Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 6
RITSTJORNARGREIN
HLUTHAFAR OG STJÓRNENDUR
Nýleg kaup Marels á danska fyrirtækinu Carnitech
A/S eru dæmi um vel unnin störf í íslensku fyrir-
tæki. Kaupin varpa ljósi á mátt liðsheildar og hverju
hægt sé að áorka þegar staðið sé þétt saman að
rekstri fyrirtækis - þegar starfsmenn, stjórnendur og
503 áhugasamir og sterkir hluthafar ná vel saman.
Kaupin árétta að hluthafar eru ekki bara einhverjir
úti í bæ sem eru með pappíra upp á
vasann um að eiga í fyrirtækjum - og
mæta á aðalfúndi til að fá sér kaffi og
kökur - heldur eru þeir nauðsynlegur
bakhjarl til að hrinda góðum hug-
myndum starfsmanna og stjórnenda í
framkvæmd. Hluthafar reka smiðs-
höggið á góðar hugmyndir með fjár-
magni sínu!
Kaupin á Carnitech hafa augljós-
lega fallið fjárfestum á íslenska hluta-
bréfamarkaðnum vel í geð - og vakið
enn meiri athygli þeirra á Marel.
Sölugengi hlutabréfa í Marel eftir
kaupin hafa hátt í tvöfaldast Þegar
Marel keypti var gengi bréfanna um 13,75 en nú er
það komið í um 24,00. Um áramóíin var gengi þeir-
ra um 11,05. A þessu ári hefúr gengi hlutabréfa ekki
hækkað jafn mikið í neinu fyrirtæki og í Marel. Mark-
aðurinn metur framtíð fyrirtældsins sem afar sterka -
enda stendur Carnitech fyrirtækið á gömlum merg,
danskt að uppruna en í raun alþjóðlegt Það er með
mikla og öíluga starfsemi í Bandaríkjunum þar sem
fyrirtækið þjónustar sjávarútveginn. Carnitech og
Marel eru með svipaða veltu og virðast falla ákaflega
vel saman. Saman leggjast kraftar!
Bent hefúr verið á að Marel sé í eðli sínu háskóla-
fyrirtæki - og er gott að hafa það í huga í ljósi mikill-
ar umræðu um menntun á Islandi og hvert stefni í
þeim málum. Þetta er fyrirtæki vísinda og þekkingar
þar sem slagkrafturinn felst í góðu hugviti og hug-
myndum. En tíl að smíða tólin og tækin, sem vísind-
in geta af sér, þarf góða og útsjónarsama smiði. Ekk-
ert tæki verður til án góðrar smiðju. Til að útkoman
verði góð verða háskólafyrirtældð og iðnfyrirtækið að
takast í hendur. Það þarf að hitta naglann á höfuðið
og gera réttu hlutina - en það þarf líka
að gera hlutina rétt og reka smiðs-
höggið á góðar hugmyndir! Þess
vegna verður að horfa á strenginn á
milli iðnmenntunar og háskólamennt-
unar þegar fluttar eru hástemmdar
ræður um menntun á tyllidögum,
eins og 17. jiúií - hvorug menntunin
getur án hinnar verið.
Umræðan um háskólafyrirtækið og
iðnfyrirtækið endurspeglast einnig í
sameiginlegum kröftum Carnitech og
Marels. Carnitech er rótgróið iðnfyrir-
tæki sem gert hefur hlutína rétt en
svo virðist sem það hafi skort það
hugvit og þá framtíðarsýn sem visindamenn Marels
búa yfir. Saman ráða fyrirtækin yfir miklum kröftum
og engin ástæða er til að ætla annað en að þeir leys-
ist skemmtilega úr læðingi á næstu árum. Þetta eru
krafitar sem teygja sig um víðan völl og þjónusta fyrir-
tæki í öllum heimshornum.
likt og kraftar hugvits og handar renna saman í
Carnitech og Marel er ekki síður ánægjulegt að sjá
hvernig kraftar starfsmanna og stjórnenda Marels
renna saman við 503 hluthafa fyrirtækisins. Þeir leit-
uðu í smiðju hver tíl annars. Starfsmennirnir hittu
naglann á höfúðið og hluthafarnir ráku smiðshöggið.
Jón G. Hauksson
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 58. árgangur
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir -
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson - UÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir - UMBROT: Ágústa
Ragnarsdóttir. ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. - RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105
Reykjavík, sími: 561-7575, fax: 561-8646 - ÁSKRIFTARVERÐ: 2.895 kr. fyrir 1.-5. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er
með kreditkorti. - LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. - DREIFING í bókaverslanir og söluturna á Stór-Reykjavíkursvæðinu
annast fyrirtækið Sala og dreifing, sími: GSM 89-23334. - FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan
Grafik hf. - UTGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
6