Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Síða 24

Frjáls verslun - 01.09.1996, Síða 24
FORSÍÐUGREIN Varner samsteypunnar í Evrópu. Það eru Vamer feðgam- ir, Frank Vamer og synir hans, sem eiga sex verslana- keðjur með fatnað fyrir ungaböm og allt upp í fatnað fyrir roskna karla í öllum verðflokkum. Aróra segir að Varner feðgarnir telji sig hafa mettað norska markaðinn með sín- um 400 verslunum, þar af 100 Dressmann verslunum, og séu því að leita landvinninga. Þeir hafi nú þegar keypt verslanakeðju í Svíþjóð og stórverslun í Ríga í Lettlandi þar sem allar keðjurnar sex verða með útibú, auk þess sem Dressmann opnar fljótlega í Póllandi. íslenska versl- unin er prufuútibú fyrir Evrópumarkað. „Vamer feðgarnir komu hingað og skoðuðu úrvalið í fataverslunum hér. Þeim fannst að Dressmann myndi passa vel inn í þennan markað, það vantaði karlmannsföt á þessu verði fyrir þann aldurshóp sem Dressmann höfðar til,“ segir hún. Áróra segir að íslenskir karlar hafi tekið Dressmann vel, enda fmni hún að margir karlmenn, sem fram að þessu hafi eingöngu verslað erlendis vegna hárrar verðlagningar á karlmannafatnaði hér heima, séu nú famir að koma í Dressmann til að versla. Innkaupadeild Dressmann í Noregi sér að mestu um fatainnkaup fyrir búðirnar. Hún á von á því að Dressmann haldi áfram með svipaða línu og verið hefur og leggi áherslu á að bjóða upp á ódýr karlmannaföt. Þó býst hún við að í versluninni verði hom með föt frá Vamer verslun- arkeðjunni en þau eru örlítið dýrari en Dressmann-fötin. Mæðgurnar í Vero Moda og Jack&Jones: VERÐ Á FATNAÐILÆKKAR STÖÐUGT argrét Jónsdóttir hefur áralanga reynslu af versl- unarrekstri. Hún byrjaði með verslunarrekstur á Akranesi árið 1972, rak þá verslunina Valbæ og verslaði til að byrja með eingöngu með snyrtivörur en færði sig smám saman út í fatnað. Árið 1973 stofnaði Margrét fataverslunina Sonju í Suðurveri í Reykjavík og fór þá að flytja inn mikið af sænskum og finnskum fatnaði, síðan flutti hún verslunina á Laugaveg 81, þar sem Jack&Jones er nú til húsa. Margrét er búin að versla árum saman við keðjufyrir- tækið BestSeller, sem stofnaði Vero Moda og Jack&Jon- es, og er reyndar í hópi elstu kúnna þess fyrirtækis. í mars 1993 tók hún svo þá afdrifaríku ákvörðun að venda kvæði sínu í kross og leggja niður rekstur Sonju, sem þó hafði alla tíð gengið vel, og stofna verslunina Vero Moda. Ástæðan var sú að BestSeller-fyrirtækið gerði þá kröfu til þeirra, sem vildu gerast umboðsaðilar fyrirtækisins, að þeir versluðu eingöngu með þeirra vörur. „Svo hefur þetta bara hlaðið utan á sig og nú eru versl- anirnar fimm talsins," segir Margrét en dætur hennar, 24

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.