Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 28
STJÓRNMÁL
en þar kom raunar Flugfélag Norðurlands á Akureyri
einnig við sögu.
Mér hefði fundist æskilegra að samgönguráðherra
reyndi að vinna úr þessari gagnrýni Samkeppnisstofn-
unar á jákvæðan hátt í stað þess að bregðast hart við og
ásaka stofnunina. Hún hefur það lögbundna hlutverk að
veita ákveðna neytendavernd. Eg hefði búist við því af
ráðherra Sjálfstæðisflokksins að hann ýtti frekar undir
samkeppni og væri jákvæðari gagnvart samkeppni. Ein-
kunn: Eg gef Halldóri tvær og hálfa stjörnu. Hann er
skemmtilegur persónuleiki en staðnaður sem stjórn-
málamaður.”
INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR ★★
Guðlaugur Þór um Ingibjörgu Pálmadóttur, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra:
„Ingibjörg er viðkunnanlegri kona en margur kynni
að halda sem aðeins hefur séð
hana í fjölmiðlum. Hún er
bæði hress og opin og
getur verið mjög
skemmtileg á
mannamótum. Hún
er stjórnmálamað-
ur sem auðvelt er
að nálgast, hún
hleypir fólki að sér
- og það er auðvelt
fyrir fólk að spjalla
við hana, bæði um
stjórnmál og daginn
og veginn. Hún er
dugleg og vinnu-
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- söm. Það eru henn-
is- og tryggingaráðherra. „Dugleg ar helstu kostir sem
en henni líður ekki vel í ráðuneyt- stjórnmálamanns
inu.” , .
og manneskju.
Helsti galli hennar liggur í því að hún er ekki stjórn-
málamaður mikilla hugmynda. En mér fínnst forsenda
þess að fólk sé í stjórnmálum vera sú að það hafi
ákveðnar skoðanir og hugmyndir. Það er hins vegar
mjög erfitt að átta sig á hverjar hugmyndir Ingibjargar
eru. Sem ráðherra tel ég að henni líði ekki vel, að
minnsta kosti ekki í hei 1 brigðisráðuneytinu - svo stórt,
erfitt og viðamikið sem það ráðuneyti er. Mistök henn-
ar eru meðal annars þau að hún hefur talað of fjálglega
um hve auðvelt sé að kippa málum í liðinn, laga erfið
mál. En það hefur ekki gengið eftir hjá henni. Enda virð-
ist það því miður vera þannig að einu fréttirnar, sem ber-
ast úr heilbrigðisráðuneytinu, séu slæmar fréttir - og að
engar fréttir séu þar af leiðandi góðar fréttir.
Það er þó Ingibjörgu til vorkunnar að heilbrigðisráðu-
neytið er mjög erfitt ráðuneyti, það er með um 60% af
rekstrarútgjöldum ríkissjóðs. Það hlutfall mun frekar
hækka en lækka á næstu árum. Satt að segja vantar okk-
ur ráðherra í þetta erfiða ráðuneyti - en við höfum ekki
haft hann þarna til þessa - einhvern sem kemur með
0F ERFITT
Ég held að Ingibjörg hefði staðið sig
mun betur í öðru og auðveldara ráðu-
neyti. Raunar undraðist ég að Fram-
sóknarflokkurinn skyldi láta hana taka
við svo erfiðu ráðuneyti - svo óreynd
sem hún var.
- Guðlaugur Þór Þórðarson
ákveðna stefnumótun og lausnir. Hann þarf að vera ein-
staklingur til að fylgja eftir erfiðum málum - þótt það
kosti tímabundnar óvinsældir.
Eg held að Ingibjörg hefði staðið sig mun betur væri
hún í öðru og auðveldara ráðuneyti. Raunar undraðist
ég að Framsóknarflokkurinn skyldi láta hana taka við
svo viðamiklu og erfiðu ráðuneyti - svo óreynd sem hún
var. Það hefði örugglega hentað bæði Finni og Páli Pét-
urssyni betur að stýra heilbrigðisráðuneytinu. Einkunn:
Eg gef henni eina og hálfa til tvær stjörnur. Segjum tvær,
hún er í erfiðu ráðuneyti.”
ÞORSTEINN PÁLSSON ★★*
Árni um Þorstein Pálsson sjávarútvegsráðherra:
„Þorsteinn er fremur hægur stjórnmálamaður, hann
ruggar ekki bátnum. Kostir hans eru að hann er yfir-
vegaður, vinnusamur og setur sig inn í mál. Hann er
EMBÆTTISMAÐUR
Þorsteinn virkar orðið á mig sem farsæll
embættismaður fremur en áhugasamur
pólitíkus. í raun skil ég hann, það hlýtur
að vera erfitt fyrir hann að taka þátt í
leiknum sem fyrrverandi leiðtogi Sjálf-
stæðisflokksins.
- Árni Gunnarsson
hlýr maður og hefur þægilega nærveru. Gallar hans eru
þeir að hann er of litlaus stjórnmálamaður, hann gárar
ekki vatnið í kringum sig. Hann virkar svolítið stifur og
stundum jafnvel þvingaður.
Þorsteinn hefur greinilega kynnt sér framkomu í fjöl-
28