-
idsen og lærði þá göfugu list að útbúa
gott og girnilegt smurbrauð. Jakob
Jakobsson heitir þessi maður og er
hann fyrsti karlmaðurinn í heiminum
sem ber titilinn SMÖRREBRÖDS-
JOMFRU. Þrátt fyrir að Jakobi hafi
boðist ýmis spennandi tækifæri er-
lendis ákvað hann að koma til íslands
og opna veitingahús í Reykjavík sem
hefði á boðstólum fyrsta flokks
danskt smurbrauð. Jakob opnaði fyrir
nokkrum mánuðum veitingahúsið
Jómfrúna í Lækjargötu.
Þar er á boðstólum frábært smur-
brauð, fjórar til fimm tegundir af sfld,
sem hann útbýr sjálfur og er sérlega
góð, auk þess er ýmislegt annað gott
og gimilegt á matseðlinum. Yið fyrstu
kynni virðist matsalurinn vera kaldur
og ópersónulegur en hann er langur
og mjór. En þegar betur er að gáð þá
venst salurinn vel. Við enda hans fjær
götunni eru haganlega gerðir gler-
veggir sem opnast út á lítið og
skemmtilegt torg sem liggur að
bakhlið Hótel Borgar.
ÚTIUNDIR BERUM HIMNI
Þegar gott er veður á sumrin geta
gestir Jómfrúarinnar setið úti undir
berum himni í ró og næði, þótt í miðri
Sigmar B.
Hauksson
skrifar reglulega
um íslenska
bisness-
veitingastaði í
Frjálsa verslun.
Reykjavík sé. Gestirnir geta valið um
allt að 150 tegundir af smurbrauði,
hvorki meira né minna. Auk þess er
boðið upp á hlaðborð með ýmsu góð-
gæti svo sem hangikjöti, graflaxi og
ýmsu öðru. Það er vitaskuld hægt að
fá góðan bjór og ýmsar tegundir af
snafs.
Ég minnist þess ekki að hafa fengið
eins gott og vel gert smurbrauð utan
Kaupmannahafnar og hjá Jakobi á
Jómfrúnni. Jómfrúin við Lækjargötu
er tilvalinn staður til að fara með er-
lenda gesti á í hádeginu. Þeir verða
ekki fyrir vonbrigðum. Vissulega er
hér um danska matargerð að ræða en
húsin í Kvosinni eru flest af dönskum
uppruna og Reykjavík var jú um all-
langan tíma danskur bær. Mestu máli
skiptir þó að Jómfrúin er einstakur
veitingastaður í Reykjavík og jafnvel
þótt víðar væri leitað.
Jómfrúin,
Lækjargötu 4,
sími: 551 0100.
31