Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 26
STJORNMAL galli. Hann kemur mér ekki fyrir sjónir sem mikill hug- sjónamaður í pólitík - og það finnst mér afar slæmt. Hann er ekki maður stórra breytinga og markmiða sem veit upp á hár hvert hann stefnir og hvað hann ætlar sér. Þrátt fyrir alúðlega framkomu, sem fleytir mörgum ansi langt í stjórn- málum, fínnst mér eins og að Guðmundur hafi lent í hálfgerðum ógöngum í of mörgum málum - og sem hafa ekki gefið neitt tilefni til vandræðagangs. Þetta ber keim af klaufaskap. Stóra mál- ið, sem hann brást í, var gerð hins nýja bú- vörusamnings. Þar glutraði hann niður tækifæri til að ná fram meiri sparn- aði fyrir ríkissjóð og aukinni samkeppni í greininni. Sama má segja um úreldingu Mjólkurbúsins í Borgar- nesi. Þar var lokað fyrir möguleika á auknu frjálsræði í atvinnumálum þjóðarinnar. Guðmundur Bjarnason, land- búnaðar- og umhverfisráð- herra. ,,Afar geðþekkur en kraftlítill.” Þá fannst mér hann skorta röggsemi sem umhverfis- ráðherra þegar byggingu nýs álvers á Grundartanga var mótmælt í vetur. Þar átti hann að koma sínum sjónar- miðum að, skýrt og örugglega, og ljúka því máli. Það var eins og aðrir ráðherrar kláruðu það mál fýrir hann. Ennfremur lenti hann í basli þegar hann flutti Land- mælingar upp á Akranes. Umhverfismál eru eitt helsta hagsmunamál þjóðarinnnar og mér finnst þeim ekki hafa verið gert nægilega hátt undir höfði undir hans stjórn. Það eru breyttir tímar í stjórnmálum. Fólk vill stjórnmálamenn með lausnir - menn sem eru tilbúnir til að fara í slag, láta bijóta á málum - og framkvæma; full- vissir um að það muni skila sér síðar. Einkunn: Ég gef Guðmundi tvær stjörnur. Hann vantar kraft og mark- mið.” BJÖRN BJARNASON +*i Arni um Björn Bjarnason menntamálaráðherra: „Björn er mjög vinnusamur ráðherra og það er hans helsti kostur. Sömuleiðis virðist hann mjög nákvæmur og velta málum mikið fyrir sér. Hann sýnist hafa mikinn metnað til að standa sig vel sem stjórnmálamaður. Þótt ég telji nákvæmni í vinnubrögðum honum til tekna þá finnst mér hann gjarn á að ganga oft of langt í þeim efn- um og verða fýrir vikið mjög smámunasamur. Smá- munasemin er raunar hans helsti ókostur. Ég tel að Birni hafi ekki tekist að nýta sitt ráðuneyti vel. Hann hefur komið fremur seint fram með hug- myndir um breytingar. Síðastliðinn vetur kom hann fram með ffumvarp til laga um Háskólann. Þetta ffum- varp var ekki samþykkt í þinginu og það þarf að vinnast töluvert betur. í ljósi þessa velti ég því fýrir mér hvort hann nái að virkja fólk í kringum sig nægilega vel til A4 BLAÐ I menntamálunum finnst mér hins vegar vera kominn tími til - og það fyrir löngu - að taka lítið A4 blað og skrifa niður lista um það hvernig menn vilji sjá menntakerfið. Það þarf að stokka þetta kerfi upp. Þetta hefði ég viljað sjá Björn gera. - Árni Gunnarsson Kannski litast mín afstaða dálítið af því að ég hafði miklar væntingar til Björns þegar hann byrjaði sem ráðherra. Nú leitar sú spurning á mig hvort Björn sé í réttu 1 áðuneyti. Björn Bjarnason menntamála- , ráðherra. „Vinnusamur en Ut frá mörgum smámunasamur.” greinum hans að dæma sýnist hann hafa mestan áhuga á utanríkismálum - og mun meiri en á menntamálum. Stundum hafa þær vangaveltur komið upp að hann verði næsti foringi í Sjálfstæðisflokknum, næsti leiðtogi hans og taki við af Davíð, en ég held að svo verði ekki. Einkunn: Ég gef honum tvær og hálfa stjörnu.” starfa - eða hugsar hann þannig að hann ætli sér að vinna þetta allt saman sjálfur. Sú spurning vaknar hvort ekki sé hægt að nýta þetta ráðuneyti betur. í menningar- málum hefur Björn staðið sig vel. í menntamálunum finnst mér hins vegar vera kominn tími til - og það fýrir löngu - að taka eitt lítið A4 blað og skrifa niður lista um það hvernig menn vilji sjá mennta- kerfið. Það þarf að byija upp á nýtt og stokka þetta kerfi upp. Þetta hefði ég viljað sjá Björn gera. 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.