Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 36
VEITINGAREKSTUR
harðnandi samkeppni og stöðugt
fleiri veitingastöðum, ekki bara kín-
verskum. Alls kyns veitingastaðir eru
við Nýbýlaveginn, sem veita sam-
keppni, auk þess sem kínversku veit-
ingastaðirnir eru mjög margir og
samkeppnin því mest þar.
VERÐH) ENN ÞAÐ SAMA
Teitur segir að kinversku staðirnir
hafi aðeins verið þrír til fiórir fyrir tíu
árum en nú séu þeir að minnsta kosti
tíu talsins fyrir utan ýmsa aðra veit-
ingastaði, til dæmis með tælenskan
mat. Slfldr staðir veiti mikla sam-
keppni, sérstaklega þeir tælensku,
Qhandrika Gunnarsson hefur
rekið indverska veitingastað-
inn Austur-Indíafielagið við
Hverfisgötu frá 1994 að hún keypti
staðinn ásamt eiginmanni sínum,
Gunnari Gunnarssyni. Staðurinn
nefndist þá Taj Mahal og hafði verið í
rekstri um nokkurt skeið, taldist vera
með indverskan matseðil. Chandrika
rak staðinn í nokkra mánuði, eldaði
matinn og reyndi að fá viðskiptavinina
til að segja sér hvað þeir vildu. Sjálf var
hún ekki ánægð með staðinn og þá
matargerð sem þar fór fram enda alin
upp við ekta indverska matargerð á
heimaslóðum sínum í Suður-Indlandi.
Eftir nokkurra mánaða rekstur
breyttu Chandrika og maður hennar
staðnum og matseðlinum að indversk-
um hætti, eins og Chandrika best
þekkti til, og réðu til sín færan kokk
frá Indlandi. Þau fengu strax frá upp-
hafi krydd og ýmislegt hráefni beint
frá Indlandi og lögðu strax áherslu á
að hafa fyrsta flokks þjónustu og frá-
bæran mat fyrir milliverð. Þegar rætt
er við Chandriku kemur strax í ljós að
hún hefur þaulhugsað reksturinn.
Hún hefur ákveðnar skoðanir og
stefnir hátt með reksturinn.
wmmmmmmmmmmmmmmmummmm
enda sé matargerðin svipuð þeirri kin-
versku.
„Fólk fer í steikhús og borgar 2.000
krónur fyrir eina steik. Hjá okkur fær
það rétt dagsins, fiórrétta máltíð fyrir
1.250 krónur. A tíu árum hefur hráefn-
ið hækkað í verði og launin líka en við
erum ennþá með sama verðið,” segir
hann og bætir við að samkeppnin
harðni því enn eigi eftir að opna fleiri
staði.
-Hvernig ætlar hann að mæta því?
„Við sjáum bara til hvað hinir gera.
Við fylgum bara með. Eg fer ekki í
stríð nema hinir fari í stríð,” svarar
hann. S3
Chandrika er sú yngsta í þessum
hópi veitingamanna af erlendum upp-
runa, aðeins 33ja ára gömul með próf
í hagfræði og alþjóðafræðum, lauk
meistaraprófi í
alþjóðatengslum
og alþjóðavið-
skiptum frá há-
skóla í Banda-
ríkjunum. Veit-
ingastaðurinn er
sameign þeirra
hjóna þó að
Chandrika sjái
fyrst og fremst
um reksturinn.
Þegar þau
keyptu veitinga-
staðinn höfðu
þau í huga að
gjörbreyta hon-
um. Þau héldu
gamla nafninu
og gamla matn-
um í þijá mánuði
þó að Chandrika
væri alls ekki nógu ánægð með það
áður en þau lögðu til atlögu.
„Við reyndum að spá í það hverjir
viðskiptavinir okkar væru. Eg talaði
við viðskiptavinina til að vita hverju
þeir væru á höttunum eftir þegar um
indverskan mat væri að ræða, til að
vita hveijar væntingar þeirra voru.
Það kom í ljós að þeir vildu fá ind-
verskan mat, sem bragðaðist eins og
hann myndi bragðast á Indlandi. I
október 1994 breyttum við matseðlin-
um og fórum að bera fram mat eins
og ég var vön frá uppvaxtarárum mín-
um í Indlandi. Við fáum krydd beint
frá Indlandi, beint frá foreldrum mín-
um sem rækta krydd,” segir Chand-
rika.
VARÐ ALVÖRU STAÐUR
„I janúar 1995 kom svo kokkurinn
okkar frá Indlandi. Þetta varð alll til
þess að þetta varð alvöru indverskur
staður. Strax um sumarið fóru við-
skiptin að ganga vel. Við fengum svo
mikla athygli þegar við lentum í hópi
fiögurra eða fimm bestu veitingastaða
hjá Dagsljósi,” segir Chandrika.
-Var erfitt að byija með veitinga-
rekstur?
,Já, auðvitað. Það er engin spurn-
ing. Það er alltaf erfitt að byija með
rekstur. Eg hafði mikla trú á þessum
rekstri. Eg hafði trú á því að Islending-
ar þekktu til indverskrar matargerðar
og létu ekki bjóða sér að fá á diskinn
indverskan mat
sem aðeins
væri það að
nafninu til því
að þeir hefðu
borðað ind-
verskan mat er-
lendis. Ég vissi
að fólk vildi
prófa og kynni
að meta góðan
indverskan
veitingastað.
Það bætir alltaf
kryddi í þjóðfé-
lagið að hafa
öðruvísi eld-
hús,” segir
hún.
Erfiðleikarn-
ir fólust eink-
um í tvennu. í
fyrsta lagi þurfti að kveða niður það
orð sem fór af staðnum frá fyrri
rekstri um að þar væri lélegur matur
og staðurinn alltaf tómur. í öðru lagi
BHBHHHBBBBIHBBBBBB9SÍI
Chandrika Gunnarsson,
eigandi Austur-Indíafjelagsins:
ÞAULHUGSAR REKSTURINN
/ janúar 1995 kom
kokkurinn okkar frá
Indlandi. Þá fyrst varð
þetta alvöru indversk-
ur veitingastaður.
Þegar um sumarið
fóru viðskiptin að
ganga vel - við feng-
um svo mikla athygli.
36