Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 57

Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 57
Bg gegni stöðu starfs- mannastjóra um þessar mundir en ég tók af rúmum í morgun og kom við í þvottahúsinu. Hér er enginn of góður til að bretta upp ermarnar og ganga í þau verk sem gera þarf,“ sagði Þorvaldur Skúla- son, sem annast starfs- manna- og markaðsmál á Hótel Holti, í samtali við Fijálsa verslun. Þorvaldur er nýlega kom- inn til starfa á Hótel Holti eft- ir rúmlega átta ár dvöl er- lendis við nám og störf. „Ég legg mjög mikla áherslu á samstarfið við starfsfólkið. Við veljum okk- ar starfsfólk af kostgæfni, gefúm okkur tíma til að þjálfa það og láta því líða vel. í hveiju fyrirtæki er ákveðin menning og við viljum kynna hana fyrir fólkinu okkar svo það nái að falla inn í hana. Það eru öll störf á hóteli jafn mikilvæg og starfsfólkinu þarf að líða vel, ekki síður en gestunum. Ef starfsfólkið brosir ekki fær það gestina ekki til þess.“ Heimsókn nr. 24 Hótel Holt var tekið í notkun 1965. Það er lítið hót- el með um 42 herbergi en al- geng stærð á hóteli í Evrópu er 300 herbergi. Hótelið leggur mikla áherslu á Þorvaldur Skúlason á Hótel Holti dáir óperur, finnst gaman að ferðast og er alinn upp á hóteli. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. er MGM Grand í Las Vegas en þar eru ríflega 5.000 her- bergi. „Við erum aðallega að fá til okkar fólk í viðskiptaerind- um og erum þess vegna ekki mikið með hópa. Til þess er hótelið of lítið og við viljum frekar einbeita okkur að hin- um hópnum. Gæði, hreinlæti og alúð við smáatriðin eru okkar aðalsmerki. Natni við smáhluti á herbergjum verð- ur til þess að gestinum líður vel og hann er ánægður. Þetta skilar sér í því að hann kemur aftur. Við minnum á til alinn upp á hótelinu því fað- ir hans, Skúli Þorvaldsson, er hótelstjóri þar. Þorvaldur varð stúdent frá MH 1988 og fór síðan til náms í Sevilla á Spáni þar sem hann lagði stund á spænsku og spænsk- ar bókmenntir. Þaðan lá leið- in til Þýskalands þar sem hann starfaði m.a. á hóteli í eitt ár. Það var hótel sem er aðili að Steigenberger bókun- arkeðjunni eins og Hótel Holt. En Holt er einnig í al- þjóðasamtökum lítilla hótela sem heita Relais & Chateaux. Eftir Þýskalandsdvölina lá íhaldssamar hefðir, glæsi- leika og þjónustu meðan Bandaríkjamenn kenna þér allt um hina viðskiptalegu hlið hótelreksturs og stjórn- un. Þetta voru afskaplega ólíkir skólar en í báðum lærði ég margt. Nám á að þroska þig og auka þér öryggi í starfi en gagnvart faginu þá verða menn að einhverju leyti að hafa þetta í sér.“ Eftir dvölina í Vegas bjó Þorvaldur í New York í rúm tvö ár og starfaði í heimi verðbréfa og viðskipta hjá verðbréfafyrirtækinu Burn- ham Securities. Hann segist ekki hafa kunnað alveg við sig handan við skrifborð og pappírshlaða. Hann vill fyrst og fremst hafa samskipti við fólk. Þannig má segja að með því að koma heim og heíja störf á Hótel Holti séu ákveð- in þáttaskil á starfsferli Þor- valdar sem segir að á hóteli sé brýnt að hafa fjölþætta reynslu og geta gripið inn í sem víðast. Þorvaldur er einhleypur og vinnur mikið en þegar tómstundir gefast finnst honum gott að vera á hreyf- ingu. „Ég hef mikla hreyfiþörf og vil gjarnan skrattast um á reiðhjólinu mínu, fara á skíði eða láta öllum illum látum á tennisvellinum. Ég vinn yfir- Þ0RVALDUR SKÚLAS0N, HÓTEL H0LTI persónulega þjónustu og að- búnað í efsta klassa og sú staðreynd að 93% gestanna eru útlendingar og 80% eru að koma í annað sinn eða oft- ar segir meira en margt ann- að um það hvernig til hefúr tekist. Til samanburðar má geta þess að stærsta hótel í heimi það með smágjöf þegar gest- ur kemur t.d. í fimmta sinn eða oftar og það vekur ánægju. Einn af okkar fasta- gestum hefur komið til okkar 24 sinnum,“ sagði Þorvaldur. Spánn, Sviss og Ameríka Þorvaldur er fæddur 1967 í Reykjavík. Hann er að hluta leiðin til Sviss á hótelskóla í Le Bouveret rétt hjá Montraux en þarlendir skól- ar eru taldir meðal þeirra bestu í heiminum. Eftir tvö ár þar flutti Þorvaldur til Amer- íku og lærði hótelstjórn í tvö ár við University of Nevada, Las Vegas. „I Sviss er lögð áhersla á leitt á laugardagskvöldum en eftir vinnu er gott að slaka og hitta kunningjana. Svo hef ég áhuga á ferða- lögum og ferðast töluverl mikið. Ég dái óperur og sæki sýningar rnikið á ferðalögum í ýmsum löndum. Mitt eftir- læti er La Bohéme eftir Puccini." 33 TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSS0N 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.