Frjáls verslun - 01.05.1997, Blaðsíða 29
STJÓRNMÁL
miðlum - sem og öll vinnbrögð gagnvart fjölmiðlum.
Hann hefur skapað sér ákveðna ímynd í þeim. Hún er
örugg - en einnig fjarræn. Hann hefur ævinlega rétta
framkomu fyrir framan sjón-
varpsmyndavélar, en segir
aðeins það sem hann
ætlar að segja fyrir-
fram - ekkert meira.
Fyrir vikið er erfitt
að ráða í hann. Eg
man ekki eftir
neinum sérstök-
um afrekum hjá
Þorsteini í starfi.
Stundum hefur því
verið velt upp hvort
hann sé of hallur und-
ir Kristján Ragnars-
son, formann LIU,
varðandi stjórnun
fiskveiða. Eg held
ekki. Hann hefur
hins vegar ekki
hleypt af stað nauðsynlegri umræðu um kvótakerfið og
veiðileyfagjaldið. Hann hefur ekki opnað fyrir nýjar hug-
myndir.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra. „Ytirvegaður en gárar
ekki vatnið.”
anna eins og þeir eru klæddir og segja hlutina beint út,
tala íslensku, eins og það er stundum nefnt. Páll virðist
mjög óhræddur við að segja sína skoðun þótt hún falli
fólki ekki í geð.
Sem félagsmálaráðherra hefur hann komið skemmti-
lega á óvart. Eg átti satt að segja ekki von á miklu frá
honum í þessu stjórnarsamstarfi. Aður en hann varð
ráðherra gat hann aldrei ílutt ræðu án þess að ráðast á
Sjálfstæðisflokkinn og allt það sem hann stendur fyrir.
Þótt aðeins séu liðin tvö ár af kjörtímabilinu virðast við-
horf hans, eins og til dæmis gagnvart félagslega hús-
næðiskerfinu, eiga meiri samleið með Sjálfstæðisflokkn-
um en viðhorf Alþýðuflokksins. Hjá krötunum var það
KLÆDDUR
Þótt ég teljist ekki til aðdáenda Páis - og
sé yfirleitt á annarri skoðun en hann í
stjórnmálum - þá virði ég hann fyrir að
segja skoðun sín tæpitungulaust og
koma til dyranna eins og hann er
klæddur.
- Guðlaugur Þór Þórðarson
Halldór Ásgrímsson hóf sl. haust umræðu á flokks-
þingi Framsóknarflokksins um að vel mætti skoða þann
kost, ef kvótinn yrði aukinn eins og nú hefur orðið raun-
in, að ríkið seldi þennan viðbótarkvóta á markaði - en út-
hlutaði honum ekki ókeypis til þeirra útgerðarmanna
sem ættu kvóta fyrir. Menn urðu almennt glaðir að það
skyldi einhver ráðherra í ríkisstjórninni ljá máls á nýjum
hugmyndum varðandi sjávarútvegsmálin. I þessum efn-
um mætti Þorsteinn taka sig á.
I raun virkar Þorsteinn orðið á mig sem farsæll emb-
ættismaður en ekki sem áhugasamur pólitíkus. Eg skil
hann á vissan hátt, hann er einu sinni fyrrverandi leið-
togi Sjálfstæðisflokksins. Það hlýtur að vera erfitt fyrir
hann að taka þátt í leiknum í skugga Davíðs. Einkunn:
Eg gef honum tvær og hálfa stjörnu - ekki meira.”
PÁLL PÉTURSSON
★★★
Guðlaugur Þór um Pál Pétursson félagsmálaráð-
herra: „Páli Péturssyni verður örugglega seint lýst sem
nútímalegum stjórnmálamanni! Helstu kostir hans
liggja í sterkum persónuleika; hann er harður í horn að
taka. Hann telst vera íhaldsmaður með öllum þeim kost-
um og göllum sem því fylgir. Hann er kjördæmisþing-
maður af gamla skólanum. Eg vil orða þetta þannig að
hann sé af ákveðinni „tegund” stjórnmálamanna sem sé
að hverfa - og koma líklegast ekki aftur fram á sjónar-
sviðið. Það er mikill kostur þegar menn koma til dyr-
sjónarmið áberandi að miklu fleiri félagslegar íbúðir
væru á Norðurlöndunum og því ættum við að stórauka
byggingu slíkra íbúða. Páll virðist vera að skoða alvöru
lausnir.
Sömuleiðis er Húsnæðisstofnun honum ekki eins
heilög kýr og krötunum - þó svo að mér finnist miða allt
of hægt hjá honum í að ganga alla
leið og leggja Húsnæðis-
stofnun hreinlega niður.
Hún er óþörf. Páll ætl-
aði að taka húsbréfin
út úr stofnuninni í
apríl sl. en hefur
enn ekki komið því
í verk - því miður.
Þótt ég teljist
ekki til aðdáenda
Páls - og sé yfirleitt á
annarri skoðun en
hann í stjórnmálum
- þá virði ég hann
fyrir að segja skoð-
un sín tæpitungu-
laust og koma til
dyranna eins og
hann er klæddur. Einkunn: Eg ætla að vera mjög örlát-
ur í stjörnugjöf og gefa honum þrjár stjörnur, mest
vegna þess að ég held að honum takist að breyta hús-
næðiskerfinu.” H3
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra. „Ekki nútímalegur en
talar „íslensku”.”
29