Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 32

Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 32
Viktor Ólafsson, markaðsstjóri íslenskra getrauna. „Þessar auglýsingar koma frá Danmörku. Þær fengu gullverðlaun á auglýsingahátíðinni í Cann- es í Frakklandi.“ Mynd: Kristján Einarsson GALGAHUMOR SVINVIRKAR! Illkvitinn hrekkjalómur selur getraunaseðla. Spurt er: Hvar er eiginlega ípróttaandinn? Þessar ótrúlegu auglýsingar fengu gullverðlaun á auglýsingahátíð í Cannes grunlausa samferðamenn sína. Hann tekur handfangið af glerhurðinni og næsti maður fletur nefið út á glerinu. Hann losar lokið á saltbauknum og sessunautur hans tæmir hann yfir hamborgarann og hann kippir burtu vasaklút eldri manns á viðkvæmu augnabliki í hnerranum svo sá gamli stendur með fullar hendur hors. Rauði þráðurinn í auglýsingunum, sem þær eiga allar sameiginlegt, er æðisgenginn og smitandi hlátur þess hrokkinhærða og botnlaus kátína hans yfir vel heppnuðum hrekk. FENGU GULLVERÐLAUN í CANNES „Við fengum þessar auglýsingar frá félögum okkar hjá dönsku getraunun- um. Þær eru búnar til f Danmörku og voru þar notaðar til að auglýsa tvenns konar getraunaleiki. Þær þóttu sér- lega vel gerðar og voru að lokum sendar í keppni auglýsinga á hátíð í Cannes í Frakklandi. Þar fengu þær gullverðlaun," sagði Viktor markaðs- stjóri en hann sér um auglýsingamál íslenskra getrauna og það kom í hans hlut að velja þessar auglýsingar til birtingar á íslandi. Viktor sagði að kostnaður við þessa herferð væri sárah'tiO. Fyrst og fremst væri það kostnaður við birtingar en auglýsing- arnar sjálfar hefðu fengist ókeypis. Því væri enn óljóst hve mikið herferð- in í heild kostaði því hún yrði notuð eins lengi og þeir fjármunir entust sem nota ætti til að auglýsa Lengjuna. „Við teljum þetta verulegan ávinn- ing fyrir okkur að hafa fengið þessar auglýsingar. Við eigum gott samstarf við félaga okkar hjá getraununum á hinum Norðurlöndunum og hittumst reglulega og spjöllum saman og sýn- um hver öðrum hvað við erum að gera. Það er ekkert nýtt að menn skiptist á auglýsingum og bara skemmtilegt dæmi um vel heppnaða norræna samvinnu." AOs voru framleiddar sex mismun- andi auglýsingar með jafnmörgum hrekkjum. Þrjár þeirra hafa verið sýndar hér en að sögn Viktors verða þær að lokum sýndar aOar sex. Þeir SAGANÁBAK VIÐ HERFERÐINA Páll Ásgeir Ásgeirsson Myndir: Kristján Einarsson sem hafa gaman af hrekkjum geta því hlakkað til að sjá alla syrpuna. Þegar er byrjað að nota hlátur þess kruOaða í útvarpsauglýsingar og myndir af hon- um munu merkja sölustaði í framtíð- inni. „Við teljum þetta falla vel í kramið hjá okkar mönnum og við höfum feng- ið símtöl heim á kvöldin eftir sýningar á þessum auglýsingum þar sem menn eru að hrósa okkur.“ HVAR ER ÍÞRÓTTANDINN? En margir hafa tekið eftir því að auglýsingamar em í raun ótengdar efninu. íþróttir koma hvergi við sögu. Lymskulegir hrekkir hafa aldrei þótt góð íþrótt og því ekki ólíklegt að spurt sé: Hvar er íþróttandinn? 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.