Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 41
VEITINGAHUS
heppnist verða tónarnir að falla vel
saman. Hann raðar saman ýmsum
bragðtegundum svo að úr verður
spennandi bragðsinfónía.
Annað séreinkenni veitingastaðar-
ins Við Tjörnina er að eiginlega er
ekki til neinn fastur matseðill. Hann
breytist stöðugt, fer eftir hvað er til og
hvað er best á markaðnum hveiju
sinni. Við Tjörnina er fiskveitingahús.
Helstu kostir staðarins eru spennandi
og óvenjulegir réttir, matseðill sem er
í stöðugri endurnýjun og ferskt og
gott hráefni.
Sjálfar veitingastofurnar minna á
reykvískt yfirstéttarheimili á fyrstu
árum aldarinnar. Sigríður, eiginkona
Rúnars, er framkvæmdastjóri staðar-
ins og vakir yfir öllu haukfránum aug-
um, en stjórnar þó liði sínu mildri og
móðurlegri hendi. Sigríður er höfund-
ur þess hlýlega andrúmslofts sem ein-
kennir Við Tjörnina.
Eins og gefur að skilja eru Rúnar
og menn hans góðir í fiskinum en
einnig í allri villibráð. Þá er það mikill
kostur við þetta ágæta fiskveitingahús
að þar er hægt að fá ljúffenga græn-
metisrétti. Verðlag er frekar sann-
gjarnt og mjög gott ef miðað er við
Rúnar Marvinsson hefur algjöra sérstöðu á meðal íslenskra matreiðslu-
manna. Hann er meistarakokkur, en nam kúnstina ekki í Hótel- og veitinga-
skólanum heldur í skóla lífsins. FV-myndir: Geir Ólafsson.
bikkju, fyllta með rækjum og Brie kemur jafnan aftur til baka endur-
osti, eða þá hunangsristaðan steinbít nærður og með nýjar hugmyndir í
EINS OG TONSKALD
Staðurinn er þekktur fyrir Rúnar Marvinsson - og hans óvenjulegu fiskrétti.
gæði matarins. Sex rétta sælkeramat-
seðill er aðeins á kr. 3.950, en á seðlin-
um er boðið upp á humarragú, gull-
laxasúpu, svartfuglssalat með balsam-
iksósu, krapís, eyfirska eldislúðu með
rækjum og púrtvínssósu og að lokum
blandaða eftirrétti. Það verður nú að
segjast eins og er að þetta er ekki
amalegur seðill.
Einn af vinsælustu og þekktustu
réttunum á matseðli „Tjarnarinnar”
eru kryddlegnar gellur eftir kenjum
kokksins. Þessi réttur bregst aldrei.
Og hvað segið þið um eldsteikta tinda-
með rauðlauk og kantarellusveppum?
Já, það er enginn veitingastaður í
Reykjavík eins og „Við 'fjörnina”, jafn-
vel þótt víðar væri leitað.
Það hafa stundum heyrst þær
gagnrýnisraddir að meistarinn sjálfur,
Rúnar Marvinsson, sé oft flarstaddur.
Náttúra meistarans er nú þannig að
það er honum lífsnauðsyn að skreppa
af og til og renna fyrir silung. Þá kem-
ur það fyrir að Rúnar er beðinn að
kynna erlendis íslenska sjávarrétta-
eldhúsið. Persónulega held ég að
þetta komi ekki að sök. Meistarinn
höfðinu. Þá er rétt að geta þess að
matreiðslumenn staðarins eru einkar
hæfir og ég held að ég halli ekki á
neinn þó að ég nefni Gylfa Hvannberg
sérstaklega í því sambandi, en hann
hefur starfað með Rúnari nú í
nokkurn tíma. Við Tjörnina er í einu
orði sagt frábær veitingastaður sem
stöðugt kemur ánægjulega á óvart. S3
Við Tjörnina,
Templarasundi 3, sími: 551 8666.