Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 35

Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 35
SJÁLFSÖRUGGUR OG GAMANSAMUR Guðbrandur þykir þægilegur í umgengni og hann gerir oft að gamni sínu. Hann er afar sjáifsöruggur og ófeiminn við að tjá sig. Líkamlega heldur hann sér í formi með því að fara í gönguferðir. Nafn: Guðbrandur Sigurðsson. Starf: Forstjóri Útgerðarfélags Akureyringa. Aldur: 35 ára. Fæddur: 2. maí 1961. Fjölskyldurhagir: Kvæntur Rannveigu Pálsdóttur lækni sem stundar framhaldsnám í Bretlandi. Þau eiga eina dóttur, Önnu Katrínu, sem er 10 ára. Foreldrar: Sigurður Markússon, stjórnarformaður Sambandsins, og Ingríður Árnadóttir. Systkini: Hann er þriðji í röð fjögurra systkina. Nám: Matvælafræði frá HÍ og meistarapróf í stjórnun frá Edinborg. Áhugantál: Tónlist og bókmenntir. Stjórnandi: Sagður þægilegur f daglegri umgengni og með mikið sjálfstraust. Enn á þó eftir að reyna mikið á hann sem stjórnanda þar sem hann hefur litla reynslu í stjórnun fyrirtækis. Richthofen, Bing Crosby og Benjamín Spock. Fæðingardag- ur hans er jafnframt dánardægur Jóns In- díafara, Josephs McCarthy og J. Edg- ars Hoover. Þennan dag árið 1882 bárust mannskæðir misling- ar til íslands, 2. maí 1970 var Búrfells- virkjun vígð og þann dag 1986 lenti Sverrir Stormsker í 16. sæti í söngvakeppni evr- ópskra sjónvarps- stöðva með lagið Þú og þeir. AFffnUM DALAMANNA Guðbrandur er sonur Sigurðar Markússonar stjóm- arformanns Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. Sigurður starfaði fyrst hjá SÍS í Leith í Skotlandi, þá í London SOPA BEST Útgerðarfélags Akureyringa, ÚA. Þeir norðanmenn sóttu sjávarafurða. Hann er hér í nærmynd NÆRMYND Texti: Páll Ásgeir Ásgeirsson Myndir: Gunnar Sverrisson og loks í Hamborg en hér heima frá árinu 1967. Sigurður er ættaður frá Spágilsstöðum í Laxárdal í Dalasýslu og þar ólst hann upp. Móðir Guðbrands er Ingríður Amadóttir húsmóðir, dóttir Áma Jóns Ámasonar húsgagnasmíða- meistara og Guðrúnar Einarsdóttur. Guðbrandur á þrjú systkini. Elst er Hrafnhildur f. 1952, síðan Guðríður Steinunn f. 1956, þá Guðbrandur og loks Einar f. 1963. Tvö systkinanna, Guðríður og Einar, em tónlistarmenn en Hrafnhildur rekur sína eigin versl- un, Hjá Hrafnhildi. FEKK UNGUR AHUGA A FISKI Námsferill Guðbrands var með þeim hætti að eftir skyldunám í Breiðagerðisskóla og Réttarholts- skóla varð hann stúdent frá Mennta- skólanum við Sund árið 1981. Síðan lagði hann stund á nám í matvæla- fræði við Háskólann og útskrifaðist þaðan 1985. Þá fór hann út á vinnu- markaðinn og starfaði hjá Sambandi íslenskra fiskframleiðenda, Sjávaraf- urðadeild SÍS og íslenskum sjávaraf- urðum áður en hann hélt til frekara náms og nú varð háskólinn í Edinborg fyrir valinu. Þaðan lauk Guðbrandur MBA prófi og varð framkvæmda- stjóri Þróunarsviðs ís- lenskra sjávarafurða þegar hann kom heim. Því starfi gegndi hann í tvö ár áður en hann settist í forstjórastól- inn hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Bæði í Háskólanum á Melunum og einnig úti í Edinborg þótti Guðbrandur harður námsmaður og skilaði ávallt fyrsta flokks vinnu og fékk góðar einkunnir. Það þýðir eldíi að hann hafi ekki þurft að hafa fyrir náminu en flestum ber saman um að hann sé mikill vinnuhestur og vel skipulagður. Þeim vinnubrögðum beitir hann jafnt í námi sem vinnu. !ll! 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.