Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 58
Þórhildur Einarsdóttir, forstöðumaður einstaklingsráð-
gjafar Kaupþings, er í gönguhópi, saumaklúbbi og
leshring.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
um að áhugi einstaklinga á
að festa fé i hlutabréfum sé
að verða svo útbreiddur að
fermingarbörnin mæti með
fermingarpeningana niður í
Kaupþing til þess að kaupa
hlutabréf.
„Þetta er auðvitað undan-
tekning en það eru nokkur
dæmi um þetta og sýnir vel
breiddina í okkar viðskipta-
vinahópi. I vor komu þó-
nokkrir unglingar með 80 -
100 þúsund krónur og
keyptu bréf í 2-3 fyrirtækj-
um. Þeir voru greinilega
búnir að undirbúa sig fyrir
þetta.“
Þórhildur hefur unnið í
Kaupþingi frá 1993 og segir
að það sé afskaplega
skemmtilegt verkefni að
vinna á verðbréfamarkaði
þegar vel gengur. Aukin
ásókn hefur verið í
hlutabréfakaupum, sérstak-
lega í sjávarútvegsfyrirtækj-
um sem taka þátt í veiðum á
uppsjávarfiski en Þórhildur
segir að þau leiði markaðinn.
Umræða um það hvort
fyrirtæki á verðbréfamark-
aði séu ef til vill ofmetin hef-
ur verið tíð og Þórhildur seg-
til Austin í Texas í Banda-
rikjunum þar sem hún lærði
í þrjú ár við University of
Texas og útskrifaðist þaðan
1992.
„Eg kunni vel við Austin.
Þetta er 50 þúsund manna
skóli í 500 þúsund manna bæ
og þarna er mikil náttúrufeg-
urð og fjölbreytt og
skemmtilegt mannlíf. Það er
stundum sagt að allt sé
stærst í Texas og þeir leggja
töluvert upp úr því. Eg neita
því ekki að mér fannst Island
svolítið litið þegar ég kom
heim, sérstaklega að bera
saman verðbréfamarkaðina í
þessum tveimur löndum en
ég hef fylgst með eða unnið
á verðbréfamarkaði frá
1988.“
Þórhildur segist vinna
mikið en gefa sér samt tíma
til þess að lifa lífinu utan
vinnunnar og leggja stund á
ýmis áhugamál utan vinn-
unnar. Hún er ógift og barn-
laus en segist eiga kærasta.
„Eg gef mér auðvitað tíma
til að fara í leikfimi seinni-
hluta dagsins en kem svo aft-
ur til vinnu. Ég er félagi í
gönguhóp, saumaklúbbi og
ÞÓRHILDUR EINARSDÓTTIR, KAUPÞINGI
ingað til okkar koma
einstaklingar sem
vilja kaupa eða selja
hlutabréf. Við veitum ráð-
gjöf, önnumst fjárvörslu og
sjáum um bókstaflega allt
sem lýtur að ijárfestingum
fyrir einstaklinga," sagði
Þórhildur Einarsdóttir, for-
stöðumaður einstaklingsráð-
gjafar Kaupþings í samtali
við Frjálsa verslun.
„Veltan á hlutabréfamark-
aðnum hefur aukist alveg gíf-
urlega og var um 6 milljarðar
í heild á síðasta ári. Það vilja
allir græða á hlutabréfum og
vera með í þeirri uppsveiflu
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSS0N
sem er í gangi um þessar
mundir. Við erum með fjóra
ráðgjafa í starfi sem sinna
einstaklingsráðgjöf og erum
að bæta einum við. Hér eru
umsvifin stöðugt að aukast
og við höfum alls bætt við 10
nýjum starfsmönnum eftir
áramót.
Við sjáum gríðarlega
aukningu í því að fólk kemur
hingað og leitar eftir þjón-
ustu og ráðgjöf. Það koma
hér föstudagar sem líkjast
helst áramótum að þessu
leyti sem eru þó jafnan mesti
annatími ársins.“
Stundum heyrast sögur
ir að hún sé ekki síður í
gangi innan fyrirtækisins en
spár um hækkun hlutabréfa
hafa að undanförnu reynst of
varkárar.
„Þessi uppsveifla hefur
staðið síðan 1995. Það verð-
ur fróðlegt að sjá hvort árið í
ár verður jafn gott og í fyrra.
Við sjáum ekki fram á neina
lækkun á markaðnum. Þetta
er frekar spurning um hve
hratt hann hækkar.“
Þórhildur varð stúdent
frá Verslunarskóla Islands
1986 og fór eftir árshlé í Há-
skólann og lærði viðskipta-
fræði þar í tvö ár en hélt þá
leshring. Á veturna fer ég
töluvert á skíði sem mín
íþrótt ef svo má segja.“
Leshringurinn starfar allt
árið og starfsemi hans bygg-
ir á því að meðlimir ákveða
að lesa tilteknar bækur og
ræða saman efiii þeirra.
„Þetta er skemmtilegt við-
fangsefni og hvetur til lest-
urs annars en fræðibóka. Á
síðasta ári er mér minnis-
stæðust bók Súsönnu
Tamaró, Lát hjartað ráða för.
Næsta verkefni leshringsins
er að taka fyrir bók Guð-
mundar Andra Thorssonar,
Islandsförina." 53
58