Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Qupperneq 22

Frjáls verslun - 01.09.1996, Qupperneq 22
FORSÍÐUGREIN LANGUR LAUGARDAGUR ER HELSTIVERSLUNARDAGURINN Hulda telur að margar verslanir hafi komið inn á mark- aðinn undanfarin ár með lágt vöruverð en þær hafi ekki getað haldið sínu lága vöruverði. Hún segist finna mikinn mun á verslun við Laugaveginn nú og fyrir fjórum árum. Kreppan virðist yfirstaðin og Laugavegurinn sé í upp- sveiflu. Viðskiptavinum finnist gaman að koma á Lauga- veginn og þeir tali um stemmninguna þar, enda séu þeir þreyttir á að vera innilokaðir í Kringlunni. „Langur laugar- dagur“ hafi byrjað fyrir þremur árum og sé nú alltaf stærsti verslunardagur mánaðarins, stemmningin þennan dag minni á Þorláksmessu. „Laugavegurinn gleymdist meðan mesta nýjabrumið var að fara af Kringlunni. En þetta er farið að breytast aftur. Ef húsnæði losnar við Laugaveg þá er slegist um það,“ segir hún. Hulda tekur undir með hinum kaupmönnunum og telur verslunarferðir til útlanda slæmar því að fjármagnið streymi út úr landinu þó að vöruverð sé svipað hér og þar. Hún telur að fólk fari nú frekar utan til að skemmta sér og hvíla sig og versli minna en áður. Verslanir erlendis reyni þó að halda í viðskiptavinina og sendi afsláttarbæklinga hingað heim. ir, systir Lilju Hiannar 1 Cosmo og eigandi Flash á Lauga- vegi 54. Hulda er alin upp bak við búðarborðið, eins og Lilja Hrönn, en var alla tíð staðráðin í að leggja ekki verslunar- rekstur fyrir sig þar sem mamma hennar, bróðir og systir ráku verslun. Eftir stúdentspróf fór hún í framhaldsnám og lauk meistaraprófi í viðskiptafræði, markaðsfræði og stjómun í Danmörku. Árið 1990 flutti hún heim til íslands og hafði þá háar hugmyndir um að fá vinnu við markaðsmál en fékk ekkert að gera. Smám saman fór hún að flytja inn skartgripi og boli til að afla sér tekna. í maí 1992 tók Hulda kjallarann að Laugavegi 54 á leigu yfir sumarið. Hún er nú búin að kaupa húsnæðið og gera það upp og rekur þar nú tískuverslunina Flash. „Ég sé ekki fram á að ég hætti í þessu. Ég er mjög ánægð í verslunarrekstri. Ég fór að vinna tímabundið hjá mömmu til að sjá mér farborða en nú er ég að vinna fyrir mig sjálfa. Þetta er búið að vera mikil vinna en mér finnst þetta gaman,“ segir hún og telur sig finna mun meira fyrir samkeppni en hinir kaupmennimir í þessari úttekt því að hennar verslun sé mun minni en verslanir hinna og því meiri þrýstingur á hana að bjóða vömr á góðu verði. Hulda segir að samkeppnin milli tískuverslana sé heiðarleg. Verðið hafi lækkað og tilteknir vöruflokkar séu boðnir á tilboðsverði til að vekja athygli en ekkert sé um undirboð líkt og í matvöruversluninni. „Mér finnst ég þurfa að vera með gott verð. Ég finn að fólk gengur í búðir og veltir verðinu fyrir sér. Unglingarnir virka öðruvísi. Þeir hugsa: Þetta er í tísku, þetta fæst þama, ég kaupi það. Ég held að þær hinar finni ekki fyrir samkeppninni á sama hátt og ég því að þær eru svo stórar.“ Hulda Hauksdóttir í tískuverslunni Flash (systir Lilju í Cosmo) ætlaði ekki að leggja rekstur verslunar fyrir sig. Þess í stað hélt hún í langskólanám til Danmerkur og lauk þaðan meistaraprófi í viðskiptafræðum og stjórn- un. En örlögin urðu ekki umflúin; kaupmennskan er í blóðinu. Þess má geta að Hulda var ekki á landinu þegar forsíðumyndin var tekin. Hulda íFlash: LAUGAVEGURINN ERIUPPSVEIFLU □ lagningin hefur lækkað alveg rosalega á síðustu þremur árum og það skilar sér í lægra vöruverði. Það er hörð samkeppni í verðum. Það þarf alltaf að vera eitthvað í gangi fyrir viðskiptavini, tilboð eða útsölur, og slíkt er sífellt að aukast frekar en hitt. Mér finnst þetta vera sama þróun og er í London,“ segir Hulda Hauksdótt- 22

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.