Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Qupperneq 9

Frjáls verslun - 01.05.1997, Qupperneq 9
W.\mWWWXt?W\WM Gústaf Adolf Hjaltason skoðar eim- ketil. Eimkatla er að finna í allt frá efnalaugum til loðnubræðslna og þarf að skoða þá einu sinni á ári. Hveragerði, Vestmannaeyjum og Keflavík, auk aðalskrifstofunnar að Bíldshöfða 16 í Reykjavík. Úti á landi eru 19 stöður en alls eru 55 störf hjá Vinnueftirlitinu og starfsmenn rúmlega 60. Auk eftirlitsstarfanna sinnir Vinnueftirlitið umfangs- miklum fræðslu- og leiðbeiningarstörfum í formi námskeiða og útgáfu. Námskeið __ eru haldin fyrir allt frá stjórnendum vinnuvéla til öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða sem og stjórnenda fyrir- tækjanna sjálfra. Á stjórnendanámskeið- unum er fjallað um hvernig skipuleggja eigi vinnuverndarstarfið inni í fyrirtækj- unum og gera mönnum kleift að leysa málin sjálfir á vinnustöðunum að eigin frumkvæði með því að fella eftirlitið inn í stjórnun í samráði við starfsmenn á hverjum stað. Önnur verkefni Vinnueftirlitsins eru: Úttektir og mælingar á hávaða og meng- un, prófanir og umsagnir um vélar og tækjabúnað, rannsókn á tilkynntum vinnuslysum, atvinnusjúkdómavarnir, eft- irlit með innflutningi og meðferð eitur- efna, viðurkenning véla og tækja, um- sögn um teikningar nýs vinnuhúsnæðis og úthlutun starfsleyfa. Jónína Valsdóttir við að firamkvæma mælingar á loftræstikerfi. Fjöldi vinnuslysa 1991 til 1996 Fiskiðnaður; hraðfrystihús; fiskv.stöövar Bygging og viðgerð mannvirkja (atvinnur.' Málmsmíði, vélav., skipasmíði og skipav. Opinber stjórnsýsla Rekstur Pósts og síma Ál- og járnblendiiðnaöur Opinber þjónusta o.fl. Flutningastarfsemi o.fl. Heildverslun Matvælaiðnaður; vinnsla landbúnaðarafurða Rafmagns-, hita- og vatnsveitur Annað 358 328 584 466 ! 291 277 258 188 153 138 120 HAAR FJARHÆÐIR TAPAST „Árið 1993 mótaði stjóm Vinnueftirlitsins þá stefnu að eftirlitið skyldi vera sem allra mest innbyggt í starfsemi fyrirtækjanna sjálfra fremur en að um utanaðkomandi eftir- Heildarfjöldi vinnuslysa á árunum 1991 til 1996 var 4.372. VINNUEFTIRLIT RIKISINS BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567 2500 • FAX: 567 4086 lit væri að ræða. Er nú unnið kappsam- lega að því að svo megi verða. Fyrirtæki gæti byggt upp kerfi sem væri sérstök stoð í stjórnkerfi þess, hliðstætt gæða- stjórnun og umhverfisstjórnun sem er að ryðja sér til rúms hér á landi. í minni fyr- irtækjum gæti eftirlitið verið sérstakur þáttur í gæðakerfinu eða tengst því," segir Eyjólfur og bætir við: „Vinnuvernd er mjög mikilvægt, þjóðfélagslegt mál- efni, enda sýna nýlegar rannsóknir að víða glatast 4-6% af vergri þjóðarfram- leiðslu vegna vinnuslysa, atvinnu- tengdra sjúkdóma, slits á fólki og eigna- tjóns sem tengist aðstæðum á vinnu- stað. Niðurstöður norskrar rannsóknar benda til að tapið geti verið yfir 10 pró- sent. Ég tel að miklu meira sé um það að fólk slitni líkamlega og hljóti álagssjúk- dóma af vinnustriti sínu en viðurkennt hefur verið fram að þessu. Fólk einfald- lega hverfur af vinnumarkaði, verður atvinnulaust og öryrkjar án þess að mik- ið sé eftir því tekið. í Evrópu er lögð töluverð áhersla á vinnuvernd og að hún sé að sjálf- sögðu innbyggð I alþjóðasamninga um mann- réttindi." ISTJ0RNUN FYRIRTÆKJA Q

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.