Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 38
Tíu vetra foringi og hörkugóð fjárfesting, graðfolinn Orri frá Þúfu. Knapi er Gunnar Arnarson. Myndin var tekin á
fjórðungsmóti hestamanna á Hellu sl. sumar. Sameignarfélag var stofnað utan um Orra árið 1992.
ORRIGERIR BETUR EN
Fjárfestingar ígraöfolum eru áhættusamar. Hlutur í Orra frá Þúfu hefur samt
að hafa löngum verið stunduð
lífleg viðskipti í tengslum við
hestamennsku og ganga hest-
ar kaupum og sölum fyrir álitlegar
fjárhæðir. Þeir, sem stunda ræktun
og eiga góðan fola, geta auk þess þén-
að á því að selja aðgang að honum,
þ.e. hleypt hryssu undir hann. Þessi
viðskipti hafa mestmegnis verið
stunduð á einstaklingsgrundvelli þar
sem hestur er yfirleitt í eigu eins aðila
sem ber allan kostnað af rekstri hans
og hirðir gróðann eða ber tapið eftir
atvikum. En með aukinni eftirspum
eftir úrvalshestum, ekki síst erlendis
frá, hefur verð þeirra hækkað stöð-
ugt. Er svo komið að varla er á færi
eins aðila að kaupa slíka gripi eða reka
þá.
Síðastliðin ár hefur því orðið sú
breyting í hestabransanum að stofnuð
hafa verið sameignafélög um einstaka
hesta og þau nánast verið rekin eins
og hvert annað fyrirtæki. Ganga hlut-
ir í hestum þá kaupum og sölum og
MYNDIR:
EIRÍKUR JÓNSSON
reikna eigendur út arð af hlutum sín-
um á sama hátt og af verðbréfum.
Bera þessi sameignafélög yfirleitt
nafn hestsins.
Eitt þekktasta og jafnframt ábata-
samasta dæmið í þessum efnum er
sameignafélag sem stofnað hefur
verið utan um stóðhestinn Orra frá
Þúfu, Vestur-Landeyjum. Þeir, sem
keyptu hlut í Orra á sínum tíma, hafa
fimmfaldað verðgildi síns hlutar
nokkrum árum. En áður en við snúum
okkur að gæðingnum Orra frá Þúfu er
rétt að skýra hvernig þessi sameigna-
félög eru rekin.
38