Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Qupperneq 40

Frjáls verslun - 01.09.1996, Qupperneq 40
FJÁRMÁL litii FÉLÖG UM HESTA Félög um eignarhald á hestum eru yfirleitt stofnuð þegar þeir eru á aldrinum 5 til 7 vetra. Hestinum er yfirleitt skipt í 70 hluta og er þá miðað við að hann gagnist 70 hryssum yfir sumarið. 60 hlutir eru í eigu einstakra aðila en 10 hlutir í eigu sameignarfélagsins. verðgildi hans um leið snarhækkað. Er svo komið að hver hlutur er met- inn á um 500 þúsund krónur. En það þykir varlegt mat og segja þeir, sem gerst þekkja, að áhugasamir verði að reiða fram mun hærri upphæðir fyrir hvern hlut. Hversu mikið er ekki látið uppi. Af þessu er ljóst að ávöxtun þessarar ijárfestingar er að minnsta kosti fimmföld. Til samanburðar má geta þess að verðbréfavísitalan hefur á sama tímabili hækkað úr 1000 stig- um í 2180, eða rúmlega tvöfaldast. Þarf ekki mikla reikningssnillinga til að sjá að hér er um ávöxtun að ræða sem vart á sér hliðstæðu á verðbréfa- mörkuðum. Fyrir afnotaréttinn eða „skotið“ úr Orra eru greiddar 60 þúsund krónur í folatoll auk virðisaukaskatts. Tíu hlutir í eigu sameignafélagsins gefa því af sér 600 þúsund krónur sem notaðar eru til reksturs folans. BÓNUS FYRIRGÓÐ AFKVÆMI En dæmið er ekki búið. Þeir, sem eiga hlut í Orra og leiða undir hann hryssu, fá yfirleitt gott afkvæmi og stundum úrvalsafkvæmi eins og dæmin sýna. Sum afkvæma Orra eru þannig með mun hærri einkunn en hann. Eigandi folalds undan Orra get- ur fengið 200-500 þúsund krónur fyrir það. Gunnar Amarson, hestaútflytjandi og hestaræktandi, nýtur þess heiðurs að ríða Orra út þegar hann er í þjálfun og á hlut í þessum mikla gæðingi. Hann segir að Orri beri höfuð og herðar yfir aðra hesta sem sameigna- félög hafa verið stofnuð um. „Kaup á hlut í hesti er feiknagóð ijárfesting ef menn em heppnir. Þetta er eins og að kaupa hlut í fyrirtæki á réttum tíma nema hvað ávöxtunin getur orðið margfalt meiri. Það er reyndar sammerkt með þeim fáu fé- lögum, sem stofnuð hafa verið um hesta hérlendis, að menn hafa yfirleitt verið heppnir. En Orri er alveg sér á parti, hann ber höfuð og herðar yfir aðra hesta í þessum efnum,“ segir Gunnar. Hann bætir við að ekki þýði að stofna félög um eign í hestum nema um úrvalshesta sé að ræða. Arðurinn fyrir eigendurna felist fyrst og fremst í afnotaréttinum. Þegar hátt verð sé á hesti séu afkvæmin yfirleitt hátt skrif- uð. AFAR MISJAFNT VERÐ Talið er að 3-400 manns eigi hlut í hesti í gegnum sameignafélög. Félög hafa verið stofnuð um hesta eins og Óð frá Brún, 7 vetra, en hlutir í hon- um voru seldir á fjórðungsmótinu í sumar. Hlutur í Pilti frá Sperðli, 11 vetra, munu vera á um 100 þúsund krónur og hlutur í Platon frá Sauðár- króki mun vera á 25 þúsund krónur. Þá hefur Ófeigur frá Flugmýri haldið vel verðgildi sínu en hann er um 27 vetra gamall. Að sögn hestamanna er varla hægt að tala um verðmæti í hans tilfelli á sama hátt og þegar rætt er um hina folana. Hann þykir þó hafa haldið verðgildi sínu mjög vel. Markaðurinn er svolítið reikandi eins og tölumar bera með sér en taka verður mið af því að þetta eignarform á hestum er enn að ryðja sér til rúms. En afgerandi fyrir verðmyndun á hlut í hesti er hversu miklum gæðum hann skilar af sér. Hlutafjáreignin miðast eðlilega við afkomuna. Þar sem Orri frá Þúfu er annars vegar er hún óum- deild og 6 prósenta ávöxtun ríkis- skuldabréfa verður eins og grín úr gömlum myndum, eins og einn hesta- maður orðaði það. EFTIRSPURN ERLENDIS FRÁ Sigurður Sæmundsson í Holtsmúla á einnig hlut í Orra. Hann segir að það sé mikil eftirspun erlendis frá í hlut í þeim ágæta fola. Þannig sé ekki óal- gengt að verið sé að bjóða 180-200 þúsund krónur fyrir að koma hryssu undir. „Ef hlutir í Orra yrðu auglýstir fengist örugglega mun hærri folatoll- ur, verðið mundi snarhækka. Verð á hlutum í Orra steig mjög hratt og það má segja að það hafi allt farið úr bönd- unum. Enda kom hvert fyrirmyndar- afkvæmið á fætur öðru undan hon- um,“ segir Sigurður. Sigurður segir að ávöxtunin af hlut í Orra sé engu lík. Máli sínu til stuðn- ings vitnar hann í verðbréfamiðlara á Wall Street, sem á 25 íslenska hesta. „En þetta eru ekki mörg tilvik og ekki stórt í sniðum. Þannig mundi sameignafélagið um Orra ekki þola miklu fleiri hluthafa, af augljósum ástæðum." ÓÐS MANNS ÆÐIAÐ SEUA Sameignarfélagið um Orra á sjálft 10 hluti, sem þýðir að 10 hryssur fá „aðgang" að folanum gegn 60 þúsund króna „aðgangseyri". En peningar ÓÐS MANNS ÆÐI „Það væri í raun óðs manns æði að selja hlut í Orra á 500 þúsund. Eigandinn getur verið að selja folald á sama verði ár eftir ár. Hluturinn er ævilöng eign. “ - Sigurður Sæmundsson í Holtsmúla, hluthafi í Orra frá Þúfu 40

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.