Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.09.1996, Blaðsíða 37
1967 og fluttu fljótlega í Fossvoginn sem segja má að sé heimahverfí Guð- brands. Þetta er Víkings- hverfi en Guðbrandur var ekki virkur í íþróttum sem unglingur en mun þó hafa æft körfubolta um hríð með Víkingi. Skíðaiðkun taldist einnig til íþrótta í uppvexti hans og kannski á hann eftir að verða fastagestur í Hlíð- arfjallinu. Guðbrandur fór ekki var- hluta af þeirri tónlistariðkun og því tónlistarnámi sem fór fram á heimilinu en tvö syst- kini hans eru atvinnumenn í tónlist, Guðríður er píanó- leikari en Einar kontra- bassaleikari. Tónlistaráhugi foreldranna setti svip á heimilið og Guðbrandur ólst upp við mikið dálæti á tónlist og stöðugar píanóæfingar systkinanna. Hann lagði litla stund á hefðbundið tónlist- amám sjálfur en var þó um hríð að læra á klarínett. Hann hefur gott eyra fyrir tónlist og getur gripið í píanó eða gítar sjálfum sér og öðrum til skemmtunar. Hann var þó aldrei í neinum bílskúrshljómsveitum eins og Einar, bróðir hans. Guðbrandur hlustar mik- ið á allskonar tónlist og hef- ur yfirgripsmikla þekkingu á tónlist og tónlistarsögu. Hann les mikið bæði fagurbókmenntir og fagrit og veltir fyrir sér fleiri listgreinum og er óhætt að segja að listamaðurinn í Guðbrandi sé stór hluti af honum. Hann er mikill sælkeri í mat og drykk og fæst sjálfur við að búa til mat af mikilli innlifun. Að sögn þeirra, sem reynt hafa, er hann listakokkur. Af sjálfu leiðir að hann hefur átt í nokkrum vandræðum með holdafarið og verið háður breytilegri kjörþyngd. Hann hefur árum saman reynt að hætta að reykja, ekki tekist alveg en beitir nú þeirri aðferð að reykja ekki í vinnunni. Gagnvart vinum og nánum skyld- mennum er Guðbrandur dagfars- prúður og gamansamur og ljúfur í um- gengni. Hann er ættrækinn og heldur ekki íþróttir og hefur til dæmis engan áhuga á knatt- spyrnu. Hann kýs að setja geisladisk með sígildri tón- list á fóninn fremur en að horfa á enska boltann. Hann er þó eins og fleiri ungir stjórnendur meðvitaður um nauðsyn þess að hreyfa sig reglulega og hefur verið staðinn að því að fara út að skokka með kunningjunum en þó fremur að skyldur- ækni en ástríðu. Guðbrandur er kvæntur Rannveigu Pálsdóttur lækni. Hún er dóttir Páls Halldórssonar og Ragnhild- ar Ámadóttur. Þau eiga saman eina dóttur, Önnu Katrínu, sem er 10 ára. Hún dvelst hjá móður sinni sem um þessar mundir er við framhaldsnám í heimilis- lækningum í Eastboume í Englandi. Þau kynntust í Menntaskólanum við Sund, eru jafnaldrar og hafa búið saman frá 1986. VINIRNIR Meðal nánustu vina Guð- brands eru Aðalsteinn Sigurgeirsson skógfræðing- ur, Magnús Tumi Guð- mundsson jarðeðlisfræðing- ur og Sigurður Bjömsson læknir. Þessir þrír hafa verið vinir frá menntaskólaárum þó samband þeirra hafi á tíðum goldið langdvala þeima í útlöndum við nám. Amar Bjamason, fjármálastjóri hjá Ferðaskrifstofu rík- isins, er góður vinur Guðbrands. Einnig mætti nefna Brand Hauksson verkfræðing en hann hefur dvalist lengi erlendis og Jóhann Magnússon rekstrarráðgjafa sem nýlega keypti stóran hlut í Samsölubakaríi. Þannig sýnir nærmyndin af Guð- brandi okkur ungan og vel menntaðan mann sem er kominn í óskastöðu til þess að láta að sér kveða og nýta sér þekkingu sína. Vinnuhesturinn, sæl- kerinn og stjórnandinn. Þetta em hin- ir þrír þættir Guðbrands Sigurðsson- ar. Guðbrandur hefur mikinn áhuga á öllu sem viðkemur fiski og fiskvinnslu. Þessi áhugi hans var þegar orðinn brennandi á menntaskólaárunum og þótti raunar ekki beint hefðbundið áhugamál menntskælings á diskó- tímanum. góðu sambandi við foreldra sína og systkini og er ævinlega boðinn og búinn að rétta þeim hjálparhönd ef á þarf að halda. Guðbrandur er ekki í hefðbundnum líknarfélögum eða karlaklúbbum svo vitað sé. Hann hefur tilhneigingu til þess að láta áhugamál og slíkt víkja fyrir vinnunni en starf hans tekur allan tíma sem aflögu er. Hann vinnur af- skaplega mikið og lengi hefur starfið falið í sér töluverð ferðalög svo aug- ljóst er að áhugamál og þess háttar situr á stundum á hakanum. Guð- brandur er reglumaður sem hefur áhuga á útivist og fer í gönguferðir sér til heilsubótar. Hann hefur gaman af veiði og stundar stangveiði þegar tími gefst til sem er reyndar æ sjaldnar á hinum seinni árum. Hann stundar 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.