Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Page 17

Frjáls verslun - 01.05.1997, Page 17
mikið af viðskipta- skuldabréfum og raðgreislusamningum greiöslukortafyrir-t- ækja og ekki síst fjár- fest umtalsvert í hluta- bréfum, sem eru aðal- lega í félögum, sem skráð eru á Verð- bréfaþingi íslands og Opna tilboðsmarkaðnum. Viðskipti með hlutabréf Samvinnusjóðs íslands hf. hófust á Opna tilboðsmarkaðnum í árslok 1994. Hluthafar eru nú á annað hundrað en stofnhluthafar voru í upphafi 60 talsins. Stærstu hluthafar í Samvinnusjóðnum eru nú Samvinnulífeyrissjóður- inn, Olíufélagið hf. og Vátryggingafélag íslands hf. 82% AUKNING MILLIÁRA Lánastarfsemi Sam- vinnusjóðsins jókst um 82% milli áranna 1995 og '96 - úr 1878 milljónum í 3425 milljónir króna. Mest var aukningin í fasteigna- veðlánum og bílalánum. Samvinnusjóðurinn veitir einstaklingum lán til allt að 25 ára og henta þau meðal annars þeim sem eru að velta fyrir sér nýbyggingum jafnt sem viðhaldi fast- eigna. Vextir af lánunum miðast við vaxtakjör á hverj- um tíma, auk þess sem vaxtakjörin eru metin í hverju einstöku tilfelli fyrir sig. Bílalán Samvinnusjóðs íslands hafa verið til kaupa á nýjum bílum jafnt sem notuðum. Lánshlutfall við kaup á nýjum bíl getur numið öllu verði btlsins og verið til allt að 6 ára. Kaupandi ræður sjálfur hvar hann tryggir bd sinn, en sjóðurinn gerir kröfu til þess að hann sé ábyrgðar- og kaskótryggður á meðan lánið er ógreitt. Flokkar lántakenda í prósentum. Sjávarútvegur 3% ■ Hagnaöur Vaxtatekjur Óski lántakandi að lækka greislubyrði sína með aukainn- borgunum umfram það, sem ráð var fyrir gert í upphafi, er hon- um það frjálst sem og að greiða lánið upp fyrr en áætlað var. SVEIGJANLEIKI Arnór Heiðar Arnórsson, framkvæmda- stjóri Samvinnusjóðs íslands, segir að markmið fyrirtækisins sé að vera sveigjan- legt og laga sig að því sem sé að gerast á markaðnum hverju sinni. Starfsemin er nánast sú sama og er hjá bönkum nema að fyrirtæki má ekki taka við innlánum frá ein- staklingum. í staðinn fyrir að fjármagna starfsemina með innlánum eru gefin út skuldabréf sem seld eru á Verðbréfamarkaðnum. Félaginu er heimilt að aðgreina starfsemi sína frá annarri fjármálastarfsemi með því að nota orðið „fjár- festingarbanki" með nafni sínu eða í tengslum við það. í júní flutti Samvinnu- sjóður íslands úr Ingólfs- stræti 3 í stærra og hent- ugra húsnæði í Sigtúni 42 - í hús íslenskra sjávar- afurða. Starfsmenn eru nú átta talsins en mun fjölga þegar á árið líður. Mikið er lagt upp úr traustri og persónulegri þjónustu hjá Samvinnu- sjóðnum og veitir starfsfólkið alla ráðgjöf, sem viðskiptavinir óska eftir, bæði hvað snertir fjárfestingar og skipu- lagningu fjármála hvers og eins. Sömu- leiðis getur starfsfólkið útvegað veðbókarvottorð og séð um þinglýsingar óski viðskiptavinurinn þess. Arnór Heiðar Arnórsson framkvæmda- sljóri Samvinnusjóðs Islands. Fundarsalur Samvinnusjóðs íslands. Samvimiusjóður íslands hf. sigtuni 42 105 REYKJAVÍK SIMI 533-31DD I FAX 533-311D RDBREFAÞING A ÞESSU ARI 17 EEsnmmm

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.