Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 18
FORSÍÐUEFNI
KONUNGU
Friðrik Þór Friðriksson hefur gríðarleg völd í íslenskri
kvikmyndagerð. Hann á Islensku kvikmyndasam-
steypuna sem kemur að gerð alira leikinna íslenskra bíó-
mynda um þessar mundir. Fyrirtækið hefur velt tæpum
milljarði frá stofnun þess árið 1990.
FV-mynd: Geir Ólafsson.
KÓNGURINN Á DJÖFLAEYJUNNI
Djöflaeyjan er síðasta kvikmynd Friðriks Þórs og staðfest-
ir stöðu hans sem konungsins í íslenskum kvikmyndaiðnaði.
I þeirri atvinnugrein ber hann ægishjálm yfir alla aðra, enda
má segja að ekkert annað fyrirtæki fáist við gerð leikinna ís-
lenskra kvikmynda um þessar mundir. Islenska kvikmynda-
samsteypan kemur með einum eða öðrum hætti að gerð allra
kvikmynda sem er verið að gera á Islandi eða stendur til að
gera. Ymist er IK framleiðandi, meðframleiðandi eða leggur
fyrirtækjum lið með því að lána þeim tækjabúnað annaðhvort
til töku eða eftirvinnslu.
Meðal verkefna, sem IK er með í farvatninu á ýmsum stig-
um, má nefna næstu kvikmynd Friðriks Þórs sem verður tek-
in og unnin á Irlandi nær eingöngu fyrir erlenda aðila. Ari
□ jöflaeyjan, kvikmynd eftir Friðrik Þór Friðriksson, sló
aðsóknarmet á síðasta ári en um 70 þúsund manns
komu í bíó til að lifa sig inn í líf fólksins í braggahverf-
inu. Þetta er besta aðsókn sem íslensk kvikmynd hefur feng-
ið í rúman áratug og þarf að leita allt aftur til þess tíma sem
stundum er kallaður íslenska kvikmyndavorið til þess að finna
hliðstæður. Þá, á árunum 1975-1985 vildu allir sjá íslenskar
kvikmyndir og söngva- og gleðimyndin Með allt á hreinu dró
til sín 120 þúsund áhorfendur. Gamanmyndirnar Dalalíf og
Nýtt líf náðu svipuðum árangri en um 100 þúsund manns
komu til að sjá þær.
Friðrik Þór Friðriksson var fyrir fáum
stœrsta og eina fyrirtækisins á Islandi sem
Kristinsson, myndatökumaður, samstarfsmaður og vinur
Friðriks til margra ára, hyggst ráðast í gerð kvikmyndar sem
heitir Stikkfrí. Júlíus Kemp er að ljúka mynd sem heitir
Blossi, Hilmar Oddsson ætlar að gera kvikmynd sem heitir
Sporlaust, svo fátt eitt sé nefnt. Allar þessar myndir eru
tengdar IK en misjafnlega mikið. Alls eru ellefu leiknar kvik-
myndir á ýmsum stigum vinnslu sem Islenska kvikmynda-
samsteypan kemur mismikið nálægt.
Djöflaeyjan sló aðsóknarmet á íslandi á síðasta ári. ís-
lensk kvikmynd hefur ekki fengið svo mikla aðsókn frá
því að Með allt á hreinu var sýnd fyrir 14 árum.
GETURÐU LANAÐ MER,..?
Leiðir til að fjármagna gerð kvikmynda eru einkum þrjár.
Hægt er að sækja um slyrki til Kvikmyndasjóðs íslands, Nor-
ræna kvikmyndasjóðsins og Evrópska kvikmyndasjóðsins,
Eurimages. Allir þessir sjóðir ^
setja ýmis skilyrði fýrir lánveit-
ingu, t.d. vilja þeir sjá vilyrði frá
öðrum sjóðum, vilja að um-
sækjandi sé með tiltekið hlut-
TEXTI:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
18