Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 46

Frjáls verslun - 01.09.1996, Side 46
'SSST- siana.vestræni ing. Þar er au?'' úrkynjuð. vestrænum fyrirtækjum, joint venture er lausnarorðið núna, leita mikið á hótelin til þess að finna hæfa starfsmenn sem kunna svolítið í erlendum tungumálum. Þeir geta boðið miklu hærra kaup en við. Flestir starfsmannanna eru Kínverjar og skiptast nokk- um veginn til helminga milli kynja. Helst viljum við fá fólk nýkomið út úr skóla. Fyrst vom flestir yfirmenn útlend- ingar en Kínverjum í stjórnunarstöðum fjölgar stöðugt. Við fáum mikið af fyrirspumum um vinnu frá útlöndum, m.a. frá íslendingum, en við getum ekki ráðið útlendinga nema hægt sé að sýna fram á það að ekki finnist hæfur Kínverji í starfið. Hér er enginn skortur á ófaglærðu starfsfólki." Halldór kemst á flug þegar hann ræðir um vinnuna og starfsfólkið. „Kínveijamir voru búnir að drepa niður allan vinnumóral þegar Maó var og hét. Menn pössuðu að vinna ekki of mikið, ef menn voru þreyttir þá hvfldu þeir sig vel en það voru allir jafnir sem þýddi að allir voru jafn slappir. Unga fólkið áttar sig miklu betur á gildi dugnaðarins. Nú getur sá, sem vinnur meira, borið meira úr býtum.“ Og Halldór heldur áfram að tala um breytingamar: „Deng Zhouping hefur gerbreytt landinu með því að opna fyrir viðskipti við umheiminn. Þetta stefnir allt í rétta átt þótt manni finnist kerfið oft martröð miðað við það sem maður á að venjast á Vesturlöndum. í Shanghai er við- skipalífið frjálslegra en hér í Bejing og þar er allt á fleygi- ferð upp á við. Maður veit ekki hvað tekur við eftir tíma Dengs, en ætli hann sé ekki búinn að setja þetta allt í rétt far til framtíðar, karlinn.“ FYRSTA SENDIRÁÐ ÍSLANDS í ASÍU Þegar íslendingar ákváðu að opna sendiráð í Asfu þá varð Hilton hótelið hans Halldórs í Bejing fyrir valinu. „Það gerðist þannig að Hjálmar W. Hannesson, sendiherra, og Anna Birgis, kona hans, komu til Bejing í ársbyrjun 1995 og bjuggu á hótelinu fyrstu mánuðina. Það var eiginlega sjálfgefið að sendiráðið hefði aðsetur í hótelinu fyrst um sinn. Það var fyllilega réttlætanlegt að opna sendiráð hér í Kína. Þetta er stærsti markaður í heimi og íslendingar voru farnir að sýna landinu mikinn áhuga. Sendiráðið getur veitt ýmiss konar fyrirgreiðslu og áhuginn á Kína hefur ekki minnkað við það að sendiráðið kom hingað. Auðvitað er það líka skemmtilegt fyrir okkur hjónin að hafa samband við fólkið í sendiráðinu. Sendiherrahjónin eru til dæmis FIMM STJÖRNU HÓTELSTJÓRI í KÍNA Það er ekki að efa að margir vildu upplifa ævintýralegan feril Halldórs sem varð stúdent frá Versló fyrir 25 árum og hélt þá út í heim til þess að mennta sig í hóteifræðum. Hann hefur verið víða. Nú er hann hótelstjóri á Hilton, fimm stjörnu hóteli í höfuðborg Kína, Bejing. 46

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.