Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 16
KAUPA PAJERO AFTUR
OG AFTUR
Jitsubishi Pajero jeppinn frá
Heklu hf. hefiir verið einn
mest seldi jeppi hérlendis undan-
farin ár en sá fyrsti kom hingað
1983. Pajero fæst bæði langur og
stuttur og að sögn Stefáns Sand-
holt sölustjóra eru 90% jeppanna,
sem seldir eru, af lengri gerðinni.
Sú breyting hefur orðið síðustu
tvö ár að uppistaðan í sölunni er
dísilbílar. Kemur bað í kiölfar
breyttra aðflutningsgjalda sem
olli bví að dísilbilarnir lækkuðu
meira í verði en bensínbílarnir.
Sérstaklega átti þetta við í sumar
þegar bílar með stærstu vélarnar
lækkuðu töluvert.
„Við seljum aðallega dísilbíl
með stærri vélinni, 2,8 lítra, hvort
heldur er handskipta eða sjálf-
skipta," segir Stefán. „Þetta eru
afar vel búnir bílar með öllum
hugsanlegum þægindum, lúxus-
innréttingu, mjög þægilegum
sætum með armpúðum og ijaðr-
andi framsætum. Varðandi annan
búnað má nefna að með sérstök-
um búnaði á höggdeyfum má
stilla sveifludeyfingu á þrjá vegu.
Getur ökumaðurinn breytt ijöðr-
uninni með einu handtaki í samræmi við ástand vegarins.
Drifbúnaður er einnig sá fullkomnasti sem er í aldrifsbílum.
Jeppann má hafa í heiðbundnu afturdrifi, torfærudrifi eða
aldrifi og skipta má milli eindrifs og aldrifs fyrirhafnarlaust
á allt að 100 km hraða. Hægt er einnig að læsa afturdrifi
100% með rofa í mælaborði.“
Pajero jeppar fást með ABS hemlalæsivörn sem gerir
aksturinn bæði þægilegri og öruggari við hvers kyns að-
stæður. Hingað til lands koma þeir búnir flestu því sem
hugur ökumannsins kann að girnast en vilji menn bæta
einhverju við er það venjulega gert hér. Til dæmis óska
sumir eftir að setja aukaljósker að framan, vindskeiðar að
aftan, og toppgrindur eða önnur útvarps- og hljómflutn-
ingstæki sem í jeppunum eru. Allir Pajero jeppar koma á
31 tommu Good Year hjólbörðum.
Stefán Sandholt sölustjóri Mitsubishi-bíla. Pajero er einn mest seldi
jeppinn hérlendis.
Hekla gerir mikið af þvi að taka eldri bíla í skiptum fyrir
nýja og margir Pajero menn eru að koma og endurnýja
bíla sína í annað og þriðja sinn og þeir, sem keyptu Pajero
imm.
16